Feykir - 03.12.2015, Síða 10
10 46/2015
Fyrirmyndarfrumkvöðlar
á Norðurlandi vestra
Stiklað yfir þáttaröð um frumkvöðla sem nú er lokið
Á haustdögum fóru af stað þættir
um frumkvöðlastarf á Norðurlandi
vestra á Feyki.is en um var að ræða
samstarfsverkefni Feykis og Skottu
Film. Rætt var við fulltrúa sex
fyrirtækja í landshlutanum og sl.
laugardag var þeim boðið í spjallþátt
í beinni útsendingu stúdíó Skottu
Film á Sauðárkróki. Útsendingin var
sú fyrsta með nýjum útsendingar-
búnaði Skottu Film.
Markmiðið með þáttagerðinni var að
beina kastljósinu að því fjölbreytta og góða
starfi sem unnið er í Norðurlandi vestra og
um leið stuðla að jákvæðri umræðu um
landshlutann. Sex fyrirtæki voru til um-
fjöllunar; Gandur, Skrautmen, Iceprotein,
Leikjamiðstöðin Kollafossi, Floating
Fender Chair og Ísgel.
1. ÞÁTTUR
Gandur framleiðir
smyrsli úr minkafitu
Fyrirtækið Gandur er staðsett á bænum
Syðra-Skörðugili í Skagafirði. Þar eru
framleidd smyrsli úr minkafitu og er nú
þegar komin á markað vörulína með
þremur smyrslum og leðurfeiti, en
vörurnar henta bæði húsdýrum og
mönnum. Hugmyndin hafði gerjast lengi
áður en hún varð að veruleika, enda hafa
Skörðugilsbændur lengi vitað um
græðandi áhrif minkafitunnar. Ásdís
Sigurjónsdóttir fór upphaflega að prófa sig
áfram með íblöndun íslenskra jurta við
minkafituna, á eldavélinni heima hjá sér.
Síðar komu að þessu sonur hennar Einar
Einarsson og kona hans Sólborg Una
Pálsdóttir. Boltinn fór svo að rúlla þegar
góður styrkur fékkst frá Tækniþróunar-
sjóði og þau hófu samstarf við Matís.
Í dag er verið að stækka aðstöðuna
fyrir framleiðsluna. Mikil áhersla er lögð á
hreinleika og íslenskan uppruna vörunn-
ar, auk þess að nýta sem best afurð, sem
annars væri hent.
2. ÞÁTTUR
Skrautmen framleiðir
handunna skartgripi
Skagfirska handverksfyrirtækið Skraut-
men er rekið af Lilju Gunnlaugsdóttur.
Lilja hannar og framleiðir handunna
skartgripi úr plexígleri, trékúlum og roði.
Upphaf framleiðslunnar má rekja til þess
þegar Lilja byrjaði að prófa sig áfram og
föndra ýmsa muni í Fablab smiðjunni á
Sauðárkróki, þar sem eiginmaður hennar
Valur Valsson starfar. Í fyrstu voru það
jólagjafir og ýmsar tækifærisgjafir til
fjölskyldu og vina, en sífellt fleiri óskuðu
eftir því að fá að kaupa munina af henni.
Árið 2013 tók Lilja tók þá ákvörðun að
helga sig alfarið handverkinu, sagði starfi
sínu lausu sem sérfræðingur í gagna-
greiningu hjá Capacent og stofnaði fyrir-
tækið Skrautmen. Vinnustofa Skrautmena
er staðsett á heimili Lilju og Vals í Skaga-
firði, þar sem allar vörurnar eru útbúnar.
3. ÞÁTTUR
Leikjamiðstöðin Kollafossi
býður tölvuleikjahönnuðum
til dvalar
Tölvuleikja- og hljóðhönnuðurinn
Jóhannes Gunnar Þorsteinsson rekur
tölvuleikjamiðstöð á Kollafossi í Miðfirði,
en hann er alinn upp á næsta bæ. Sveitin
hefur alltaf togað sterkt í hann og með
fyrirtækinu sá hann sér leik á borð að
sameina ólíka heima sveitalífsins og
tölvugeirans.
Hugmyndin kviknaði þegar hann fór á
„Game jam“, eða „leikja djamm“ með
öðrum tölvuleikjahönnuðum í Dan-
mörku, sem felst í því að margir búa
saman til tölvuleik á afmörkuðum tíma.
