Feykir - 03.12.2015, Side 1
á
BLS. 6–7
BLS. 11
Þáttaröð Feykis og Skottu
kvikmyndafjelags lokið
Fyrirmyndar-
frumkvöðlar á
Norðurlandi vestra
BLS. 10
Rætt við Ellert og Sigvalda
syngja í The Voice Ísland
Tveir af fjórum
sem keppa
til úrslita eru
Skagfirðingar
Jessie og Hörður eru
matgæðingar vikunnar
Grænkálskartöflu-
stappa að hætti
Hollendinga
46
TBL
3. desember 2015
35. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BÍLAVERKSTÆÐI
Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570
Við þjónustum bílinn þinn!
Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla,
vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun.
Útlit er fyrir að nokkrum tugum
milljóna verði varið til eflingar
atvinnulífs á Norðurlandi vestra, þar
af talsvert margra verkefna sem
Norðvesturnefndin lagði til, að sögn
Ásmundar Einars Daðasonar
þingmanns Framsóknarflokksins á
Norðurlandi vestra, sem situr í
Fjárlaganefnd Alþingis. Fjárlaga-
nefndin var á lokametrunum við að
afgreiða fjárlögin til annarrar umræðu
þegar Feykir heyrði í Ásmundi í gær.
Ásmundur sagði að talsvert margar
breytingartillögur hefðu komið frá
ríkisstjórn til fjárlaganefndar. Nú liggi
fyrir að miklu fjármagni verði varið til
byggðamála á Norðurlandi vestra. „Það
er verið að undirbúa aðra umræðu
fjárlaga og það liggur ljóst fyrir að þar er
verið að auka verulega í Norðurland
vestra og tryggja fjármagn í talsvert
margar af tillögum Norðvesturnefnd-
arinnar,“ sagði Ásmundur. Enn ríkti
trúnaður yfir einstökum verkefnum þar
sem Fjárlaganefnd var ekki búin að
afgreiða tillögurnar til annarrar umræðu
þegar blaðið fór í prentun. Ásmundur
Einar staðfesti þó að miklu fjármagni
verði varið í mörg af þessum verkefnum
gangi þetta eftir, en um nokkra tugi
milljóna er að ræða og tugi stöðugilda
um allan landshlutann, þ.m.t. aukið
fjármagn til Háskólans á Hólum, bæði til
rekstar og til áframhaldandi uppbygg-
ingar á útikennslusvæði. Búist er við að
fjárlaganefnd Alþingis afgreiði Fjárlögin
til annarrar umræðu á Alþingi öðru
hvoru megin við helgina.
„Mesta innspýting inn í atvinnu-
lífið á NLV í mjög langan tíma“
„Við erum farnir að sjá fyrir endann á
vinnu nefndar sem forsætisráðherra
skipaði til þess að koma með tillögur til
þess að efla og styrkja stoðir atvinnu-
lífsins hér á Norðurlandi vestra, því ber
að fagna,“ sagði Stefán Vagn Stefánsson
formaður Norðvesturnefndar, í samtali
við Feyki í gær. Hann sagði ánægulegt að
útlit sé fyrir að margar af tillögum
nefndarinnar nái í gegn. „Ef að þetta
gengur eftir þá er þetta mesta innspýt-
ing inn í atvinnulífið á Norðurlandi
vestra í mjög langan tíma. Þetta er stórt
skref í byggðarmálum fyrir íbúa Norður-
lands vestra en þess ber að geta að menn
settu þessa nefnd á laggirnar af ástæðu á
sínum tíma. Hér hafði orðið mikil
fækkun opinberra starfa, hlutfallslega
meiri en annarstaðar á landinu, og við
fórum fram á það við stjórnvöld að sú
skekkja yrði leiðrétt. Þessi aðgerð er stór
þáttur í því. Þetta er sá punktur þar sem
við snúum vörn í sókn,“ sagði Stefán að
lokum. /BÞ
Tugir milljóna og fjöldi stöðu-
gilda um allan landshlutann
S K A G F I R Ð I N G A B R A U T 2 9 S A U Ð Á R K R Ó K I S Í M I 4 5 3 6 6 6 6
FÁÐU ÞÉR Í SVANGINN!
50% afsláttur
af jólakúlum
3. – 9. desember
Glæsilegt úrval á pier.is
Vertu vinur
okkar á
Facebook
Þriðja árið í röð buðu Rótarýmenn á Sauðárkróki Skagfirðingum í jólahlaðborð. Fjölmenni var í íþróttahúsinu og gestir hæstánægðir með veisluhaldið.
Á myndinni má sjá Barnakór Sauðárkrókskirkju og Árskóla og nokkra áheyrendur í yngir kantinum. MYND: ÓAB
Unnið úr tillögum Norðvesturnefndarinnar í Fjárlaganefnd Alþingis
Fjölmenni á jólahlaðborði
Rótarýklúbbs Sauðárkróks