Feykir - 03.12.2015, Qupperneq 3
46/2015 3
Ártorgi 1 550 Sauðárkrókur & +354 455 4500 www.ks.is
Innheimtustarf
Kaupfélag Skagfirðinga óskar eftir að ráða
starfsmann við innheimtu. Um er að ræða fullt
starf með starfsstöð á aðalskrifstofu KS.
Starfssvið:
• Úrvinnsla og eftirfylgni innheimtumála
• Upplýsingagjöf til viðskiptamanna
• Önnur almenn skrifstofustörf
Hæfniskröfur:
• Framúrskarandi samskiptahæfileikar og þjónustulund
• Starfið gerir kröfur um sjálfstæði og nákvæm vinnubrögð
• Góð þekking á Office hugbúnaði æskileg
• Þekking á NAV viðskiptahugbúnaði kostur
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst
Upplýsingar veitir Kristjana Jónsdóttir,
skrifstofustjóri, sími 455 4517.
Umsóknarfrestur er til og með 13. desember 2015.
Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á kristjana.jonsdottir@ks.is
Hátíðarvinastundir
Aðsent > Anna Jóna Guðmundsdóttir
Hátíðarvinastundir voru
föstudaginn 20. nóvember
2015 á báðum stigum
Ársala. Tilefnið var að halda
upp á 100 ára afmæli
kosningaréttar kvenna á
Íslandi. Farið var þess á leit
við leikskóla og aðrar
skólastofnanir í landinu að
finna leið til að minnast
þessa viðburðar fyrir 100
árum með eftirtektarverðum
hætti á árinu 2015.
Eftir umhugsun og vangaveltur
varð niðurstaðan sú að gera
söngdagskrá fyrir vinastund
þar sem sungin yrðu lög við
texta eftir konur. Útbúið var
hefti með nokkrum lögum
eftir konur, sem æfð voru
sérstaklega fyrir þetta tilefni og
ákveðið að flytja þessa dagskrá
föstudaginn 20. nóvember á
báðum stigum Ársala. Íslenska
fánanum var flaggað á Völlum
og Strönd og allir sungu saman
lög eftir konur.
Auk þess tróðu nokkrar
konur úr starfsmannahópnum
upp, ein þeirra lék Elvan mín
bláa á harmónikku og þrjár
aðrar sungu lagið Einskonar
ást. Síðan sungu tvær ungar
dömur lagið Með þér og hlutu
mikið klapp fyrir.
Anna Jóna Guðmundsdóttir
leikskólastjóri Ársala
Myndir frá Leikskólanum Ársölum.
MYNDIR: ÁRSALIR
Crossfit 550
Viltu gefa gjafabréf á grunnnámskeið í Crossfit í jólagjöf?
Þá er tækifærið núna því 4. jan byrjar nýtt námskeið –
einn auka mánuður í opna tíma fylgir frítt með.
Kostar 15.000 kr. - Skráning er hafin á facebook síðu Crossfit 550
eða senda e-mail á crossfitskr@gmail.com
í desember ætlum við að bjóðum krökkum í 8.-9.bekk frítt í Unglingacrossfit.
Tímarnir eru á þrið. og fim. kl 20:00.
Hlökkum til að sjá ykkur Erna Rut og Sunna Björk
Spáir risjóttu veðurfari í desember
en gerir ráð fyrir að nú verði hvít jól
Veðurklúbburinn á Dalbæ
Þriðjudaginn 1. desember
2015 komu félagar í
Veður-klúbbnum á Dalbæ
saman til fundar. Fundurinn
hófst kl. 14:00 með einnar
mínútu þögn í virðingarskyni
við nýlátinn klúbbfélaga,
Gunnar Rögnvaldsson, sem
var virkur í starfi klúbbsins og
lagði m.a. til veðurfarsvísurn-
ar, sem fylgt hafa veðurspánni
á þessu ári Fundarmenn voru
13 talsins og fundinum lauk
kl. 14:25.
Fundarmenn voru sáttir við
hvernig síðasta spá gekk í megin-
atriðum eftir þó svo að snjóað
hafi heldur fyrr en reiknað var
með og lítilega meira en klúbb-
félagar ætluðust til .
Nýtt tungl kviknar 11. des-
ember, kl. 10:29 í suðaustri og er
það föstudagstungl. Veðurfar
fimmtudag fyrir tunglkomu og
mánudaginn þar á eftir er talið
ráða miklu um hvernig veður
verður út mánuðinn.
Gert er ráð fyrir að veðurfar í
desember verði risjótt. Hitastig
verði svipað og var í nóvember
og ekki megi búast við neinum
frosthörkum, þó svo að hitastig
verði að mestu undir frostmarki,
sem er ekki óeðlilegt á þessum
árstíma. Gert er ráð fyrir að nú
verði hvít jól.
Klúbbfélagar senda öllum
góðar óskir um gleðileg jól og
farsæld á nýju ári. Einnig þakka
þeir fyrir athygli sem veðurspá
þeirra hefur vakið og góðar
kveðjur sem klúbbnum hafa
borist.
Veðurvísa mánaðarins:
Þó desember sé dimmur,
þá dýrðleg á hann jól.
Með honum endar árið
og aftur hækkar sól.
Með góðri kveðju og ósk um
gleðileg jól.
Veðurklúbburinn á Dalbæ