Feykir - 03.12.2015, Síða 7
46/2015 7
„Ég er spenntur, vongóður og
þakklátur,“ sagði Sigvaldi,
aðspurður um hvernig
úrslitakvöldið legðist í hann,
þegar Feykir sló á þráðinn til
hans í vikunni. Hann segist
hafa verið meira og minna
fyrir sunnan vegna æfinga
undanfarnar vikur, en æfingar
og útsendingar fara fram í
Atlantic studios í Ásbrú í
Reykjanesbæ. Hann hefur þó
gefið sér tíma til að skreppa
norður og syngja, tók á
dögunum þátt í barnatón-
leikunum Frá Ara til Alladín í
Miðgarði og söng á Kirkju-
torgi um síðustu helgi þegar
ljós voru tendruð á jólatrénu
á Króknum.
Sigvaldi hefur búið í Skagafirði
nánast alla ævi, fyrir utan tæpt ár
sem hann bjó í Skotlandi um
fjögurra ára aldur. Hann er
sonur þeirra Gunnars Rögn-
valdssonar frá Hrauni á Skaga,
sem nú er staðarhaldari á
Löngumýri og búsettur þar, og
Laufeyjar Jakobsdóttur sem er
frá Hallfreðarstaðahjáleigu á
Hróarstungu, en búsett á Egils-
stöðum.
Sigvaldi gekk í Varmahlíðar-
skóla og fór síðan í Fjölbrauta-
skóla Norðurlands vestra á
Sauðárkróki, og útskrifaðist
þaðan sem stúdent síðasta vor. Í
vetur hefur Sigvaldi starfað hjá
K-Tak á Sauðárkróki, svona utan
þess sem hann hefur verið fyrir
sunnan vegna æfinga og segist
mjög þakklátur fyrir hve
sveigjanlegir vinnuveitendurnir
hafa verið varðandi þessa
fjarveru. Einhvern tímann í
framtíðinni er svo planið að fara
í háskólann, en hann segist ætla
að fylgja eftir þeim tækifærum
sem hljótast af þátttöku í keppn-
inni og einbeita sér að söngnum
á næstunni.
Sigvaldi segist hafa skráð sig í
keppnina í framhaldi af því að
svokallaður agent hafði sam-
band við hann símleiðis og bauð
honum að vera með. Hann var
þá á ferðinni skammt frá Blöndu-
virkjun vegna vinnu sinnar og
alveg að detta úr símasambandi.
Það var því lítill tími til að ákveða
sig, raunar aðeins fáeinir klukku-
tímar en Sigvaldi sér ekki eftir
þeirri ákvörðun. Hann lætur vel
af skipulagi og fyrirkomulagi
keppninnar: „Söngvurunum
líður vel. Það er hugsað mjög vel
um okkur, frábært fólk er að
stjórna þessu og lætur okkur vita
um leið og það gerist eitthvað
nýtt. Sagafilm á hrós skilið fyrir
það,“ segir hann.
En skyldi hann hafa átt von á að
ná svona langt? „Nei, í rauninni
ekki, ég vissi að það væri hæfi-
leikríkt fólk út um allt land. Þessi
keppni er öðruvísi að því leyti að
það eru bara góðir söngvarar
sem taka þátt, það er enginn
falskur og kann ekki að syngja og
það er ekki gerður heill þáttur
um fólkið sem að fer að gráta af
því það komst ekki áfram.“ Sam-
keppnin er hörð og aðspurður
um erfiðasta keppinautinn segir
Sigvaldi að þarna séu einungis
mjög góðir söngvarar, bæði þeir
sem eru farnir og þeir sem eftir
eru. „Svo er þetta líka pólitík og
vinsældakosning,“ segir hann.
„Maður verður að
vanda sig hvað
maður spilar á
þorrablótunum“
Sigvaldi segist hafa byrjað að
syngja opinberlega sem ungl-
ingur. „Fyrsta minningin frá því
að vera að syngja fyrir fólk var í
stórafmælisveislu hjá afa, þá hef
ég væntanlega verið í 9. bekk.“
Um svipað leyti kom forsetinn í
heimsókn í Varmahlíðarskóla og
þá var Sigvaldi beðinn að syngja.
„Ég man að hann sagði, þegar ég
var búinn að spila fyrir hann
lagið Reyndu aftur: „Já, þú ert nú
bara næsti Bubbi Íslands,“ en
hann hefur líklega sagt það við
langflesta.“ Einnig segist Sigvaldi
hafa komið fram þegar verið var
að vígja sundlaugina á Hofsósi
og hann komst einnig í undan-
keppni Söngkeppni framhalds-
skólanna sem fulltrúi FNV.
