Feykir - 03.12.2015, Blaðsíða 5
46/2015 5
Bríet Guðmundsdóttir / Manchester United
Stefnir allt í rétta átt
( LIÐIÐ MITT ) kristin@feykir.is
Bríet á Old Trafford. MYND: ÚR EINKASAFNI
Bríet Guðmundsdóttir á
Sauðárkróki situr fyrir svörum í
þessum þætti af Liðið mitt. Hún
heldur með Manchester United
eins og pabbi hennar og heldur
mest upp á Beckham, Giggs og
Rooney. Hún er nýkomin af leik
með liðinu, þar sem þeir nældu
sér í þrjú stig á móti WBA.
Hvert er uppáhaldsliðið þitt í
enska boltanum og af hverju?
Manchester United. Ætli það sé
ekki vegna þess að pabbi heldur
með því.
Hvernig spáir þú gengi liðsins
á tímabilinu? Vona auðvitað
að þeir verði meistarar, en mun
sætta mig eitthvað af fjórum efstu
sætunum.
Ertu sáttur við stöðu liðsins í
dag? Já, já, mættu náttúrulega
alveg vera ofar en treysti á að þeir
færist ofar þegar líður á tímabilið.
Hefur þú einhvern tímann lent í
deilum vegna aðdáunar þinnar
á umræddu liði? Já, en ekkert
alvarlegt samt.
Hver er uppáhaldsleikmaðurinn
fyrr og síðar? Það er erfitt að
nefna einhvern einn en ætli það
sé ekki Beckham... og Giggs... og
Rooney.
Hefur þú farið á leik með liðinu
þínu? Já, ég afrekaði það núna í
byrjun nóvember, en ég fór út og
horfði á þá næla sér í þrjú stig á
móti WBA, rosalega gaman og
verður klárlega endurtekið!
Áttu einhvern hlut sem tengist
liðinu? Já, treyjur, rúmföt og
ýmislegt fleira.
Hvernig gengur að ala aðra
fjölskyldumeðlimi upp í stuðn-
ingi við liðið? Ég held að þetta
stefni allt í rétta átt.
Hefur þú einhvern tímann skipt
um uppáhalds félag? Nei, það
hef ég ekki gert og mun ekki gera.
Uppáhalds málsháttur? Margur
er knár þó hann sé smár.
Einhver góð saga úr boltanum?
Það var algjör snilld þegar ein úr
liðinu okkar hljóp dómarann niður
í einum af heimaleikjunum okkar í
fyrra, sem tekinn var upp!
Einhver góður hrekkur sem þú
hefur framkvæmt eða orðið
fyrir? Ég framkvæmdi einn
snilldar hrekk á systur minni fyrir
nokkrum árum. Ég sem sagt
spurði hana hvort ég mætti brjóta
tvö egg á hausnum á henni og ég
myndi svo borga henni 5 þúsund
krónur. Hún samþykkti það eftir að
ég var búin að lofa henni því oft
og mörgum sinnum að hún myndi
fá þennan 5 þúsund kall eftir tvö
egg í hausinn. Svo braut ég annað
eggið á hausnum á henni en braut
aldrei hitt, svo hún greyið fékk
bara eitt egg í hausinn en engan
5 þúsund kall.
Spurning frá Bryndísi Rut:
Hvaða atviki áttu aldrei eftir að
gleyma í fótboltanum? Ætli það
sé ekki leikurinn á móti Álftanesi
í Lengjubikarnum 2014. Eftir
venjulegan leiktíma og fram-
lengingu var jafnt svo hann endaði
í æsispennandi vítaspyrnukeppni
sem við unnum og þar með
komumst við í úrslit.
Hvern myndir þú vilja sjá svara
þessum spurningum? Ég ætla að
skora á hann Ísak Óla Traustason.
Hvaða spurningu viltu lauma að
viðkomandi?
Hver er draumaleikurinn?
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Fleiri íþróttafréttir á Feykir.isF
Stólarnir okkar eru komnir aftur!
Dominos-deildin: Tindastóll – Keflavík 97–91
Tindastóll tók á móti toppliði
Keflvíkur í Dominos-deildinni í
körfubolta sl. fimmtudags-
kvöld og það var heldur betur
fjör í sjóðheitu Síkinu. Slenið
sem hefur legið eins og mara
yfir leikmönnum Stólanna í
haust var á bak og burt og nú
kannaðist maður aftur við
baráttuna og leikgleðina sem
einkenndi liðið síðasta vetur.
Það var strax hörku tempó í
leiknum og greinilegt að Stól-
arnir ætluðu að selja sig dýrt.
