Feykir - 03.12.2015, Page 9
46/2015 9
Heilir og sælir lesendur góðir.
Í síðasta þætti spurði ég um höfund vísunnar
Ævinnar um sóknarsvið, sem þar birtist. Hef
nú fengið upplýsingar frá góðum hagyrðingi
og unnanda þessa þáttar úr Skagafirði sem
telur vísuna vera eftir mann sem á fyrstu
áratugum síðustu aldar var þekktur undir
nafninu Fornólfur. Efast ég ekki um að það sé
rétt.
Þegar ég fór að hugsa málið nánar mundi
ég eftir því að eitt sinn reyndar fyrir margt
löngu er ég dvaldi stóra gleðskaparhelgi í
Reykjavíkurhreppi var ég svo heppinn að
kynnast konu sem ég fékk að gista hjá í tvær
nætur. Þegar við skildum gaf hún mér lítið
kver sem í eru 100 vísur, og hefur það alla tíð
verið mikill fjársjóður í mínum huga. Er það
prentað í Ísafoldarprentsmiðju 1934.
Var það rétt munað hjá mér að í því
væru prentaðar eftirfarandi vísur undir
höfundarnafninu Fornólfur.
Stefni að þér darra-dríf
duga er best og þegja.
Annað hvort er þér ætlað líf
eða þá að deyja.
Æ er voðinn einhvers vís
um þótt snöggvast kyrri.
Óðar boðinn annar rís
óskaplegri en fyrri.
Hef nú reyndar fundið út að á bak við þetta
skáldaheiti mun hafa verið fræðimaðurinn dr.
Jón Þorkelsson.
Í þessu að mér finnst dýrmæta kveri er þessi
kunna vísa og sagt við birtingu hennar að alls
ekki sé hægt að segja um fyrir víst eftir hvern
hún er.
Við skulum ekki hafa hátt
hér er margt að ugga.
Ég hef heyrt í alla nátt
andardrátt á glugga.
Ein hringhenda sem mörgum er örugglega
kunn kemur hér úr þessu ágæta kveri, en
þar talið alls ekki hægt að vita hver höfundur
hennar er.
Veröld fláa sýnir sig
sífellt spáir hörðu,
flest öll stráin stinga mig
stór og smá á jörðu.
Hressum okkur þá næst með þessu heilræði
Benedikts Gíslasonar frá Hofteigi.
Það mun ekki ganga greitt
giftu þína að skapa,
ef þú vogar aldrei neitt
eða kannt að tapa.
Benedikt reynir að hughreysta þá sem ekki sjá
alltaf vonir sína rætast í næstu vísu.
Víst er ekki vanda að sjá
vonir sínar deyja,
en ég held menn óski þá
einna helst að þegja.
Vísnaþáttur 654
Þrátt fyrir þessa staðreynd mun Benedikt ekki
hafa talið rétt að láta slíkt andstreymi á sig fá
eftir þessari vísu hans að dæma.
Bera mun ég bjarta lund
böl þótt lífið geymi.
Aldrei nema stutta stund
stend ég við í heimi.
Það mun hafa verið Jón Jónsson frá Hvoli sem
orti svo magnaða hringhendu eftir að hafa
virt fyrir sér kvittun fyrir rándýrri húsaleigu.
Ljótt er vaf um línurnar
liggja í kafi dáðir,
allir úr drafi ágirndar
eru stafir skráðir.
Ekki þarf að líða langt fram á vetur þegar fara
að birtast alltof mörg spor eftir þann varg er
við sauðfjárbændur óttumst hvað mest. Sá
kunni læknir Hjálmar Freysteinsson lýsir svo
reynslu sinni í næstu limru.
Á leið heim af mannanna móti
mætti ég tófu á grjóti.
Þar glennti hún sig
og gaggaði á mig.
Hæ, kemurðu í kapphlaup ljóti?
Nafni hans Davíð Hjálmar fékk af þessu tilefni
ágætt yrkisefni.
Hann er ekki genginn af göflum
þótt göslist í urðum og sköflum
saddur og hýr
og sjái einhver dýr
-en nú er hann nafni á töflum.
Eftir þetta ágæta limrugrín er gott að rifja
upp þessa sönnu haustvísu frá fjallaskáldinu.
Fölnar rós og bliknar blað
á birkigreinum,
húmar eins og haustar að
í hjartans leynum.
Kannski finnst ykkur góðu vinir að full þungt
sé að verða yfir þessum þætti en mig langar
samt til að birta hér eina vísu enn sem kom
allt í einu í huga minn í dag og ég hef kunnað
lengi. Minnir að hún sé eftir hinn magnaða
snilling Pál Ólafsson.
Mitt er ævi komið kvöld.
Kvíði ég engan veginn,
að kveðja þessa kuldaöld
og koma hinu megin.
Gefum okkur öllum von um bjarta tíma
þrátt fyrir skammdegismyrkur nú um sinn.
Gleðjumst í lok þáttar með þessari fallegu
bjartsýnisvísu mannvinarins góða frá
Skagaströnd, Kristjáns Hjartarson.
