Feykir - 03.12.2015, Side 6
6 46/2015
Ellert Heiðar er nú búsettur í
Grindavík og stundar
sjómennsku þar. Það er því
ekki langt fyrir hann að fara á
æfingar og í útsendingar, sem
fara fram í Ásbrú í Reykja-
nesbæ. Hann var að vonum
hress með sinn árangur þegar
blaðamaður heyrði í honum á
þriðjudaginn, en þann dag var
frí frá æfingum. Búið var að
velja lögin tvö fyrir föstu-
dagskvöldið og æfingar stóðu
fyrir dyrum, alveg fram að
úrslitakvöldinu.
„Ég held ég hafi verið farinn að
syngja strax sem smákrakki, svo
segir mamma,“ sagði Ellert
þegar blaðamaður innti hann
eftir hvenær hann hefði byrjað í
tónlistinni. „Ég er búinn að vera
í músík alla ævi. Maður fór í
einhverjar unglingahljómsveitir
en ég fór aldrei í tónlistarskóla,
lærði bara að gutla á gítar
sjálfur.“ Hann segist ráma í að
hafa fyrst sungið opinberlega í
kringum þrettán ára aldur, með
hljómsveit sem í voru meðal
annars Kristján Grétar, Viktor
Guðmundsson, Ari Björn Sig-
urðsson og fleiri. „Það var í
Bifröst. Ég söng lagið Ung, gröð
og rík. Við æfðum þetta lag og
kunnum ekkert annað lag,“ segir
Ellert og hlær. „Á þessum tíma
var alltaf fullt af hljómsveitum á
Sauðárkróki, það voru allir í
hljómsveit, en þegar maður var
orðinn 17, 18 ára voru bara ein
eða tvær eftir.“
Fram hefur komið í viðtölum
að Ellert var hættur í hljóm-
sveitarbransanum, en hann söng
með hljómsveitinni Von frá því
hún var stofnuð árið 2001
þangað til hann flutti til
Grindavíkur árið 2009 og fór að
stunda sjómennsku þar. Síðan
hefur hann aðallega fengist við
að semja eigin tónlist. En í sumar
var hringt í hann og honum
boðin þátttaka í keppn-inni og
eftir smá umhugsun ákvað hann
að láta slag standa. „Þetta er
töluvert öðruvísi en að spila á
böllum,“ segir hann og telur
samkeppnina í The Voice Ísland
mikla. „Það er ótrúlega mikið af
hæfileikaríku fólki þarna, miðað
við aðrar svona keppnir. Ég gerði
mér ekki grein fyrir hvað yrðu
góðir einstaklingar þarna. Þessir
krakkar í dag, þau eru orðin svo
góð. Mörg þeirra eru búin að fara
á námskeið og læra að syngja,
þetta er bara ótrúlegt hvernig
þetta er orðið. Ég hefði ekki viljað
hlusta á sjálfan mig á þessum
árum,“ segir Ellert og hlær.
„Þetta er
ógeðslega gaman“
„Allir sem taka þátt ætla auðvitað
að vinna, þetta er bara eins með
íþróttirnar, maður fer ekkert í
keppni nema ætla að vinna.
