Feykir - 03.12.2015, Qupperneq 2
2 46/2015
Mikið hefur verið rætt um umburðarlyndi gagnvart alls kyns
trúarbrögðum, kynþáttum, kynhneigð og bara hvers kyns
lífsskoðunum og lífsháttum fólks. Sjálf tek ég heilshugar undir
slíkt, enda fátt sem veldur mér meiri gremju en fordómar og
óréttlæti. Ég hef þó velt því töluvert fyrir mér undanfarið hvort
umburðarlyndi gagnvart trúar-
brögðum sé gengið það langt að
við umberum ekki orðið okkar
eigin þjóðtrú.
Nú berast endalausar fregnir af
því að skólabörn megi helst ekki
fara til kirkju og við liggur að sett
sé nálgunarbann á presta gagn-
vart skólahúsnæði. Ég kalla það
orðið gott ef þeir mega sækja sín
eigin börn í skólann þar sem verst
lætur. Allavega tæplega með krag-
ann um hálsinn.
Sjálf er ég nú ekki nema í meðallagi trúrækin kona. Er að vísu
alin upp á kirkjustað og eiginmaðurinn líka, auk þess sem við
bjuggum örskammt frá kirkju í mörg ár. Synir okkar lærðu
bænirnar, voru fermdir að eigin ósk, og fóru í kirkju ef þeir höfðu
þolinmæði til og gátu setið kyrrir – sem reyndar var óþarflega
sjaldan. Í nokkur ár kenndi ég líka kristinfræði – meðan það
mátti – en ég kenndi líka um önnur trúarbrögð og fannst lítið mál
að gera það á hlutalausan hátt. Þegar ég fer erlendis kynni ég mér
gjarnan trúarbrögð þarlendra, líkt og annan part af menningu
viðkomandi þjóðar.
En nú er svo komið að þúsund árum eftir að við Íslendingar
tókum kristni virðumst við ætla að skila henni aftur. Það virðist
vera orðið feimnismál að umgangast trúna sem mikill meirihluti
landsmanna aðhyllist og ætla mætti að öll umræða um hana gæti
stórskaðað börn á skólaaldri. Svo rammt kveður að þessu tabúi að
ég stóð mig að því að skila Gyðingakökunum í Skaffó um daginn
og kaupa frekar vanilluhringi. Get enda ekki ímyndað mér annað
en þessar kökur verða fljótlega bannaðar og hljóti sömu örlög og
kristinfræðibækur í grunnskólum landsins eða galdraritin á
hinum myrku miðöld-um. Alla vega ætla ég ekki að láta henda
mér á bálið þegar þar að kemur.
Ég viðraði þessar áhyggjur mínar við vini mína á snjáldur-
skinnu á dögunum og lýstu menn þá áhyggjum sínum af ýmsum
fleiri tegundum og fyrirbærum. Ég gef mér að til að koma í veg
fyrir kynþáttafordóma hafi negrakossar fyrir löngu verið bann-
aðir. Dómar í kynferðisafbrotamálum sína líka svo um verður
vikist að sveinki gæti átt rétt á bótum vegna þeirrar áreitni sem
hann hefur í gegnum árin orðið fyrir af hálfu mömmunnar. Af
sömu ástæðum má gera ráð fyrir að ekki þyki við hæfi að leggja
sér ástarpunga til munns öllu lengur. Get heldur ekki ímyndað
mér að jafnréttissinnar gúdderi mömmukossar til lengdar, hvað
þá að samkynhneigðir bekenni að mamma sitji ein að því að
kyssa jólasveininn. Húsmóðirin á Skagaströnd sem hingað til
hefur bakað Siggakökur, Magnúsar-sælu og Bjössabollur gæti líka
átt á hættu að fá mannanafnanefnd upp á móti sér.
Síðast en ekki síst getur það varla samræmst jafnrétti gagnvart
trúarbrögðum að menn standi á krossgötum í lífinu, enda hlýtur
þetta helsta tákn kristinnar trúar að vera jafnhættulegt og
kirkjuferðir grunnskólabarna.
Kristín Sigurrós Einarsdóttir, blaðamaður
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176, 694 9199
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Má ekkert lengur?
Fluga
fékk flest
atkvæði
Nýtt nafn komið á
sameinað hestamanna-
félag í Skagafirði
Sameiningarnefnd skag-
firsku Hestamannafélag-
anna fundaði í síðustu viku
og samkvæmt vef Léttfeta
var farið yfir atkvæða-
greiðslu um nafn hins nýja
félags. Niðurstaðan varð sú
að nafnið Fluga fékk flest
atkvæði og mun hið nýja
félag því bera nafnið Fluga.
Samkvæmt vefnum geng-
ur önnur vinna nefndarinnar
vel. Margt þarf að skoða en
flest mál eru þó að taka á sig
skýrari mynd. /BÞ
Selma og Tómas kaupa Vídeósport
Kaffi Krókur, Mælifell og Ólafshús skipta um eigendur
Gengið hefur verið frá sölu á
veitinga- og skemmtistöð-
unum Kaffi Krók, Mælifelli og
Ólafshúsi á Sauðárkróki. Það
eru þau Selma Hjörvarsdóttir
og Tómas Árdal sem kaupa
staðina af Kristínu Elfu
Magnúsdóttur og Sigurpáli
Aðalsteinssyni, en fyrirtæki
þeirra, Vídeósport, hefur rekið
þessa staði um árabil. Fyrir
eiga þau Selma og Tómas
Arctic Hotels á Sauðárkróki.