Þegar þangað var komið hugsaði Jóhannes
með sér að hann gæti skapað einstakt
umhverfi fyrir slíka viðburði fjarri ys og
þys borgarlífsins. Hann bauð upp á fyrsta
Hópurinn sem tók þátt í lokaþættinum. Efri röð frá vinstri: Jóhannes G. Þorsteinsson, Árni Gunnarsson,
Hólmfríður Sveinsdóttir, Sólborg Una Pálsdóttir, Lilja Gunnlaugsdóttir og Einar Daníel Karlsson. Neðri röð
frá vinstri: Laufey Skúladóttir, Unnur Valborg Hilmarsdóttir, Berglind Þorsteinsdóttir, Kristín S. Einarsdóttir
og Sólveig Olga Sigurðardóttir. MYND: EINAR BESSI ÞÓRÓLFSSON
„leikja djammið“, árið 2014 og komust
talsvert færri að en vildu og hefur áhuginn
vaxið síðan. Í framhaldinu stofnaði hann
Kollafoss Game dev Residency, þar sem
tölvuleikjahönnuðum er boðið til dvalar
nokkrar vikur í senn til að vinna að sköpun
tölvuleikja í sveitasælunni.
4. ÞÁTTUR
Iceprótein framleiðir
fæðubótarefni úr þurrkuðum
þorskpróteinum
Iceprótein var stofnað árið 2005 af
starfsmönnum Rannsóknarstofnunar
fiskiðnaðarins, með það að markmiði að
auka nýtingu aflans og gera hann verð-
mætari. Verksmiðjan var flutt frá Akranesi
á Sauðárkrók árið 2007, í húsnæði Fisk
Seafood sem í framhaldinu keypti sig inn í
Iceprótein og er fyrirtækið alfarið í þeirra
eigu í dag. Starfsemin er tvíþætt; prótein-
framleiðslan og þróun í kringum hana og
stuðningur við matvæla- og fóðurfram-
leiðslu innan KS.
Í framleiðsluferlinu er líkt er eftir
niðurbroti ensíma í meltingarvegi, með
það að markmiði, að ná 100% nýtingu á
þeim afskurði sem til fellur. Eftir áramót er
áformað að setja á markað þrjár vöru-
tegundir fæðubótaefna, úr þurrkuðum
þorskpróteinum sem hylkjuð verða hjá
Vilko á Blönduósi. Framkvæmdastjóri
Iceprótein er Hólmfríður Sveinsdóttir en
auk hennar vinna fimm aðrir háskóla-
menntaðir starfsmenn hjá fyrirtækinu.
5. ÞÁTTUR
Floating Fender Chair
hanna stóla úr flotholtum
Verkefnið Floating Fender Chair er
sprottið úr samstarfi við hönnun veitinga-
staðarins Sjávarborgar á Hvammstanga,
þar sem rýnt var í umhverfið við höfnina
og innblástur sóttur til hafsins. Þegar kom
að því að gera barstóla sem myndu henta
vel á veitingastaðinn kviknaði hugmyndin
að Floating Fender Chair, stólum sem
gerðir eru úr flotholtum sem alla jafna eru
á milli skips og bryggju.
Samstarfsaðilarnir eru Einar Daníel
Karlsson smiður, Ágúst Þorbjörnsson
málmsmiður og arkitektarnir Hólmfríður
Jónsdóttir og Hrefna Björg Þorsteinsdóttir.
Stefnt er að því að setja á markað þrjár
gerðir stóla; barstól, rólustól og jógastól.
Um er að ræða hágæða hönnunarvöru og
verður hún markaðssett sem slík, innan
sem utan landssteinanna. Unnið er að
gerð fyrstu prótótýpunnar, sem vonir
standa til að verði tilbúin til sýningar á
Hönnunarmars 2015. Fram-leiðslan mun
öll fara fram á Hvammstanga þar sem
hugmyndin að vörunni er sprottin.