Gestirnir voru taplausir fyrir
leikinn og höfðu enga ástæðu til
að gefa þumlung eftir. Tinda-
stólsmenn náðu góðum kafla
undir lok fyrsta leikhluta og
voru yfir 31-23 að honum
loknum. Gestirnir komu til baka
í öðrum leikhluta en allt var
hnífjafnt í hálfleik, staðan 54-54.
Þriðji leikhluti var skemmti-
legur og spennandi en nú var
fastar tekið á í vörnum liðanna.
Stólarnir voru með frumkvæðið
en munurinn yfirleitt þetta eitt
til fimm stig og það var því
svekkjandi þegar Keflvíkingar
jöfnuðu rétt fyrir lok leikhlutans.
Darrel Lewis átti þó lokaorðið
eins og oft áður og setti þrist og
staðan 74-71 þegar fjórði leik-
hluti hófst.
Stólarnir náðu mest ellefu
stiga forystu í upphafi leikhlut-
ans, 82-71, en Keflvíkingar náðu
enn á ný að jafna, staðan 87-87
þegar rúmar þrjár mínútur voru
eftir. Stólarnir náðu þá upp þéttri
vörn og sóknarleikur gestanna
varð stirður fyrir vikið. Smá
saman jókst bilið og á endanum
fögnuðu heimamenn sætum
sigri, 97-91.
Darrel Lewis átti frábæran
leik (32 stig) og þá var nú allt
annað að sjá til Jerome Hill sem
var sterkur undir körfunni, reif
niður 15 fráköst og gerði 20 stig.
Þá gladdi það stuðningsmenn
Stólanna að sjá Ingva Ingvars
finna taktinn á ný, en meiðsli
hafa plagað hann í haust.
Næsti leikur Tindastóls er í
DHL-höllinni nú á föstudaginn
og vonandi tekst strákunum að
stríða meisturunum. /ÓAB
Darrelarnir Lewis og Flake fylgjast með Magga Gunn taka innkast. MYND: ÓAB
Feykiflottur
Liggurðu á frétt? Áttu skemmtilega
mynd sem gaman væri að birta í Feyki?
Hafðu samband > feykir@feykir.is
Sigursælar
Stólastúlkur
Karfa
Helgina 14.–15. nóvember
var törnering í B-riðli hjá
10. flokki kvenna í Tinda-
stóli í Stykkishólmi.
Stúlkurnar stóðu sig mjög
vel, að sögn Ernu Rutar
Kristjánsdóttur þjálfara, og
sigruðu alla sína leiki.
Á laugardeginum spilaði
Tindastóll gegn Haukum og
vann sannfærandi sigur en að
sögn Ernu höfðu þær ekki
sigrað Hauka áður. „Við
lékum við Snæfell strax á eftir.
Rimmurnar á milli liðana hafa
verið í sitthvora áttina, sigur
og tap til skiptis, en þessi
leikur fór aðeins öðruvísi en
vanalega. Við unnum þær
með einu stigi á lok-
asekúndunni, við skoruð-um
flautukörfu þegar það voru
0,2 sekúndur eftir af leiknum,“
sagði Erna Rut og bætir við að
stúlkurnar hafi verið í
sigurvímu eftir daginn.
Á sunnudeginum lék
Tindastóll við KR og lauk
leiknum með sigri Tinda-
stóls þrátt fyrir kæruleysi.
Eftir helgina eru stúlkurnar
komnar í A-riðil. /BÞ
Þóranna Ósk og Daníel
Frjálsíþróttafólk UMSS 2015
Uppskeruhátíð frjálsíþróttafólks í Skagafirði
Uppskeruhátíð frjálsíþrótta-
fólks í Skagafirði var haldin í
Miðgarði sl. laugardag, þann
28. nóvember. Þar var það
frjálsíþróttafólk Skagafjarðar
sem skarað hefur fram úr í
öllum flokkum þetta árið
heiðrað.
Samkvæmt Facebook-síðu
Frjálsíþróttadeildar Tindastóls
var Daníel Þórarinsson valinn
Frjálsíþróttamaður UMSS 2015
og Frjálsíþróttakona UMSS 2015
Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir. Þá
voru Gísli Laufeyjarson Hösk-
uldsson og Guðný Rúna Vé-
steinsdóttir kjörin Ungir og
efnilegir unglingar 2015.
Íslandsmeistarar 2015 voru:
Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir sex
titlar, Ísak Óli Traustasson einn
titill Gunnar Freyr Þórarinnsson
einn titill, Laufey Harðardóttir
einn titill . Unglingalandsmóts-
meistari 2015 var Ragna Vigdís
Vésteinsdóttir. /BÞ
Frjálsíþróttakona UMSS 2015 Þóranna Ósk og Frjálsíþróttamaður UMSS 2015
Daníel Þórarinsson. MYND: FACEBOOK-SÍÐA FRJÁLSÍÞRÓTTADEILDAR TINDASTÓLS.