Fréttablaðið - 14.05.2018, Síða 12

Fréttablaðið - 14.05.2018, Síða 12
Hetjan sem varð að skúrki á einum vetri Vinsældir Antonio Conte í Lundúnum dvínuðu ansi hratt en ári eftir að hafa stýrt Chelsea til sigurs í ensku úrvalsdeildinni verður hann líklegast rekinn á næstu dögumeftir að hafa mistekist að ná sæti í Meistaradeild Evrópu. Hann getur enn bjargað árinu með bikarmeistaratitli en það dugir ekki til í London. fótbolti Ef það var ekki ljóst fyrir helgina hvort Antonio Conte yrði áfram með Chelsea hlýtur tapið gegn Newcastle um helgina að hafa verið síðasti naglinn í líkkistu hans sem þjálfari liðsins. Í Lundúnum er ekki mikil þolin- mæði ef árangur næst ekki enda hefur Chelsea verið svo gott sem í fastaáskrift að Meistaradeild Evrópu, sterkustu deild heims, undanfarin fimmtán ár. Verður næsti vetur þá annar veturinn sem Chelsea verður ekki með í Meistara- deildinni af þeim fimmtán árum sem eru liðin síðan Roman Abramo- vich keypti félagið árið 2003 en Jose Mourinho fékk eftirminnilega að fjúka um mitt tímabil þegar Chelsea hafnaði í 10. sætinu fyrir tveimur árum. Stormasamt samband Antonio Conte virtist hafa breytt hugsanagangi annarra knattspyrnu- stjóra fyrir einu ári. Undir hans stjórn valtaði Chelsea yfir andstæð- inga sína með 3-4-3 leikkerfinu sem fleiri og fleiri stjórar reyndu að nýta sér í deildinni. Eftir tvo tapleiki um haustið vann Chelsea 27 af næstu 32 leikjum og tók í þeim 83 stig af 96 mögulegum. Var hann kosinn þjálfari ársins af leikmönnum og öðrum þjálfurum deildarinnar og fékk hann nýjan samning með launahækkun. Við tók sumar þar sem fjölmiðlar töluðu ítrekað um óánægju hans hjá Chel- sea í ljósi þess að hann fengi ekki Leikmaður helgarinnar Erik Lamela minnti rækilega á sig í bráðfjörugum 5-4 sigri Totten- ham á Leicester um helgina í lokaleik Tottenham á Wembley áður en liðið færir sig um set á nýja heimavöllinn sem verður opnaður í haust. Gestirnir frá Leicester komust 3-1 yfir með marki Kelechi Iheanacho í upphafi seinni hálfleiks en þá var komið að þætti Lamela. Minnkaði hann strax muninn og nokkrum mínútum síðar fór skot hans í netið af Christan Fuchs og var hann búinn að jafna. Hann lét ekki stöðva sig þar en skoraði annað mark sitt og fjórða mark Tottenham stuttu síðar og hann átti því stóran hlut í þremur mörkum Tottenham um helgina. Er það fín áminning fyrir Jorge Sampaoli, þjálfara Argentínu fyrir Heimsmeistaramótið í sumar en Lamela hefur ekki leikið fyrir argent- ínska landsliðið í tæp tvö ár. Á hann 22 leiki að baki og gæti enn laumast með í flugvélina til Rússlands. Lamela er sjálfur eflaust bara feginn að vera kominn aftur út á völl en erfið meiðsli á mjöðm héldu honum frá vellinum í rúmt ár. Stóru málin eftir helgina í enska boltanum Stærstu úrslitin Liverpool kom sér í vand- ræði með því að hiksta í deildinni undanfarnar vikur en liðið var með örlögin í eigin höndum. Ekkert kæruleysi var í boði á An- field og settu heimamenn strax í fluggír og hefðu auðveldlega getað leitt með fjórum í hálfleik. Þeir þurftu á sigri að halda og náðu í hann. Hvað kom á óvart? Chelsea átti enn veika von um að bjarga sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta ári en til þess þurftu þeir að vinna á St. James Park og treysta á að Liverpool