Drottning lífs á lofti bláu
leiðir yl um strönd og voga.
Brosir móti heiði háu
húnvetnsk jörð í sólarloga.
Verið þar með sæl að sinni.
/ Guðmundur
Valtýsson
Eiríksstöðum,
541 Blönduósi
Sími 452 7154
( GUÐMUNDUR VALTÝSSON ) kristin@feykir.is
Elsku Skagafjörður, ég er
svo óendanlega þakklát
fyrir að hafa alist upp „út
á landi“ eins og sumir
segja, að koma úr svona
litlu en sterku bæjarfélagi
er ólýsanlegt. Ég flutti að
heiman 16 ára gömul til
Akureyrar til að stunda
nám við Menntaskólann
á Akureyri og svo 20 ára
flutti ég til Hafnarfjarðar
og hóf nám við Háskóla
Íslands. Einhvernvegin
sama hvar maður er
eða hvert maður fer þá
getur maður alltaf rekist
á Skagfirðinga og það
klikkar aldrei, alltaf er
manni heilsað.
Í nútíma samfélagi snýst
allt um sambönd, hvort
sem það er á vinnu- eða
leigumarkaðnum eða
einhverju öðru. Það skiptir
öllu máli að hafa góð
sambönd og þá kemur sér
vel að vera frá svona þéttu
og góðu bæjarfélagi. Að
finna sér íbúð eða vinnu á
höfuðborgarsvæðinu getur
verið mjög erfitt, eiginlega
bara virkilega erfitt þ.e.
góða íbúð á sanngjörnu
leiguverði eða vel borgaða
Rakel Rós Ágústsdóttir frá Sauðárkróki skrifar
Heima er best!
ÁSKORENDAPENNINN
UMSJÓN kristin@feykir.is
vinnu. Þá kemur sér vel að
þekkja einhvern sem þekkir
einhvern, samböndin sko!
Ég fékk bæði íbúðina sem ég
leigi og vinnuna með skóla,
í gegnum sambönd. Einhvers-
staðar las ég líka að yfirmenn
sækjast frekar eftir því að
ráða fólk utan af landi.
Einnig er það annað með
það að alast upp í svona
litlu samfélagi, það er að
það er alveg ótrúlegt hvað
maður finnur fyrir mikilli
samstöðu. Það þekkja allir
alla og alltaf hægt að treysta
á náungan. Vissulega hefur
það sína kosti og galla að
allir þekki alla en sama hvað
bjátar á, þá standa svona
sveitarfélög þétt saman.
Það skiptir einhvernvegin
ekki máli hvort það sé
stuðningur við íþróttafólkið
okkar, tónlistarfólk eða
bara annað fólk sem
skarar fram úr á einhvern
hátt, eitt sameinar þau öll
og það er Skagafjörður.
Til dæmis, Axel Kárason
með körfuboltalandsliðinu,
Þóranna Sigurjónsdóttir
með landsliðinu í frjálsum
íþróttum, hljómsveitin Úlfur
Úlfur eða Ellert og Sigvaldi í
The Voice og svo margir fleiri.
Ég vil einnig koma inná
annað, en það er þegar
eitthvað kemur fyrir, slys,
veikindi eða fráföll. Allir eru
tilbúnir að leggjast á eitt og
aðstoða viðkomandi, með
styrkjum, kökubösurum
eða á annan hátt. Sjálf
hef ég og mín fjölskylda
reynslu af þessu og erum við
óendanlega þakklát fyrir allt
og alla. Allstaðar þar sem
maður kemur, hvort sem það
í klippingu, í bankanum eða
Skaffó, þá er spurt hvernig
hafi þið það, er eitthvað
sem ég get gert fyrir ykkur?
Þetta er ómetanlegt. Þetta er
ekki sjálfsagt og hef ég ekki
enn tekið eftir svona þéttu
samfélagi annars staðar en
kannski er alltaf allt best
heima?
- - - - -
Rakel Rós skorar á
Perlu Rós Sæmundsdóttir
að taka við pennanum.
Samið við
nýtt hesta-
mannafélag
Uppbygging reiðvega
Drög að samningi á milli
Sveitarfélagsins Skaga-
fjarðar og Flugu, nýstofnaðs
sameinaðs hestamanna-
félags í Skagafirði, um
uppbyggingu reiðvega í
sveitarfélaginu var lagður
fyrir Umhverfis- og sam-
göngunefnd sl. föstudag. Um
er að ræða samning sem
gildir fyrir árin 2016 til
2020.
Að sögn Indriða Þ. Einars-
sonar mun hið nýja hesta-
mannafélag, sem tekur til
starfa í byrjun næsta árs, í
samvinnu við veitu- og fram-
kvæmdasvið, ákveða í hvaða
reiðvegi í sveitarfélaginu fjár-
mununum verður varið, í
samræmi við aðalskipulag
sveitarfélagsins. Nefndin sam-
þykkti samninginn og í
fundargerð segir að tilvonandi
uppbyggingu reiðvega um
sveitarfélagið sé fagnað. /BÞ