6. ÞÁTTUR
Ísgel framleiðir gelmottur
til hita- og kælingar
Ísgel var stofnað árið 1999 en núverandi
eigendur eru, þeir Zophanías Ari Lárusson
og Gunnar K. Ólafsson. Í dag er fram-
leiðslan alfarið á Blönduósi og starfa sex
manns við fyrirtækið, en upphaflega var
aðeins einn starfsmaður. Aðalframleiðslu-
vara Ísgels eru mottur með geli, sem
notaðar eru til kælingar á ferskum fiski, og
hafa þær reynst vel. Þá framleiðir fyrir-
tækið ýmsar heilsuvörur, sem og kæli-
plötur fyrir veitingahús. Salan hefur vaxið
ár frá ári. Fyrir fáeinum misserum fór Ísgel
í markaðsherferð, með styrk frá Nora og
Vaxtarsamningi Nlv, þar sem gerð var
tilraun með kælingu á fiski og honum
fylgt eftir frá Færeyjum til Skotlands.
Helsta verkefni fyrirtækisins um þessar
mundir er að reyna að auka útflutning
vörunnar og einnig að auka sjálfvirkni við
að taka motturnar upp og setja í kassana
með fiskinum.
Mikilvægt að fólk geti látið
drauma sína rætast á
þeim stað það býr
Sem fyrr segir var fulltrúum fyrirtækjanna
boðið til lokaþáttar Fyrirmyndarfrum-
kvöðla sem fór fram um hádegisbil sl.
laugardag en því miður komst ekki fulltrúi
frá Ísgel. Þær Laufey Kristín Skúladóttir
verkefnastjóri hjá Sveitarfélaginu Skaga-
firði, Unnur Valborg Hilmarsdóttir stjórn-
endamarkþjálfari og oddviti Húnaþings
vestra voru gestir þáttarins. Þær áttu ýmis
góð ráð í pokahorninu handa frumkvöðl-
unum. Lögðu þær meðal annars áherslu á
að frumkvöðlar einbeiti sér að því sem
þeir eru góðir í og átti sig á að maður er
ekki sérfræðingur í öllu. Oft geti verið
heppilegt að fá verktaka, sérstaka starfs-
menn eða samstarfsaðila í þætti eins og
markaðssetningu, bókhald og verðlagn-
ingu, slíkt sé fljótt að borga sig miðað við
tímann sem tæki sig í að setja sig inn í slíka
hluti og vinna þá sjálfur.
Einnig kom fram að gott væri að vera
tímanlega í markaðssetningu þegar komið
væri með nýja vöru á markaðinn, sem þó
gæti verið erfitt varðandi hönnunarvernd.
Þá komu ábendingar um að margar
hugmyndanna sem kynntar voru í frum-
kvöðlaþáttunum hefðu góða stækkunar-
möguleika og þær mætti jafnvel hugsa
töluvert stærra en þegar hefði verið gert.
Jafnframt bárust í tal möguleikar til
klasasamstarfs og styrkja úr hinum ýmsu
sjóðum sem stuðla að atvinnuuppbygg-
ingu.
Hugmyndir frumkvöðlanna fengu
almennt mjög góðar umsagnir hjá þeim
Laufey og Unni Valborgu. Þær ræddu
meðal annars um mikilvægi þess að fólk
gæti látið drauma sína rætast á þeim stað
það býr. Einnig hvöttu þær frumkvöðla til
að setja sjálfa sig og söguna í forgrunn
varðandi kynningu á hugmyndum sínum.
Verkefnin sem til umfjöllunar voru í
þáttunum hafa öll verið styrkt af Sam-
tökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra
með einum eða öðrum hætti. Í myndverið
kom Sólveig Olga Sigurðardóttir frá SSNV
og færði frumkvöðlunum blóm.
Frumkvöðlunum er þakkað fyrir
þátttöku í þáttunum og óskað velfarnaðar
með verkefni sín. Sérstakar þakkir fá
ráðgjafarnir, Unnur Valborg, Laufey og
Þórður Erlingsson framkvæmdastjóri og
eigandi InExhange, sem til stóð að yrði
með í lokaþættinum í gegnum Skype en
varð ekki úr vegna tæknilegra vandamála.
Loks er Árna Gunnarssyni hjá Skotta Film
þakkað gott samstarf í þessari skemmti-
legu frumraun Feykis og Skottu.
Þættirnir eru allir aðgengilegir á Feykir.is.
UMSJÓN
Berglind Þorsteinsdóttir og
Kristín Sigurrós Einarsdóttir