Feykir - 25.10.2012, Qupperneq 8
8 Feykir 40/2012
( ÍÞRÓTTAGARPUR ) palli@feykir.is
Einar Haukur Óskarsson er golfari
Stefnir á atvinnumennsku
Skagfirski golfarinn Einar
Haukur Óskarsson stefnir að
atvinnumennsku í golfi í haust
í Svíþjóð en hann er fæddur
og uppalinn á Sauðárkróki þar
sem hann hóf sinn golfferil
undir leiðsögn Árna Jónssonar
golfkennara. Einar hefur eytt
mestum tíma sínum á golf-
velli frá því hann var 12 ára
gamall, bæði sem kylfingur og
starfsmaður enda lærði hann
golfvallarfræði í Skotlandi og
vann sem golfvallarstjóri til
margra ára ásamt því að æfa
og spila golf.
Einar ætlar að reyna fyrir sér
í atvinnumennsku í Svíþjóð,
en hann er að flytja þangað
með fjölskyldu og hefur þegar
fengið atvinnumannaréttindi en
framundan er mikil og kostnaðar-
söm barátta við að komast í
gegnum úrtökumót þar sem
hart er tekist á um hvert sæti
sem gefur þátttökurétt á mótum
atvinnumanna á komandi leiktíð.
Þeir sem vilja hlaupa undir
bagga og styrkja þennan frábæra
kylfing, sem gæti orðið fulltrúi
Norðurlands í atvinnumennskunni
og fyrirmynd fyrir unga norðlenska
golfara, er bent á að hægt er að
leggja inn á reikning 0130-15-
382924, kt. 051182-4999.
Nafn og heimili: -Einar Haukur
Óskarsson heiti ég og er búsettur
í Gautaborg í Svíþjóð.
Árgangur: -1982
Hvar ólstu upp? -Ég er fæddur
og uppalinn á Sauðárkróki en
vil reyndar meina að mikilvægur
partur af uppeldinu hafi verið í
sveitinni hjá ömmu og afa á Hamri.
Hverra manna ertu? -Faðir minn
heitir Óskar Friðrik Halldórsson og
móðir mín Björg Kristín Einarsdóttir,
betur þekkt sem Óskar og Bogga
hjá Hjólbarðaþjónustunni.
Íþróttagrein: -Golf.
Íþróttafélag/félög: -Golfklúbbur-
inn Keilir í Hafnarfirði.
Helstu íþróttaafrek: -Búinn að
vinna tvö mót á Eimskipsmóta-
röðinni og var annar í Eimskips-
mótaröðinni 2009.
Skemmtilegasta augnablikið:
-Ætli það séu ekki þau skipti þegar
við unnum Sveitakeppni unglinga
með Golfklúbbi Sauðárkróks. Það
var ótrúlega samheldinn hópur,
þó svo að við værum ekki með
sterkustu golfarana átti engin
möguleika í okkur vegna þess að
liðsheildin var svo góð.
Neyðarlegasta atvikið: -Ætli
það sé ekki þegar við vorum að
leika okkur á æfingarsvæðinu á
Sauðárkróki eitt kvöldið fyrir stórt
opið mót. Það voru komnir nokkrir
Akureyringar sem gistu í tjöldum á
æfingarsvæðinu. Við voru eitthvað
að fíflast með driverana okkar að
slá í gömul útihús sem voru við
æfingarsvæðið, af svona 30 metra
færi. Alltaf skoppuðu boltarnir
bara niður en það kom að því að
ég hitti í steypta stoð á bak við
einangrunina og fékk hann þaðan
í mitt ennið á milli augnanna. Það
var frekar vandræðarlegt en samt
ekki hægt annað en að hlæja af
því þó svo að maður hafi verið hálf
vankaður.
Einhver sérviska eða hjátrú? -Nei
ég get nú ekki sagt að ég sé mjög
hjátrúafullur en ég reyni allavega
að komast hjá því svona almennt
að brjóta spegla og ganga undir
stiga
Uppáhalds íþróttamaður? -Ég
lít mikið upp til Tiger Woods en
einungis innan vallar.
Ef þú mættir velja þér andstæð-
ing, hver myndi það vera og í
hvaða grein mynduð þið spreyta
ykkur? -Ég myndi vilja spila
holukeppni við Tiger Woods.
Hvernig myndir þú lýsa rimm-
unni? -Þetta er ótrúlega jöfn og
skemmtileg viðureign þar sem
þeir skiptast á að vinna holur.
Það er ótrúlega mikið af fallegum
golfhöggum sem líta dagsins ljós í
þessari spennandi rimmu. En það
er ekki fyrr en undir lokin sem Einar
tekur frumkvæðið og klárar leikin
með frábæru inná höggi á 18.
holunni og tryggir sér sigurinn með
frábærum fugli.
