Feykir - 03.12.2015, Page 4
4 46/2015
Margir íbúar Skagafjarðar bundu vonir við að
ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar
yrði hagfelldari en ríkis-
stjórnin sem sat áður og
skar rækilega niður á
Norðurlandi vestra. Vonir
vöknuðu m.a. um að hægt
yrði að leggja endanlega til
hliðar ýmsar vanhugsaðar
áætlanir um sameiningu
stofnana á Norðurlandi
vestra sem miðuðu fyrst og
fremst að því að fækka störfum á svæðinu.
Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga var stofnuð
sérstök landshlutanefnd fyrir Norðurland vestra
til að efla atvinnulíf og starfsmaður nefndarinnar
var enginn annar en Ásmundur Einar Daðason
aðstoðarforsætisráðherra. Fréttir herma að
nefndin hafi lagt fram 25 tillögur. Veigamestu
tillögurnar fólu í sér flutning höfuðstöðva RARIK
ásamt því að rekstur skipa Landhelgisgæslunnar
flyttist norður í land, auk þess að efla opinbera
starfsemi á svæðinu. Samtals var áætlað að
opinberum störfum myndi fjölga um 130 á
Norðurlandi vestra.
Í aðdraganda síðustu sveitarstjórnarkosninga
gáfu fulltrúar núverandi meirihluta í Skagafirði
það skýrt í skyn að helsta leiðin til þess að tryggja
flutning opinberra starfa í Skagafjörð væri að sjá
til þess að það væri pólitískur samhljómur í
sveitarstjórninni og ríkisstjórn Íslands.
Í grein sem aðstoðarmaður Eyglóar Harðar-
dóttur skrifaði í Feyki í maí 2014 ásamt Stefáni
Vagni Stefánssyni var það undirstrikað og gefin
fyrirheit um fjölgun starfa hjá Íbúðarlánasjóði á
Sauðárkróki.
Tillögurnar um fjölda stofnana og hundruð
opinberra starfa sem væru á leiðinni í Skagafjörð
slævði mjög baráttu sveitarstjórnarfulltrúa Fram-
sóknar- og Sjálfstæðisflokks gegn vanhugsuðum
áætlunum um sameiningu sýslumannsembætta
og því að leggja niður sjálfstæði heilbrigðis-
stofnunarinnar á Sauðárkróki. Fyrrgreindar
sameiningar runnu því hávaðalítið í gegn án
mikilla andmæla í kjölfar sveitastjórnarkosninga.
Eflaust stóðu fulltrúar meirihlutans í þeirri trú
fyrir nokkrum misserum síðan, að bráðum kæmi
betri tíð með efldum Íbúðalánasjóði og nýjum
höfuðstöðvum RARIK á Króknum.
Reyndin hefur því miður verið allt önnur.
Störfum hefur fækkað hjá Íbúalánasjóði og
RARIK á Króknum og ekkert bólar á nýju
störfunum 130.
Og ekki bætir úr skák að verkefnið virðist
algerlega munaðarlaust hjá þingmönnum kjör-
dæmisins. Ekkert hefur frést af því að starfsmaður
landshlutanefndar, Ásmundur Einar Daðason,
hafi beitt sér fyrir því að niðurstöður lands-
hlutanefndarinnar næðu fram að ganga, hvað þá
1. þingmaður Norðvesturkjördæmisins, Gunnar
Bragi Sveinsson, enda hefur hann verið mjög
upptekinn við að sinna mikilvægum málum í
Úkraínu og Brussel.
