Feykir - 03.12.2015, Page 8
8 46/2015
Skagfirðingar gerðu það
gott á Bikarmóti IFBB
Vaxtarrækt
Bikarmót IFBB í fitness,
vaxtarrækt og módelfitness fór
fram í nóvember. Um 90
keppendur kepptu á mótinu
sem fór fram í Háskólabíói,
þar á meðal voru tveir
Skagfirðingar sem komust á
verðlaunapall, þeir Gunnar
Stefán Pétursson og Elmar
Eysteinsson.
Keppt var í sex keppnisgreinum
og varð Gunnar Stefán Pétursson
frá Sauðárkróki bikarmeistari
unglinga í vaxtarrækt. Gunnar
er sonur Péturs Inga Björnssonar
og Regínu Jónu Gunnarsdóttur.
Elmar Eysteinsson frá Laufhóli
hafnaði í þriðja sæti í Fitness
karla. Elmar er sonur Eysteins
Steingrímssonar og Aldísar
Guðrúnar Axelsdóttur. Þess má
geta að unnusta Elmars, Aníta
Rós Aradóttir, sem gerði það
einnig gott á mótinu og varð
Gunnar Stefán Pétursson (t.v.) varð bikarmeistari unglinga í vaxtarrækt og Elmar
Eysteinsson varð í þriðja sæti í Fitness karla.
enginn meira við mér en hann.
Annars held ég mikið upp á ungu
Tindastólsleikmennina í körfunni,
áræðnir og ekki hræddir við neitt.
Leikmenn að mínu skapi.
Hvað gerir þú betur en allir aðrir á
þínu heimili? Flest sem ég geri, ég
er ekki látinn gera það sem ég geri
ekki betur en aðrir.
Hvert er snilldarverkið þitt í eld-
húsinu? Örugglega uppvaskið.
Hættulegasta helgarnammið?
Lakkrís og Nóa Rjómasúkkulaði.
Hvernig er eggið best? Spælt og
linsoðið með kavíar.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í
fari þínu? Veikleikarnir.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í
fari annarra? Óheiðarleiki.
Uppáhalds málsháttur eða til-
vitnun? Fátt er svo með öllu illt
að það boði ekki eitthvað gott. Þú
átt að hata að tapa en ekki tapa
lærdómnum af því að tapa.
Hver er elsta minningin sem þú átt?
Íbúðin í bílskúrnum sem við bjuggum
fyrst í ég, mamma og pabbi.
Hvaða teiknimyndapersóna höfðar
mest til þín? Mörgæsirnar frá Mada-
gaskar. Finnst alltaf skemmtilegast í
félagsskap með öðrum og á nokkra
svona hópa sem líkjast þeim. Helst
þó Ljóskan og Spilaklúbburinn
Þórunn sem og lærdómshópurinn
Kim.
Hvaða fræga manneskja mundir
Hvernig nemandi varstu? Afskap-
lega þægilegur, efast jafnvel um að
kennarar muni eftir mér...
Hvað er eftirminnilegast frá ferm-
ingardeginum? Hárgreiðslan
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú
yrðir stór? Atvinnumaður í knatt-
spyrnu.
Hvað hræðistu mest? Úff er
hræddur maður í eðli mínu og get
ekki gert upp á milli þeirra atburða
sem gætu gerst og ég hræðist mest.
En svo ég nefni eitthvað þá hræðist
ég stundum Kristbjörgu Kemp
deildarstjóra í Árskóla.
Besti ilmurinn? Ég elska ilminn
af góðum bakstri. Konuilmurinn er
góður en ég nota Code frá Armani
á kvöldin.
Hvað varstu að hlusta á þegar þú
fékkst bílprófið? Eins og með flest
annað í mínu fari þá á fólk örugglega
eftir að hrista hausinn þegar ég segi
frá þessu. Til skiptis hlustaði ég á
Pearl Jam, Celine Dion og Enyu.
Hvaða lag er líklegast að þú takir
í Kareókí? Listen To Your Heart með
Roxette ;o)
Hverju missirðu helst ekki af í
sjónvarpinu? Fótbolta og körfubolta.
Besta bíómyndin? Ég held að Forrest
Gump hafi vinningin á Braveheart og
Shawshank Redemtion.
Hvaða íþróttamanni hefurðu
mestar mætur á? Í dag er það
Gunnar Nelson. Það hreyfir
( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is
NAFN: Guðjón Örn Jóhannsson.
ÁRGANGUR: 1975, jafngamall Begga og Bohemian Rapsody.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Kvæntur Gilsaranum úr Tröð, Önnu Leu Gests-
dóttur, og á þrjár dætur með henni.
BÚSETA: Hólatún 2 Sauðárkróki.
HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALINN: Ég er sonur mömmu og
pabba sem koma frá Akranesi og Drangsnesi á Ströndum. Ég
er alinn upp á Suðurnesjum, nánar tiltekið í Garðinum, fram til
átta ára aldurs, og í Keflavík eftir það til 20 ára aldurs.
STARF / NÁM: Íþróttafræðingur með UEFA A knattspyrnuþjálfara-
réttindi. Er einnig menntaður húsamálari og má kalla mig svein
í þeirri grein. Ég starfa við áhugamálið mitt, íþróttir, kenni þær
í Árskóla og þjálfa knattspyrnu hjá Tindastóli. En aðalatvinna
mín í dag er verkefnastjórn Vinaliðaverkefnisins þar sem ég
þvælist um landið með Gesti samstarfsmanni mínum og fæ
fyrirmyndarkrakka í lið með okkur til að setja upp leikjastöðvar
í frímínútum á skólalóðinni og bjóða svo öllum að vera með.
Við vinnum svo í sameiningu að því að sporna gegn einelti.
HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Jólin og afmælisferðin til Englands þar sem
ég ætla að sjá þrjá fótboltaleiki með æskuvinum af Suður-
nesjunum.
Gaui
þú helst vilja vera? Brad Pitt eða
George Clooney af því að Anna Lea
er svo hrifin af þeim.
Hver er uppáhalds rithöfundurinn
þinn? Íslenskir: Arnaldur, Stefán
Máni. Erlendir: Jo Nesbo, Johan
Grisham
Orð eða frasi sem þú notar of
mikið? Hvar er Gestur?
Hver var mikilvægasta persóna
síðustu 100 ára að þínu mati? Það
hlýtur að vera Konni, hann er búin að
kenna öllum. Siggi Jóns fylgir honum
fast eftir.
Ef þú gætir farið til baka í tímann,
hvert færirðu? Ég færi líklega aftur
til 1996 til að velja annan lífstíl. Tæki
samt fjölskylduna með...
Hver væri titillinn á ævisögu þinni?
Þar sem Gestur vinur minn heldur því
fram við mig að heimaslóðir mínar
sé skítaplaeis þá myndi ég kannski
kalla mína sögu: „Úr öskunni í
eldinn.“
Framlenging:
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél
og réðir hvert hún færi, þá fær-
irðu... Las Vegas
Ef þú ættir að dvelja aleinn á eyði-
eyju, hvaða þrjá hluti tækirðu með
þér? Tennisbolta til að nudda mig,
blakbolta til að tala við og fót-bolta
til að leika mér við. Ef fjórði fengi að
koma með þá yrði það sólarvörn.
Nefndu eitthvað þrennt sem þér
finnst þú mega til að gera áður en
þú gefur upp öndina: Stýra fótbolta-
æfingu við boðlegar æfingaaðstæður
hjá félaginu mínu Tindastól. Renna
mér í vatnsrennibraut nýju sundlaug-
arinnar á Sauðárkróki og syngja
dúett með Ægi í splúnku nýju og vel
heppnuðu menningarhúsi á Sauðár-
króki.
bikarmeistari í módelfitness, á
einnig ættir að rekja til
Skagafjarðar. Hún er dóttir Ara
Sævars Michelsen, sonar Aage
Valtýrs Michelsen frá Sauðár-
króki. Auk þess að verða
bikarmeistari sigraði Aníta
heildarkeppnina á mótinu milli
sigurvegara í bikiniflokki og fór
því heim með „Overall
Champion“ bikarinn. /BÞ
Færðu endurhæfingu
glæsilegt hlaupabretti
Velunnarar Heilbrigðisstofnunarinnar
Nýlega barst endurhæfingu
Heilbrigðisstofnunarinnar
Sauðárkróki vegleg gjöf frá
velunnurum. Söfnuðu þeir
fyrir nýju hlaupabretti sem
nú hefur verið komið fyrir í
tækjasal, meðal annars með
basar og öðrum fjáröflunum.
Hópurinn samanstendur af
fólki sem reglulega nýtir sér
aðstöðuna í endurhæfingunni,
en þar er vel útbúin innisund-
laug, heitur pottur og lítill
æfingasalur, með ýmsum
tækjum til líkamsræktar. Not-
endur sem blaðamaður hitti að
máli voru almennt sammála
um að aðstaðan skipti sköpum
fyrir þá. „Þetta heldur manni
gangandi,“ eins og einn þeirra
komst að orði.
Fanney Ísfold Karlsdóttir,
sjúkraþjálfari við Heilbrigðis-
stofnunina, sagði að starfsmenn
þar væru óendanlega þakklátir
fyrir gjafmildi velunnaranna,
sem hefðu safnað fyrir þessu
glæsilega hlaupabretti. /KSE
Nokkrir fastagestir í sundlaug endurhæfingarinnar. Á bakkanum eru Fanney
Ísold Karlsdóttir og Sigrún Aadnegard. MYND: KSE