Feykir - 25.10.2012, Blaðsíða 6
6 Feykir 40/2012
og sundmaður í Reykjavík
fylltist metnaði fyrir að synda
afrekssund, enda góður
sundmaður. Reyndi hann
við Ermarsundið árið eftir.
-Þannig varð einvígi okkar
til og er skemmtilegt að því
leyti að við heitum báðir
sama nafninu sem er kannski
táknrænt. Þetta einvígi okkar
varð mjög spennandi og tók
auðvitað á taugarnar en varð
til þess að athygli manna á
sjósundiðkun varð meiri og
þegar við snérum heim úr
okkar Ermarsundstilraunum,
þá er fólk þegar farið að gefa
sjósundinu almennt meiri
gaum. Ég hafði í nokkurn
tíma verið að boða sjósund
áður - hvað það væri frískandi
og allra meina bót. Upp úr
þessum Ermarsundstilraunum
jókst sjósundsiðkun á Íslandi
og aðstaðan í Nauthólsvík
fór batnandi og allt hélst í
hendur. Þetta er önnur myndin
í myndinni má segja og er
kannski stærsti hlutinn en svo
er mjög merkileg saga sögð
og skemmtilegt að Jón Karl
skyldi hafa tekið á en það er
þessi sögulega hlið sundsins
yfir höfuð. Sögu sundsins rekur
hann á mjög skemmtilegan
hátt sem myndar andstæðu
við nútímann. Þetta eru
myndskeið sem eru sett á svið
á eftirminnilegan hátt og brjóta
upp söguþráðinn og þetta
einvígi okkar Benedikts og gerir
myndina mjög skemmtilega
og býður upp á mikinn og
skemmtilegan fróðleik svo
maður getur horft á myndina
aftur og aftur.
Margir þurft
frá að hverfa
Fjöldi fólks reynir við þá
miklu áskorun að synda
Ermarsund og færri komast
að Frakklandsströndum en
fara frá þeirri ensku og því
gaman að vita hvað sé erfiðast
við Ermarsundið?
-Erfiðasta við Ermarsundið
er vegalengdin, þetta er svo löng
leið. Og maður getur eiginlega
hvergi stoppað og hvílt sig. Í
næringartökunni nær maður
að stoppa aðeins en hún tekur
mjög stuttan tíma. Vegalengdin
er reyndar svolítið afstæð.
Stór hluti vegalengdarinnar er
þannig að maður þýtur áfram í
góðu veðri og eru þá erfiðustu
kaflarnir oftast byrjunin og svo
sérstaklega endalokin - það er
að lenda - og lenda á réttum
stað. Svo er kannski sá þáttur
sem gerir sundið erfiðara en
það er veðrið, segir Benedikt
VIÐTAL Páll Friðriksson
Lífskúnstnerinn og sjósundgarpurinn Benedikt S. Lafleur segir frá reynslu sinni
af Ermarsundinu og þeim stóru áformum sem framundan eru hjá honum
Í síðustu viku var heimildarmyndin Sundið eftir Jón Karl Helgason frumsýnd í Bíó
Paradís í Reykjavík og í þessari viku í Króksbíói á Sauðárkróki. Myndin segir frá
spennandi kapphlaupi nafnanna Benedikts Hjartarsonar og Benedikts S. Lafleur um
hvor þeirra verði fyrsti Íslendingurinn til að synda yfir Ermarsundið – Mount Everest
sjósundsins. Benedikt S. Lafleur býr á Sauðárkróki og stundar sjósundið grimmt
enda með háleit markmið í sigtinu hvað afrekssund varðar. Feykir settist niður með
Benedikt og forvitnaðist um Ermarsundið, markmið og vonbrigði og ekki síst hvaða
sund hann hyggst þreyta í framtíðinni.
Ætlar að synda
50 ferðir úr Drangey
Nafnarnir Benedikt Hjartarson
bakari í Reykjavík og Benedikt
S. Lafleur „altmuligmand“ á
Sauðárkróki eru í lykilhlutverki
myndarinnar „Sundið“ en
þeir reyna báðir við þá heljar
miklu þraut að synda yfir
Ermarsundið, frá Dover á
Englandi að strönd Frakklands.
Vegalengdin er um 32
kílómetrar í loftlínu en töluvert
lengri er leiðin fyrir þá sem
sundtökin taka. Jón Karl fylgdi
þeim félögum eftir sem reyndu
í nokkur skipti að komast þetta
erfiða sund og festi á filmu.
Tókst mjög vel að fanga þá
stemningu, væntingar og trega
sem fylgir því verkefni.
-Sundið er í raun tvær
myndir. Annars vegar fjallar
hún um þessa keppni milli
okkar Benediktanna tveggja,
míns og Hjartarsonar hvor verði
fyrstur Íslendinga til að synda
yfir Ermarsundið. Hún tekur
líka söguna og tilraun Eyjólfs
Jónssonar sem var fyrstur
Íslendinga til að reyna við það
og rifjuð er upp stuttlega tilraun
Árna Árnasonar sem reyndi að
synda yfir Ermarsundið árið
2011. Þungamiðja og raunar
kveikjan að gerð myndarinnar
voru tilraunir mínar til að synda
Ermarsundið og einnig önnur
sund reyndar, en Jón Karl
byrjaði að mynda þegar ég var
að kljást við Reykjarvíkursund,
segir Benedikt og útskýrir að
samstarf þeirra hafi byrjað á
þá leið að hann hringdi í Jón
Karl og sagði: „Við skulum
gera mynd!“ Jón Karl fór með
sundmanninum og myndaði
tilraunir hans við að sigrast
á Ermarsundinu en vegna
slæms veðurfars varð ekkert
af sundi Benedikts það árið. Í
kjölfarið skapaðist þó umræða
um þá miklu áskorun svo
Benedikt Hjartarson bakari
Benedikt skartar hér sundbol eins og tíðkuðust fyrir miðja síðustu öld.