Mikilvægt er að sveitarstjórnarfulltrúar og
Skagfirðingar íhugi þá stöðu sem upp er komin
og slái ekki af í baráttu fyrir þeim störfum sem
eru til staðar og tryggi sömuleiðis rétt íbúa til að
nýta nálæg fiskimið. Staðan nú er sú að
ríkisstjórnin hefur ekki staðið við það markmið
sitt að fjölga störfum heldur hefur þeim fækkað
og auk þess tók ráðherra Framsóknarflokksins
upp á því að skera niður byggðakvótann í
Skagafirði. Það lýsir ákveðinni meðvirkni þegar
formaður byggðarráðs Skagafjarðar lýsti nýlega
yfir ánægju með stöðu tillagna landshluta-
nefndarinnar, á þeim forsendum að útlit væri
fyrir að nokkur verkefni væru að verða að veru-
leika! Staðreyndin er sú að í flestum tilfellum er
um að ræða endurfjármögnun á ágætum verk-
efnum sem eru þegar til staðar í Húnavatns-
sýslum.
Ef litið er til annarra áætlana og fjárframlaga
til Norðurlands vestra hvort sem það er til mál-
efna fatlaðra, menningarmála eða vegaáætlunar,
þá er ljóst að ríkisstjórn Framsóknar- og
Sjálfstæðisflokks hefur dregið gríðarlega úr
fjárframlögum á svæðið.
Sú fækkun íbúa sem hefur orðið á svæðinu frá
því ríkisstjórnin tók við völdum er því ekki nein
tilviljun heldur bein afleiðing af stjórnarstefn-
unni.
Sigurjón Þórðarson,
líffræðingur og varasveitarstjórnarfulltrúi
K-listans í Skagafirði
AÐSENT SIGURJÓN ÞÓRÐARSON SKRIFAR
Munaðarlausar tillögur
Vikuna 22.–28. nóvember var rúmum 497 tonnum landað á Skagaströnd. Þar af voru tæp 450
tonn úr Arnari HU 1. Þá var landað tæpum 19 tonnum á Hofsósi, tæpum 216 tonnum á
Sauðárkróki og rúmum 10 tonnum á Hvammstanga. Alls gera þetta um 732 tonn. /KSE
Aflatölur 22.–28. nóvember á Norðurlandi vestra
Arnar með tæp 450 tonn
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Stella GK 23 Landb.lína 5.229
Sæfari HU 200 Landb. lína 1.941
Ölli Krókur GK 211 Landb. lína 4.284
Alls á Skagaströnd 497.341
HOFSÓS
Bíldsey SH 65 Lína 18.880
Alls á Hofsósi 18.880
SAUÐÁRKRÓKUR
Klakkur SK 5 Botnvarpa 7.244
Málmey SK 1 Botnvarpa 207.528
Már SK 90 Handfæri 1.019
Alls á Sauðárkróki 215.791
HVAMMSTANGI
Bergur Vigfús GK 43 Lína 5.877
Harpa HU 4 Dragnót 10.222
Alls á Hvammstanga 16.099
SKAGASTRÖND
Addi afi GK 97 Landb. lína 4.106
Alda HU 112 Landb. lína 7.365
Arnar HU 1 Botnvarpa 449.647
Bergur sterki HU 17 Landb. lína 3.865
Blær HU 77 Landb. lína 1.073
Bogga í Vík Landb. lína 1.891
Dagrún HU 121 Þorskanet 1.040
Gulltoppur GK 24 Landb. lína 8.299
Íslandsbersi HU 113 Landb. lína 1.036
Kristbjörg HF 212 Landb. lína 7.565
Bjarni Jónasson knapi ársins
Uppskeruhátíð hrossaræktenda og
hestamannafélaganna í Skagafirði 2015
Uppskeruhátíð hrossarækt-
enda og hestamannafélag-
anna í Skagafirði var haldin í
Ljósheimum föstudaginn 27.
nóvember. Þar voru veittar
ýmsar viðurkenningar á sviði
hestamennsku.
Verðlaun fyrir reiðmennsku
voru veitt af hestaíþróttaráði
UMSS. Í barnaflokki hlaut
Stefanía Sigfúsdóttir verðlaun
sem knapi ársins, Guðmar Freyr
Magnússon í unglingaflokki og í
ungmennaflokki Finnbogi
Bjarnason. Hestaíþróttaknapi
ársins er Þórarinn Eymundsson
og knapi ársins Bjarni Jónasson.
