Feykir - 25.10.2012, Qupperneq 9
40/2012 Feykir 9
( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR ) berglindth@feykir.is
Guðrún Ósk kokkar
Ferlega fljótlegir réttir
og lítill tilkostnaður
Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir kennari í Grunnskóla Húnaþings
vestra er matgæðingur vikunnar að þessu sinni. Hún skorar á
Valdimar Halldór Gunnlaugsson og Ingunni Elsu Rafnsdóttur í sama
bæjarfélagi en þau segir hún gera besta grjónagraut í heimi.
„Ég var í svo brjáluðu tilrauna eldhúsi til að reyna að finna eitthvað til
að senda inn, annars hefði þetta lööööngu verið komið frá mér. Mínir
réttir einkennast af því að vera ferlega fljótlegir og lítill tilkostnaður.“
AÐALRÉTTUR
Kjúklingabringur
fylltar með fetaosti,
möndlum, spínati
og hvítlauk
2 msk ólífuolía
¼ bolli möndluflögur
og sama af söxuðum
möndlum
1 vorlaukur, fínt sneiddur
3 hvítlauksrif, söxuð
1 msk ferskt timian
eða blóðberg
safi úr hálfri sítrónu
200 gr spínat
50 gr fetaostur
4 litlar eða 2 stórar
kjúklingabringur
2 tsk reykt paprika (krydd)
salt
Aðferð: Hitaðu ofninn í 180
gráður. Hitaðu pönnu að
meðalhita. Settu teskeið af
ólífuolíu á pönnuna og bættu
við möndlum. Steiktu í 3-5
mín. þar til þær verða gylltar.
Bættu við vor- og hvítlauk
og láttu krauma í 2-3 mín.
eða þar til hvítlaukurinn
verður örlítið gylltur. Bættu
við spínati, kjúklingakrafti,
sítrónusafa og timian. Láttu
krauma í smá stund eða þar
til spínatið mýkist upp. Taktu
af hitanum, losaðu vökva frá
og bættu í feta.
Blandaðu svo saman
restinni af olíunni, papriku-
kryddi og möndlum. Settu
þetta til hliðar. Skerðu
bringurnar langsum og
búðu til „vasa“. Fylltu
EFTIRRÉTTUR
Heil bökuð epli með
fyllingu
epli
súkkulaðirúsínur
rjómasúkkulaði
kanill
ís
Aðferð: Fljótlegt og fáránlega
gott! Grefur kjarnann upp úr
eplinu með skeið. Þú grefur
hann upp úr að ofan svo eplið
geti staðið. Fyllingin saman
stendur af súkkulaði rúsínum
og bræddu rjómasúkkulaði
með kanil. Fyllingunni er svo
troðið inn í eplið og það bakað
þangað til það er orðið mjúkt
í gegn. Borið fram með ís.
Tilvalið á aðventunni.
Verði ykkur að góðu!
Segja skilið við blaðburð eftir tæp 20 ár
Oftast gaman
Óhætt er að segja að
fjölskyldan að Ártúni 5 á
Sauðárkróki hafi staðið
útburðavaktina vel fyrir Feyki
því í nærri 20 ár hafa
fjölskyldumeðlimir skipst á að
bera blaðið út til áskrifenda í
bænum.
Það var Lilja, elsta dóttir
þeirra Ingimundar Guðjóns-
sonar og Huldu Agnarsdóttur,
sem varð sér út um starfið
fyrst, 11 ára gömul. Svo tóku
yngri systkini hennar; Sunna,
Arna, Guðjón og Agnar og nú
síðast kærasta hans, Þóranna
Ósk Sigurjónsdóttir, við hvert
af öðru eftir því sem þau hin
eltust. Á tímabili voru þau með
tvö hverfi. Hulda segir að oftast
hafi verið gaman að standa í
útburðinum en stundum erfitt
í vondum veðrum en þá fannst
strákunum skemmtilegast.
Foreldrarnir hafa stundum
þurft að hlaupa í skarðið og
voru sérstaklega beðin að fara í
„hundahúsin“ , en það eru þau
hús sem hundar gæta því eitt
sinn náði hundur að narta í
putta og skemma vettling.