Hann segir að stærsta giggið,
áður en hann fór í Voice, hafi
verið þátttaka í Sönglögum í
Sæluviku í Miðgarði og Sælu-
vikutónleikunum í maí sl. í
íþróttahúsinu á Sauðárkróki. „Þá
var maður að syngja með Matta
Papa, Jógvan, Birgittu Haukdal,
Kristjáni Gísla og Ölmu Rut og
þessum þjóðþekktu söngvurum.
Ég tók líka þátt í Drangey Music
Festival og það var mjög gaman.
Svo eru þorrablótin dálítið stórt
dæmi,“ segir hann. „Maður
verður að vanda sig hvað maður
spilar á þorrablótum svo allir fái
eitthvað við sitt hæfi.“
Athygli vakti að Sigvaldi
spilaði sjálfur á gítar í undan-
úrslitunum, en gítarinn er hans
helsta hljóðfæri þó hann hafi
lært á þau nokkur. „Ég var í
tónlistarskóla, byrjaði að læra á
hljómborð en ég nennti aldrei að
æfa mig svo ég var settur á
blokkflautuna en nennti heldur
ekki að æfa mig á hana. Þá var ég
settur á trommur og spilaði á
þær í þrjú eða fjögur ár. Eftir það
fór ég að spila á gítar í þrjá og
hálfan vetur og svo einn vetur í
píanónám. En ég hef ekki verið í
tónlistarnámi síðan ég útskrif-
aðist úr grunnskóla,“ rifjar hann
upp fyrir blaðamanni.
Að sögn Sigvalda hefur alltaf
verið mikil tónlist í kringum
hann, en pabbi hans gerir
töluvert af því að koma fram og
syngja og spila fyrir fólk, meðal
annars á Löngumýri. Þar hefur
Sigvaldi einnig spilað fyrir hópa
sem þar dvelja, svo sem eldri
borgara og bútasaumskonur.
Hann segist einnig eiga frændur
í móðurætt sem eru mikið í
tónlist. Þá nefnir hann að Einar
Þorvaldsson og Stefán Gíslason
hafi hvatt sig áfram. „Ég hef alltaf
sótt í fólk sem spilar tónlist og
syngur. Í nokkur ár hefur
Sigvaldi verið í Hljómsveit
kvöldsins, ásamt þeim Reyni Snæ
Magnússyni, Jóni Gesti Atlasyni,
Jóni Þór Þorvaldssyni og Alex
Má Sigurbjörnssyni.
Aðspurður um hvort hann
hafi verið búinn að velja þjálfara
fyrirfram segist Sigvaldi hreint
ekki hafa verið viss um að kom-
ast áfram í blindprufunum
svokölluðu. „Ég var ekkert viss
um ég færi áfram, að það myndi
einhver snúa sér við, þannig að
ég ætlaði í rauninni bara að velja
þann þjálfara sem myndi snúa
sér við. En þá snéru þrír sér við
og þá vandaðist málið aðeins. En
ég er alveg klár á því að ég hafi
valið hárrétt, það er bara þannig.
Það er frábært að vinna með
Sölku og liðið mitt er alveg
frábært. Þetta er búið að vera
mjög gaman. Maður vildi velja
rétt og ég er alveg handviss um
að ég hafi gert það.“
Sigvaldi er vongóður um að
þátttakan í keppninni eigi eftir
að skapa honum einhver tæki-
færi, hver sem úrslitin verða. „Ég
vona að fólk eigi eftir að hafa
samband þegar það er búið að
sjá hvers ég er megnugur.
Vonandi er fólk í tónlistar-
bransanum að fylgjast með
manni líka. Maður vonast eftir
að geta starfað í tónlist í fram-
tíðinni, alla vega til hliðar, og
vonandi sem aðalstarf. Maður
bara fylgir þessu og sér hverju
verður kastað að manni.“
Sem fyrr verður Sigvaldi með
gott stuðningslið í salnum á
föstudagskvöldið. Hann segist
verða mikið var við góðan
stuðning úr Skagafirði. „Það er
mitt heimahérað og maður
gleymir ekki uppruna sínum.
Mig langar að þakka vinnu-
veitanda mínum og öllum í
Skagafirði fyrir stuðninginn,
einnig fjölskyldunni og umburð-
arlyndri kærustu minni, það er
þeim að þakka að ég er ekki
farinn heim ennþá,“ sagði hann
að lokum.
Sigvaldi einbeittur í The Voice Ísland.
Malen Áskelsdótttir til vinstri, Sigvaldi og kærastan hans, Bergrún Sóla Áskelsdóttir
komu frá á Drangey Music Festival í sumar. MYND: ÓAB
„Spenntur, vongóður og þakklátur“
Sigvaldi Helgi Gunnarsson
Sigvaldi með systkinum sínum; Dagnýju og Jakobi. MYND: ÚR EINKASAFNI