Bjössabikarinn, sem gæðinga-
knapi ársins, hlaut Magnús Bragi
Magnússon, en sá bikar er gefinn
í minningu Sigurbjörns Þorleifs-
sonar frá Langhúsum.
Hrossaræktarsamband Skag-
firðinga veitti viðurkenningar
fyrir þrjú hæst dæmdu kynbóta-
hross í hverjum aldursflokki,
sem komið hafa til dóms á árinu.
Skilyrði var að hrossin væru úr
ræktun Skagfirðinga. Sörlabikar-
inn fyrir hæst dæmda kynbóta-
hross úr ræktun og í eigu
Skagfirðings, gefinn af Sveini
Guðmundssyni, hlaut blær frá
Miðsitju. Kraftsbikarinn er
veittur þeim knapa sem nær
bestum árangri við sýningu
kynbótahrossa á árinu og er
hann gefinn af Eymundi Þórar-
inssyni. Kraftsbikarinn í ár hlaut
Bjarni Jónasson. Ófeigsbikarinn
er gefinn af Ófeigsfélaginu. Er
hann veittur ræktunarbúi Skaga-
fjarðar og voru það Sauðár-
rókshestar sem hlutu hann í ár.
Eftirfarandi stóðhestar hlutu
verðlaun í hverjum flokki:
(engar fjögurra vetra hryssur
komu til dóms á árinu).
4 VETRA STÓÐHESTAR:
Stormur frá Stokkhólma,
í eigu Einars Ólafssonar og
Önnu S. Sigmundsdóttur.
Pílatus frá Þúfum,
í eigu Mette Camille Moe Mannseth.
Bandvöttur frá Miklabæ
í eigu Agnars Gunnarssonar og
Ingimars Jónssonar.
5 VETRA STÓÐHESTAR:
Mjöður frá Hofi á Höfðaströnd
í eigu Hofstorfunnar slf.
Örn frá Brimnesi,
í eigu Carsten Lissau/ Vesturkots ehf.
Hlekkur frá Ytra-Vallholti,
í eigu Vallholts ehf.
5 VETRA HRYSSUR:
Stekkja frá Brimnesi,
í eigu Ólafs Bjarna Andréssonar.
Þórdís frá Prestsbæ,
í eigu Ingu og Ingars Jensen / Prestsbær
Sara frá Stóra-Vatnsskarði,
í eigu Hans Þórs Hilmarssonar.
6 VETRA STÓÐHESTAR:
Hlekkur frá Saurbæ,
í eigu Péturs Arnar Sveinssonar og
Heiðrúnar Óskar Eymundsdóttur.
Styrkur frá Stokkhólma,
í eigu Einars Ólafssonar og
Rúnar F. Rúnarsson.
Svaði frá Hólum,
í eigu Torsten Reisinger og Carolin Winter.
6 VETRA HRYSSUR:
Sólrún frá Veðramóti,
í eigu Anne Jarvinen.
Kátína frá Ytra-Vallholti,
í eigu Vallholts ehf.
Bylgja frá Sauðárkróki,
í eigu Péturs Vopna Sigurðssonar og
Sigríðar Pétursdóttur.
7 VETRA HRYSSUR:
Hnota frá Stóra-Vatnsskarði,
í eigu Nicole Pfau.
Birta frá Laugardal,
í eigu Magnúsar B. Magnússonar og
Þorvarðar Björgúlfssonar.
Þota frá Prestsbæ,
í eigu Ingu og Ingars Jenssen/ Prestsbær
ehf.
7 VETRA STÓÐHESTAR:
Sálmur frá Ytra-Skörðugili,
í eigu Kine Nordbrekken.
Nökkvi frá Syðra-Skörðugili,
í eigu Nökkvafélagsins ehf.
Blær frá Miðsitju,
í eigu Miðsitju ehf./ Tryggva Björnssonar.
/KSE
Bjarni Jónasson, knapi ársins, ásamt dóttur sinni.
MYND: RÓSA VÉSTEINSDÓTTIR