Feykir þakkar fjölskyldunni
kærlega fyrir dygga þjónustu í
gegnum árin og óskar henni
velfarnaðar. /PF
Guðný Jóhannesdóttir skrifar frá Sauðárkróki
Kannski ég fari bara í mál
Árið 2007 sat ég á
móti bílasala sem var
að ganga frá sölu til
okkar hjóna. Bíllinn
stór og stæðilegur enda
fjölskyldan stór og lítill
bíll þar af leiðandi ekki
valmöguleiki. Við keyptum
fjögurra ára gamlan bíl
og höfðum að við héldum
reiknað dæmið ágætlega
vel.
„Svo takið þið náttúrulega
erlent lán,“ staðhæfði
bílasalinn. „Nei, veistu
ég er ekki til í að taka
áhættuna á því að gengið
fari eitthvað af stað,“
svaraði ég nokkuð ákveðin
að ég hélt. Bílasalinn leit
á eiginmanninn en þeir
voru gamlir skólafélagar
og skellti síðan upp úr.
„Ertu ekki að grínast?,“
spurði hann. „Það
tekur enginn heilvita
maður í dag íslenskt
lán, það er bara svo
vitlaust. Ertu gamaldags
framsóknarmaður eða
hvað?“ Fyrirlitningin sem
hann setti í röddina var
algjör. „Uu, nei, alla vega
ekki lengur, ég vil samt
ekki svona lán,“ svaraði
ég. Hringt var í vin sem
sagði okkur að vera ekki
bjánar, það tæki enginn
íslenskt lán lengur. Eftir
langa mæðu ákváðum
við að láta slag standa,
við gætum ekki verið það
plebbaleg að fara að taka
eitthvert íslenskt lán. Þetta
væri jú nútíminn. Ári síðar
hrundi allt og þægilega
lánið okkar var orðið að
stökkbreyttu skrímsli.
Alltaf stóðum við í skilum,
fengum jú í einhvern tíma
að borga eitthvað minna,
samkomulag sem öllum
var boðið. 2010 féll
dómur og við dönsuðum
stríðsdans. Kannski
værum við ekki enn að
borga af bílnum eftir að
hann yrði handónýtur.
Lög voru sett á dóminn
og upphæðin lækkaði
langt frá því sem hafði
verið reiknað út fyrir okkur.
Ástæðan? Jú, það voru
settir allt að 20% vextir á
sumar greiðslurnar. Jæja,
áfram gakk, við púlum þá
bara við að borga þetta
helv....
Síðan féll annar dómur
þess efnis að lögin hefðu
verið ólög og ólöglegt
væri að rukka þessa háu
vexti. Það var í upphafi
þessa árs. Himinlifandi
hringdum við í Lýsingu og
fengum þessi svör. „Sko,
þetta gildir örugglega
ekki um okkar lán, það
þurfa nú fleiri að fara í
mál áður en við förum
eitthvað að leiðrétta við
þig.“ Fleiri fóru í mál og
annar dómur féll. Fyrirtæki
byrjuðu að endurreikna
lán viðskiptavina sinna,
nema Lýsing sem nú segir
þetta: „Já, nei, þetta gildir
um önnur lánasöfn en
okkar.“
Já, Lýsing er greinilega
einstakt fyrirtæki.
Fyrirtæki sem ég hlakka
óendanlega mikið til
að verða skuldlaus við.
Fyrirtæki sem ég mun
aldrei beina viðskiptum
mínum til aftur. Fyrirtæki
sem mig langar að benda
ykkur hinum á að varast.
Fyrirtæki sem ég er
alvarlega farin að hugleiða
að fara í mál við.
- - - - -
Mig langar að skora á
Róbert Óttarsson, bakara
á Sauðárkróki að koma
með næsta pistil.
( ÁSKORENDAPENNINN ) berglindth@feykir.is
með blöndunni, lokaðu með
tannstöngli og settu í eldfast mót.
Settu svo paprikumöndlu blöndu
yfir (gott að nudda). Settu álpappír
yfir formið og bakaðu í ofni í 10
mín., taktu álpappírinn svo af og
láttu bakast í 10 mín. til viðbótar,
eða þar til kjúllinn er eldaður í
gegn.
Ég sjálf er alveg sjúk í sætar
kartöflur og elda því nær alltaf
sætar með kjúklingi. Mér finnst
best að flysja þær niður (svo þær
taki styttri tíma) og baka þær
svo í eldföstu móti með slettu af
olíu. Þegar þær eru svo gott sem
tilbúnar skelli ég smá salti yfir þær
og stundum fetaosti. Ferskt salat
og piparostasósa og allir glaðir.
Þóranna Ósk, Agnar, Ingimundur og Hulda með síðasta útburðarblaðið.