Feykir - 03.12.2015, Side 11
46/2015 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautirnar gæti kíkt á
myndbandið við Last Christmas á YouTube...
Spakmæli vikunnar
Hluti þekkingarinnar er í því fólginn að vita ekkert um þá hluti, sem
eru ekki þess virði að vita nokkuð um. - Krates
Sudoku
FEYKIFÍN AFÞREYING oli@feykir.is
Vissirðu að...
ÓTRÚLEGT – EN KANNSKI SATT
... um 40% vinnandi fólks í Amsterdam fer hjólandi í vinnuna?
... þú blikkar augunum ríflega 4.200.000 sinnum á ári?
... að meðal kona notar um 2,7 kíló af varalit á ævinni?
... sápukúla er 10 þúsund sinnum þynnri en mannshár?
... armbandsúrið var fundið upp árið 1904?
... geimfarar geta verið allt að 5 sm hærri þegar þeir koma aftur
til jarðar?
Hahahahaha ... hehe ...
Hvað sagði ljóskan þegar hún sá Cheerios hringina?
- Nei, sko, kleinuhringsfræ.
Krossgáta
Feykir spyr...
Ertu búin
að kaupa
jólagjafirnar?
Spurt á Facebook
UMSJÓN siggag@nyprent.is
saman við, saltið, piprið og
múskat eftir smekk, setjið í
fallega skál eða á fat og
smakelijk eten, eða verði
ykkur að góðu.
Hörður og Jessie skora á Vigdísi
og Ísólf á Lækjarmóti.
Grænkálskartöflustappa
að hætti Hollendinga
Hollensk
grænkálskartöflustappa
(Boerenkool stamppot)
FYRIR FJÓRA
1350 g kartöflur
2 laukar
1 lárviðarlauf
500 g grænkál
salt, pipar og múskat eftir smekk
500 g reykt pylsa (bjúga,
medisterpylsa eða annað)
120 ml mjólk
2 msk smjör
Aðferð:
1. Afhýðið og skerið kartöflur í
teninga og saxið laukinn.
2. Skolið grænkál, snyrtið það til
og skerið niður.
3. Setjið kartöflur, lauk, lár-
viðarlauf, örlítið af salti í 3 l
pott, setjið vatn út í og látið
það rétt fljóta yfir. Látið
suðuna koma upp, setjið lok
yfir og látið malla í 25
mínútur.
4. Gufusjóðið pylsuna á meðan í
um 20 mínútur og skerið
hana í sneiðar.
5. Fjarlægið lárviðarlaufið, látið
vatnið renna af grænmetinu
og stappið það svo í mauk.
Bætið mjólk og smjöri saman
við grænmetið og gerið að
grænmetisstöppu.
6. Hrærið pylsusneiðunum
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN berglind@feykir.is
Matgæðingar vikunnar eru
Jessie Huijberts og Hörður Óli
Sæmundsson í Gröf,
Húnaþingi vestra. Jessie á rætur að rekja til Hollands og ætla þau
því að bjóða upp á hollenska grænkálskartöflustappu, sem Jessie
segir í uppáhaldi hjá hverju Hollendingi.
„Ef þú spyrð Hollending hvaða rétt hann telji vera mest hollenskan
af öllum hollenskum réttum mun hann sjálfsagt svara um hæl
Stamppot. Stamppot er grænmetisstappa gerð úr kartöflum og öðru
rótargrænmeti eins og næpum eða steinseljurót eða öðru grænmeti.
Ef orðið er þýtt beint þýðir það stappaður pottur og vísar til þess að
grænmetið er stappað í mauk. Stamppot er gjarnan borðað með
reyktri pylsu sem nefnist rookworst. Flæmskir Belgar kalla réttinn
stoemp. Boerenkool eða bændakál er það sem er nefnt á ensku kale
eða grænkál á íslensku,“ segir Jessie um réttinn.
Hörður og Jessie matreiða
„Ég er langt komin með
það, á eftir nokkrar
skemmtilegar.“
Sigrún Heiða Pétursdóttir
„Þetta er svona allt í farvegi,
sumar bý ég til, aðrar þarf
að kaupa, en ég er búin að
ákveða allt.“
Hrafnhildur Viðarsdóttir
„Já, er búin að kaupa
flest allar jólagjafir“
Særós Gunnlaugsdóttir
Jessie og Hörður Óli, ásamt hundinum Kviku,
fimm dögum áður en dóttir þeirra kom í heiminn sl. haust. MYND: ÚR EINKASAFNI
„Já, næstum því,
á tvær eftir.“
Lilja Gunnlaugsdóttir
Í myndatexta með viðtali við
Sigurfinn Jónsson á Sauðárkróki
slæddist vitlaust nafn í mynda-
texta þar sem stóð Elmar Örn
Jónsson en átti að vera Ómar
Örn Jónsson, Einnig má bæta
því við sem ekki kom fram í
viðtalinu að Pétur H. Ólafsson
frá Sauðárkróki er sá veiðifélagi
sem Sigurfinnur hefur veitt hvað
mest með í gegnum tíðina.
/KSE
Leiðrétting
Jólablað Feykis