Helsta afrek fyrir utan íþróttirnar?
-Ég eignaðist dóttur 2010 og
verður það nú að teljast mitt helsta
afrek þó svo að það hafi verið
talsvert erfiðara fyrir Guðrúnu Þuríði
Höskuldsdóttur konu mína.
Lífsmottó: -Ef þú veist að þú hefur
gert þitt besta getur þú ekki verið
ósáttur við útkomuna
Helsta fyrirmynd í lífinu: -Pabbi
hefur haft mikil áhrif á mitt líf. Hann
hefur sýnt mér að ef að maður
ætlar sér eitthvað nógu mikið þá
getur maður það.
Mamma mín er einnig rólegasta
mennaskja sem ég veit um og ég
held að ég hafi náð að tileinka
mér yfirvegun hennar þegar mikið
liggur við og það hefur sennilega
átt mikinn þátt í því að koma mér
á þann stað sem ég er í dag í
golfíþróttinni.
Hvað er verið að gera þessa
dagana? -Núna er ég að
verða búinn að koma mér fyrir
í Gautaborg. Einnig var að
ljúka úrtökumóti fyrir sænsku
atvinnumannamótaröðina og ég
komst þar í gegnum niðurskurðinn
og endaði í 25. sæti sem veitir mér
vonandi þáttökurétt í einhverjum
mótum á komandi sumri. Svo er
það bara sama og venjulega, æfa
og æfa.
Hvað er framundan? -Það sem
er framundan núna er að halda
áfram að koma sér í ennþá betra
líkamlegt form og vinna í sveiflunni
eins og maður getur þangað til
golfvellirnir loka til að vera tilbúinn í
átök komandi golfverktíðar.
Fyrirmyndir
Börn undir 15 ára aldri eru
samkvæmt lögum ósakhæf.
Löggjafinn leggur þær
skyldur á forráðamenn barna
undir 15 ára að þeir gæti
öryggis þeirra, réttar og sjái til
þess að þau virði lög og reglur
svo sem umferðarlög og
reglur um útivistartíma.
Flestir foreldrar setja börnum
sínum reglur heima fyrir og
gera þá kröfu á þau að farið sé
eftir þeim.
Flestir lögreglumenn hafa
einhvern tíma átt samtal við
barn sem segir frá því að
einhver nákominn því hafi
brotið umferðarlög t.d. ekið of
hratt. Oft á tíðum veldur þessi
upplifun barnsins því ákveðnu
álagi því barnið veit að „löggan
tekur bófa og setur fólk sem
brýtur lög í fangelsi “. Slíkt álag
getur hlaðist upp og valdið því
að barnið upplifir stöðugan
ótta þegar það situr í bifreið þar
sem ökumaður þess brýtur
ítrekað umferðarlög.
Það hefur komið fyrir að
lögreglumenn við umferðar-
eftirlit hafi stöðvað ökutæki
eftir að ökumaður þess braut
umferðarlög og að í bifreiðinni
hafi verið barn. Barnið hafi séð
blá blikkandi ljós lögreglu-
bifreiðarinnar aftan við sitt
ökutæki og lögreglumann
koma og ræða við ökumanninn,
pabba, mömmu eða annan
forráðamann og jafnvel beðið
viðkomandi að koma í
lögreglutækið til að kynna
brotið og afla upplýsinga, við
það hafi barnið brotnað undan
álaginu sem það hefur orðið
fyrir. Komið hefur fyrir að börn
hafi verið svo hrædd að þau
hafi verið nánast óhuggandi
lengi á eftir.
Höfum hugfast börn horfa
til hegðunar þeirra sem eldri
eru þegar þau sækja sér
fyrirmyndir. Til dæmis þegar
ökumaður tryggir öryggi barns
í bifreið, setur barnið í bílstól
eða sér til þess að bílbeltið sé
spennt og eðlilega staðsett yfir
brjóst barnsins, sé ökumað-
urinn meðvitaður um það að
um leið og hann sest inní
bifreiðina til að aka er hann
orðinn miðpunktur athygli
barnsins því barnið fylgist með
því sem ökumaðurinn gerir í
ökuferðinni. Setur ökumað-
urinn á sig belti líka? Barnið
veit að það er regla að setja á sig
beltið.
Sýnum börnum gott for-
dæmi í umferðinni t.d. notum
bílbelti, notum gangbrautir,
ökum ekki á ólöglegum hraða
og tölum ekki í farsíma við
akstur.
AÐSENT FRÁ LÖGREGLUNNI Á SAUÐÁRKRÓKI