Samt er maður hissa hvað maður
er kominn langt. Ég efaðist á
leiðinni, en maður heldur bara
sínu striki.“
Ellert er í liði Helga Björns en
hann segist ekki hafa verið búinn
að ákveða hvaða þjálfara hann
myndi velja áður en hann komst
áfram í blindprufunum. „Maður
var bara ánægður með að ein-
hver skyldi snúa sér við.“
Varðandi fyrirkomulag
keppninnar segir Ellert að allt sé
faglega unnið og getur þess um
leið að það sé Skagfirðingur,
Eiríkur Hilmarsson, sem sér um
hljóðið í útsendingunum: „Þetta
er allt saman alveg „tipp topp,“
ég mæli með því að ef það verður
önnur sería þá reyni menn að
komast í hana, þetta er ógeðslega
gaman.“
Að sögn Ellerts eru raddirnar
sem taka þátt mjög ólíkar, því sé
það líka spurning um smekk,
hvað fólk kýs. „Við þessi eldri
erum að taka gömlu lögin og svo
taka þessi yngri gjarnan lög sem
eru nýrri. Það er bara gaman að
hafa þessa breidd í aldrinum,
það endurspeglast líka í laga-
valinu.“ Athygli vakti að Ellert
tók íslenskt lag, Álfar, í
undanúrslitunum síðasta föstu-
dag, en lítið hefur verið um
flutning íslenskra laga í keppn-
inni. „Þetta lag er eftir mikinn
vin minn, Magnús Þór Sig-
mundsson, og þetta er bara eitt
af allra uppáhalds lögunum
mínum. Maður er að reyna að
blanda því, lögunum sem manni
þykir vænt um og því sem að
gæti orðið skemmtilegt, fyrir
aðra. Without You, var hins vegar
ekki lag sem ég hefði valið, en við
völdum það, ég og Helgi,“ segir
hann og bætir við að þeir velji
lögin jafnan í sameiningu.
Þegar Ellert er spurður um
önnur áhugamál en tónlistina,
segir hann tímann aðallega fara í
fjölskylduna, sjóinn og músíkina.
Eflaust er líka nóg að gera á stóru
heimili, enda eiga hann og kona
hans, Aníta Björk Sveinsdóttir,
fjögur börn; Jóhann Friðrik 14
ára, Bergsvein 10 ára, Helena
Rós 6 ára og Ellert Orra 10
mánaða. Segja má að þau séu
komin á heimaslóðir Anítu, sem
reyndar kemur upphaflega frá
Patreksfirði en ólst upp í Grinda-
vík frá sex ára aldri. Fjölskyldan
styður hann vel og það ríkir
mikil stemning fyrir keppninni í
stórfjölskyldunni. Einnig segist
Ellert verða var við gríðarlegan
stuðning, sem meðal annars
megi sjá í gegnum Facebook. „Ég
vil skila miklum kveðjum og
þakklæti til fólksins í Skagafirði
og hérna í Grindavík líka.“
Varðandi framtíðarplönin
segist Ellert bara halda áfram á
sjónum en vonast þó til að
keppnin veiti honum einhver
tækifæri, til að mynda til að
koma þeirri tónlist sem hann
hefur verið að semja á framfæri.
„Maður verður nú samt að bíða
með að hætta í vinnunni, eins og
sagt er, don´t quit your day job.
Maður bara fylgir þessu og sér
hverju verður kastað að manni,“
segir hann að lokum.
Ellert ásamt þremur elstu börnunum, Bergsveini lengst til vinstri, þá Helenu Rós og síðan Jóhanni Friðriki.
Hljómsveitin Von frá Sauðárkróki.
Tveir af fjórum sem keppa til
úrslita eru Skagfirðingar
Ellert Heiðar Jóhannsson og Sigvaldi Helgi Gunnarsson í
The Voice Ísland á Skjá einum
VIÐTAL
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
„Það er kominn fiðringur“
Ellert Heiðar Jóhannsson
Skagfirðingarnir Ellert Heiðar Jóhannsson og Sigvaldi Helgi Gunnarsson og eru komnir í úrslit
keppninnar The Voice Ísland sem fram hefur farið á Skjá einum í vetur. Það má því segja að
Skagfirðingar eigi helming þeirra fjögurra keppenda sem keppa til úrslita annað kvöld.
Víst er að margir munu sitja spenntir við skjáinn á slaginu átta, en hver keppandi flytur eitt lag í fyrri umferð og tveir
verða kosnir áfram, sem syngja síðan annað lag og eftir það kýs þjóðin sigurvegara keppninnar. Feykir heyrði í þeim
köppunum á milli æfinga í vikunni og spurði þá út í tónlistarferilinn, þátttökuna í keppninni og framtíðarplönin.