Feykir - 30.08.2012, Page 1
fff
BLS. 6-7
BLS. 9
Erla og Jóhann eru
matgæðingar vikunnar
Bragðsterkir og
einfaldir réttir
BLS. 11
Spjallað við Sigríði
Magnúsdóttur um blómin
og lífið
Glöð í sálu
minni
Matthildur Ingólfsdóttir
mundar áskorendapennann
Hér hefur þú
hrekkjusvínið
hann son þinn!
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
32
TBL
30. ágúst 2012
32. árgangur : Stofnað 1981
Busar vígðir í FNV
Grænn grautur fyrir nýnemana
Nú eru flestir skólar landsins byrjaðir og nemendur sestir á
skólabekk eftir eitt besta sumar sem minnugustu
veðurspekúlantar muna eftir hvað sól og þurrk varðar.
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra var settur í síðustu viku
og ekkert verið að bíða eftir busavígslunni sem fram fór sl.
föstudag.
Að venju þurftu nýnemar að þreyta próf til að teljast
fullgildir meðal eldri nemenda sem sýndu þeim yngri enga
miskunn. Eins og myndin sýnir fengu nemendur að smakka
á bráðhollum en bragðvondum skærgrænum graut eftir að
hafa leyst þrautirnar sem lagðar voru fyrir þá en hann vildi
dveljast mislengi í skolti busanna. Engum varð meint af
busavígslu FNV að þessu sinni og vonandi fær þessi siður
(eða ósiður) að halda áfram um ókomna tíð. /PF
KJARNANUM HESTEYRI 2 SAUÐÁRKRÓKI & 455 9200
G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N
Hér er ný, sneggri
MacBook Air
Jíha!
GoPro er leiðandi merki í heiminum
á sviði myndavéla sem nota má
við alls konar íþróttir eða jaðarsport
og í raun allt sem mönnum
dettur í hug að gera.
Stefnir Lánasjóði sveitarfélaga
Sveitarfélagið Skagafjörður
Sveitarfélagið Skagafjörður hefur
stefnt Lánasjóði sveitarfélaga
vegna láns sem tekið var hjá
Þróunarbanka Evrópuráðsins. Á
Rúv.is segir að fleiri sveitarfélög
hafi tekið sambærileg lán en
ekkert þeirra hefur stefnt
Lánasjóðnum.
Skagafjörður stefnir Lánasjóði
sveitarfélaga vegna 115 milljón króna
gengistryggðs láns sem sveitarfélagið
telur ólögmætt en það var notað til að
greiða fyrir hitaveituframkvæmdir á
vegum Skagafjarðaveitna. Rúv.is segir
að í stefnunni komi fram að lánið sé
endurlánafé frá Þróunarbanka
Evrópuráðsins og að Skagafjörður
skuldbindi sig til að veita Þróunar-
banka Evrópuráðsins upplýsingar um
í hvaða verkefni peningarnir séu
notaðir. Sveitarfélagið hafi því vitað að
lánsféð var upphaflega frá erlendum
banka.
Óttar Guðjónsson framkvæmda-
stjóri Lánasjóðs sveitarfélaga segist í
viðtali við Rúv ekki sýta að þetta mál
verði útkljáð fyrir dómstólum. „Það
sem er náttúrlega áhugavert við þetta
bæði fyrir lánasjóðinn og sveitarfélög-
in er að útkljá það hvort það sé óvissa
um lögmæti þessara tegundar af
starfsemi og fá það á hreint hvort þetta
hafi verið rétt gert eða ekki, og þá er
hægt að leiðrétta verklag og aðra þætti
ef þetta hefur verið vitlaust fram-
kvæmt.“ /PF