Tómas sagði í samtali við
Feyki í síðustu viku að þau tækju
við Kaffi Krók, Mælifell og
Ólafshúsi um áramót. Hann
sagði ekki stefnt á neinar sér-
stakar breyt-ingar á rekstrinum
til að byrja með, enda hefði
rekstur þessara staða verið með
miklum ágæt-um. „Þó eru geta
alltaf orðið einhverjar breyt-
ingar með nýju fólki, það verður
bara að koma í ljós. Við teljum
þetta góða viðbót við okkar
rekstur og þetta leggst bara vel í
okkur,“ sagði hann. /KSE
Snorra Evertssyni þakkað
framlag sitt til mjólkurvinnslu
Mjólkursamlag KS 80 ára
Á mánudaginn færði stjórn KS
Snorra Evertssyni, f.v.
samlagsstjóra hjá Mjólkur-
samlagi KS, skrautritaðan
Íslandsatlas, sem sérstakar
þakkir fyrir mikilvægt framlag
sitt við að auka og efla
mjólkurframleiðslu og
mjólkurvinnslu. Var tilefnið 80
ára afmæli samlagsins.
Snorri hóf störf hjá samlaginu
frá 1959. „Ég byrjaði að vinna
þarna fermingarárið mitt og var
þá meðal annars að tæma brús-
ana,“ sagði Snorri þegar blaða-
maður Feykis lagði leið sitt í
samlagið til að smella af mynd-
um í tilefni þessara tímamóta.
Snorri vann síðan hjá Sam-
laginu í fimm ár, þar til hann fór
til náms í mjólkurfræði í Noregi.
Hann kom aftur á Sauðárkrók
árið 1969 og starfaði hjá sam-
laginu æ síðan. Frá árinu 1983
var hann samlagsstjóri í 30 ár, en
hefur þó verið viðloðandi síðan
hann lét formlega af störfum
fyrir tveimur árum. /KSE
Gert ráð fyrir skólahaldi á
Borðeyri út skólaárið 2017-18
Húnaþing vestra
Gert er ráð fyrir að skólahald
á Borðeyri verði óbreytt frá 1.
janúar á næsta ári og út
skólaárið 2017-2018,
samkvæmt bókun sveitar-
stjórnar Húnaþing vestra frá
26. nóvember. Er það miðað
við þær forsendur að
nemendafjöldi haldist innan
þeirra viðmiða sem reiknað er
með á þessu tímabili.
„Vilji sveitarstjórnar stendur
til þess að halda áfram skólastarfi
á Borðeyri en með áframhaldandi
fækkun nemenda verður grund-
völlur þess sífellt minni, bæði ef
horft er til kostnaðar en einnig ef
hafðir eru í huga félagslegir hags-
munir nemenda,“ segir í bókun
sveitarstjórnar frá fundinum.
Þar segir einnig að ef breyt-
ingar verði á nemendafjölda til
þess tíma verði fyrirkomulag
skólastarfs á Borðeyri endur-
skoðað. Að þeim tíma loknum
verður metið hvernig skólahaldi
verður best fyrirkomið í fram-
haldinu.
Samkvæmt tillögum sviðs-
stjóra fjölskyldusviðs og skóla-
stjórnenda grunn- og leikskóla
að breyttu rekstrarfyrirkomulagi
grunn- og leikskóla að Borðeyri
verður kennt í þrjá daga á viku á
Borðeyri og tvo daga á
Hvammstanga. Leikskóli verður
lokaður á föstudögum, auk
fimmtudaga eins og nú er. /KSE
Áform um
lagfæringar á
Blöndubrú
Blönduós
Samkvæmt frétt á vef
Húnahornsins þann 17.
nóvember áformar
Vegagerðin að lagfæra og
bæta þjóðveginn í gegnum
Blönduós og Blöndubrú.
Endurnýja á gólf brúarinnar
og setja á hana nýtt
handrið. Áætlaður
kostnaður nemur um 30
milljónum króna.
Samhliða framkvæmd-
unum verður vegurinn
beggja megin við brúna
breikkaður og er áætlaður
kostnaður við það um 10 til
15 milljónir króna. Engin
ákvörðun hefur verið tekin
um tímasetningu fram-
kvæmda en þær eru háðar
því að fjármagn fáist í nýrri
samgönguáætlun, segir í frétt
á Húnahorninu.
Þar segir ennfremur að á
fundi sveitarstjórnar Blöndu-
ósbæjar í október hafi verið
rætt um þessa framkvæmd,
sem og mögulega göngubrú
neðan núverandi Blöndu-
brúar, en frumkostnaðar-
áætlun við hana var um 80
milljónir. Þá var rætt um
gömlu brúna og aðkomu
Vegagerðarinnar að því að
sandblása hana og mála
ásamt því að setja hana upp
og ganga frá brúargólfi ef
hún yrði sett upp við Hrútey.
/KSE
Snorri ásamt mjólkurfræðingum samlagsins. Frá vinstri: Hilmar Baldursson, Jón Þór
Jósepsson, Snorri Evertsson, Helgi Ragnarsson og Svavar Sigurðsson. MYND: KSE