Feykir - 04.05.2016, Side 3
17/2016 3
www.skagafjordur.is
Auglýsing um skipulagslýsingu
vegna deiliskipulags
Hegranesþingstaðar í Skagafirði
Gerð hefur verið skipulagslýsing vegna fyrirhugaðs deiliskipulags fyrir
Hegranesþingstað í landi Garðs í Hegranesi. Skipulagslýsingin gerir ráð fyrir nýju
deiliskipulagi fyrir hinn forna þingstað og nánasta umhverfi, svæðið er í dag lítið
afmarkað. Skipulagssvæðið er um 12,5 ha að stærð.
Framangreind skipulagslýsing var samþykkt á fundi Skipulags- og byggingarnefndar þann 4.
desember 2015, staðfest á fundi sveitarstjórnar þann 9. desember 2015.
Skipulagslýsingin er aðgengileg á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar www.skagafjordur.
is og til sýnis í Ráðhúsinu við Skagfirðingabraut 17-21 frá 29. apríl til 25. maí 2016.
Skriflegum ábendingum við skipulagslýsinguna skal skila til skipulags – og byggingarfulltrúa í
Ráðhúsinu við Skagfirðingabraut eigi síðar en 25. maí 2016.
Sauðárkróki 27. apríl 2016
Jón Örn Berndsen skipulags- og byggingarfulltrúi
FRÁ HEILBRIGÐISSTOFNUNINNI SAUÐÁRKRÓKI
Tímapantanir í síma 455 4022
9. OG 10 MAÍ
Sigurður Albertsson, alm. skurðlæknir
27. MAÍ
Haraldur Hauksson, alm/æðaskurðlæknir
Sérfræðikomur í maí
Feykiflottur
Liggurðu á frétt? Áttu skemmtilega
mynd sem gaman væri að birta í Feyki?
Hafðu samband > feykir@feykir.is
Sumarið í CrossFit 550
Heitt jóga
Tímarnir verða í CrossFit 550, salurinn verður hitaður
upp til að framkalla kjöraðstæður fyrir iðkun á heitu jóga.
Hádegistímar kl. 12:00 – 13:00 á þriðjudögum og fimmtudögum
og kvöldtími kl. 20:00 á miðvikudögum í júní.
Kennari verður Daníel Þórarinsson.
Í þessum tímum verður Absolute-serían kennd, en hún er kennd
við Absolute Yoga Academy skólann sem nýtur mikilla vinsælda á
heimsvísu og er einn stærsti og virtasti jógakennaraskóli heims.
Í seríunni eru 50 fremur hefðbundnar Hatha-jógastöður sem nánast
allar eru framkvæmdar í kyrrstöðu og því hentar þessi sería
sérstaklega vel fyrir byrjendur.
Í boði er að skrá sig í heilt námskeið, alls 12 tímar á 16. 800 kr.
(1. 400 kr. hver tími) eða í stakan tíma á 1. 600 kr.
Jóga dagskráin í júlí verður svo auglýst síðar.
Krakka - CrossFit !!!
Ætlum að bjóða krökkum á aldrinum 9-12 ára að mæta
í sérstaka Krakka CrossFit tíma á laugardögum
frá og með 21. maí.
9-10 ára kl. 11:30
11-12 ára kl. 13:00
Aðal áherslan verður að kenna þeim réttu tökin og hafa gaman saman.
Námskeiðið verður kennt sex laugardaga í um 60 mín í senn
og kostar 3500 kr. á barn.
Þjálfarar verða Erna Rut og Guðmundur Helgi
ásamt Braga Erni, dyggum aðstoðarmanni!
Sumardíll í CrossFit 550 !!
* Sumarkort frá 1. júní – 31. ágúst á 17. 900 kr.
* Grunnnámskeið 30. maí + Sumarkort á 22. 900 kr.
Breytingar á tímatöflu fyrir sumarið!
* Við bætum við tímum kl. 16:15 alla daga.
- Sjá tímatöflu á heimasíðu. Þessar breytingar taka gildi 1. júní
CrossFit 550 Borgarflöt 5 550 Sauðárkrókur www.crossfit550.is crossfit550@crossfit550.is
Skráning á bæði jóganámskeiðið og krakkanámskeiðin fer fram á heimasíðunni
okkar www.crossfit550.is en fyrir frekari upplýsingar þá má hafa samband
í gegnum crossfit550@crossfit550.is
Life is all about facing
new challenges
Frábær
þátttaka í
afmælis-
krossgátunni
Feykir
Metfjöldi innsendra lausna
barst vegna afmæliskross-
gátu Feykis sem birtist í
15. tölublaði. Feykir þakkar
þátttökuna og góðar
afmæliskveðjur sem bárust
með lausnunum.
Eftirfarandi vinningshafar
voru dregnir út:
Tveir miðar á leikritið
Fullkomið brúðkaup:
Bryndís Óladóttir
Austurgötu 16
565 Hofsósi
Geisladiskur Gísla Þórs
Ólafssonar, Gillon:
Elín Jónsdóttir
Raftahlíð 75
550 Sauðárkróki
Geisladiskur Karlakórsins
Lóuþræla, Senn kemur vor:
Sigríður Guðmundsdóttir
Hlaðhömrum 2, íbúð 101
270 Mosfellsbær
Leikhúsmiðanna má vitja í
miðasölunni í Félagsheimilinu
Bifröst á Sauðárkróki. Aðrir
vinningar verða sendir heim
til vinningshafa í pósti.
/KSE
Kynning um borð í
flugvélum Icelandair
Austur-Húnavatnssýsla
Næstu þrjú árin verður
Austur-Húnavatnssýsla kynnt í
sjónvarpsþáttunum Unique
Iceland sem sýndir eru um
borð í flugvélum Icelandair.
Blönduósbær og
Húnavatnshreppur hafa gert
samning við Icelandair um
gerð og birtingu kynningarefnis
í markaðskerfi flugfélagsins.
Frá þessu er greint á vefnum
Húnahornið.
Samningurinn er til þriggja ára
og verður kynningarefnið
einnig á vefsíðu og í fréttablaði
Icelandair. Tökulið frá Sagafilm
hefur nú þegar tekið upp efni úr
sveitarfélögunum sem notað
verður í kynninguna. Icelandair
hefur framleitt sjónvarpsþætt-
ina Unique Iceland síðan árið
2011 í samráði við markaðs-
skrifstofur og ferðaþjónustu-
aðila á Íslandi. Þættinum er
fyrst og fremst ætlað að selja
áfangastaðinn Ísland og um leið
að skemmta, fræða og upplýsa
ferðamenn um land og þjóð.
Arnar Þór Sævarsson
bæjarstjóri á Blönduósi segir í
samtali við Húnahornið að
markmiðið með samningnum
sé fyrst og fremst að vekja
athygli á svæðinu. „Við höfum í
auknum mæli verið að færa
okkur yfir í aðra miðla en
prentmiðla til að vekja athygli á
okkur eins og samfélagsmiðla
og netmiðla. Ferðaþjónusta er
sífellt að vaxa hjá okkur. Fleiri
gististaðir að opna og svo getum
við tekið við töluvert fleiri
ferðamönnum áður en menn
fara að verða varir við átroðning.
Þannig að við eigum mikið
inni,“ segir Arnar Þór í viðtali á
Húnahorninu. /KSE