myndi misstíga sig. Liverpool þurfti litlar áhyggjur að hafa af því þar sem Chelsea steinlá gegn Newcastle. Mestu vonbrigðin Swansea þurfti á krafta- verki að halda til að bjarga sæti sínu en þeir fengu ískalda Stoke-menn í heim- sókn í lokaumferðinni. Swansea komst yfir snemma leiks en svo virtist sem menn hefðu misst alla von því Stoke sneri leiknum sér í hag og vann fyrsta sigur sinn í tæpa fjóra mánuði. Enska úrvalsdeildin Lokastaðan Úrslit 38. umferðar 2017-18 Burnley - Bournemouth 1-3 1-0 Chris Wood (39.), 1-1 Johsua King (74.), 1-2 Callum Wilson (93.). C. Palace - West Brom 2-0 1-0 Wilfried Zaha (70.), 2-0 Patrick Van Aan- holt (78.) Huddersfield - Arsenal 0-1 0-1 Pierre-Emerick Aubameyang (38.) Liverpool - Brighton 4-0 1-0 Mohamed Salah (26.), 2-0 Dejan Lovren (40.), 3-0 Dominic Solanke (53.), 4-0 Andrew Robertson (85.) Man. United - Watford 1-0 1-0 Marcus Rashford (34.) Newcastle - Chelsea 3-0 1-0 Dwight Gayle (23.), 2-0 Ayoze Perez (59.), 3-0 Perez (64.) South. - Man. City 0-1 0-1 Gabriel Jesus (94.) Swansea - Stoke 1-2 1-0 Andy King (14.), 1-1 Papa Ndiaye (31.), 1-2 Peter Crouch (41.) Tottenham - Leicester 5-4 0-1 Jamie Vardy (4.), 1-1 Harry Kane (7.), 1-2 Riyad Mahrez (16.), 1-3 Kelechi Iheanacho (47.), 2-3 Erik Lamela (49.), 3-3 Christian Fuchs (53, sjálfsmark.) 4-3 Lamela (61.), 4-4 Vardy (74.) West Ham - Everton 3-1 1-0 Manuel Lanzini (39.), 2-0 Marko Ar- nautovic (61.), 2-1 Oumar Niasse (75.), 3-1 Lanzini (82.) FÉLAG L U J T MÖRK S Man. City 38 32 4 2 106-27 100 Man. Utd. 38 25 6 7 106-28 81 Tottenham 38 23 8 7 74-36 77 Liverpool 38 21 12 5 84-38 75 Chelsea 38 21 7 10 62-38 70 Arsenal 38 19 6 13 74-51 63 Burnley 38 14 12 12 36-39 54 Everton 38 13 10 15 44-58 49 Leicester 38 12 11 15 56-60 47 Newcastle 38 12 8 18 39-47 44 Cr. Palace 38 11 11 16 45-55 44 Bournem. 38 11 11 16 45-61 44 West Ham 38 10 12 16 48-68 42 Watford 38 11 8 19 44-64 41 Brighton 38 9 13 16 34-54 40 Huddersf. 38 9 10 19 28-58 37 Southampt. 38 7 15 16 37-56 36 Swansea 38 8 9 21 28-56 33 Stoke 38 7 12 19 35-68 33 West Brom 38 6 13 19 31-56 31 Deilur við stjórn Chelsea í bland við slaka spilamennsku virðast ætla að verða banabiti Antonios Conte hjá Chelsea. Sá ítalski náði ekki að koma Chelsea í Meistaradeildina sem þykir óásættanlegt hjá félaginu. NoRDiCPHoToS/ GETTy Okkar menn Íslendingar í efstu tveimur deildunum á Englandi Everton Gylfi Þór Sigurðsson Var ekki í leikmannahóp í lokaumferðinni. Er byrjaður að æfa eftir meiðsli en gat ekki tekið þátt í leiknum gegn West Ham. Aston Villa Birkir Bjarnason Kom inn af bekknum og lék síðustu 10 mínúturnar í sigri á Middlesbrough í umspilinu um sæti í ensku úrvalsdeildinni á næsta ári. Burnley Jóhann Berg Guðm. Lék 82 mínútur í lokaleik Burnley en var skipt af velli þegar staðan var jöfn. 32 Mohamed Salah, Liverpool 30 Harry Kane, Tottenham 21 Sergio Aguero, Manchester City Markahæstu leikmenn 1 4 . m a í 2 0 1 8 m Á N U D a G U R12 S p o R t ∙ f R É t t a b l a ð i ð 1 4 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :3 4 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F C 1 -F 9 8 4 1 F C 1 -F 8 4 8 1 F C 1 -F 7 0 C 1 F C 1 -F 5 D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 1 3 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.