Feykir - 25.10.2012, Blaðsíða 11
40/2012 Feykir 11
FE
Y
K
IL
EG
A
F
LO
TT
A
A
FÞ
R
EY
IN
G
A
R
H
O
R
N
IÐ
Já
, r
ey
nd
u
þi
g
vi
ð
þe
tt
a!
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautina
ætti að senda Fröken Fab eina lauflétta spurningu!
Spakmæli vikunnar
Vonin er draumur vakandi manns.
- Aristóteles
Ótrúlegt en
kannski satt
Sudoku
Hallgríma Sigurgunnur var á uppvaxtarárum sínum í
Flóanum, lítið gefin fyrir samneyti við sveitadrengina.
Hugur hennar stóð til filmstjarna á borð við Rock Hudson
og má ganga að því sem gefnu að kynhneigð Rocks
sé ástæða þess að Hallgríma gekk síðar í samtök
herstöðvarandstæðinga.
Hinrik Már Jónsson
Örlaga örsögur
Mörgum þykir skemmtilegt að renna fyrir fisk og eru
veiðiáhöld veiðimanna misjöfn að gæðum svo ekki sé
talað um verðmæti. En ótrúlegt en satt þá er bannað
með lögum að veiða fisk með berum höndum í
Kansas í Bandaríkjunum.
Krossgáta
Fröken Fabjúlöss
[ frokenfab@feykir.is ]
Hringrás
tískunnar
Kæra frk. Fab. Heldur þú að 80´s tískan
komi aftur?
Fröken Fabjúlöss: Það sem heillar okkur
svo hérna í tískuhorni Fröken Fabjúlöss er
hringrás tískunnar! Það eina sem hægt er
að treysta á í sambandi við tískuna er að
hún kemur alltaf aftur, og þá betrumbætt
og búið að aðlaga hana nútímanum. Það
vill nú svo skemmtilega til að það sem
var heitt þarna aftur í 80´s hefur verið að
volgna vel, og sumt er jafnvel og hefur
Ef spurning brennur á þínu tískusláandi hjarta kæri
lesandi, vertu þá ekki feiminn við að senda Fröken
Fabjúlöss spurningu, hún mun svara eftir bestu getu!
verið um tíma alveg hreint mannskaðaheitt
eins og til dæmis leggings sem var ansi vel
„inn“ á þessum árum.
Litagleði í förðun er að koma mjög
sterkt inn þessi misserin og litaður eða
glimmer eyeliner er að upplifa ákveðið
kombakk. Tískupallar Jean Paul Gaultier
á tískuvikunni í París í seinasta mánuði
voru undirlagðir af módelum sprangandi
um sem stórstjörnur 8. áratugarins eins og
Madonnu, Boy George og Ziggy Stardust
þannig að víða má finna ansi sterk áhrif frá
80´s í tískunni!
En einn er tískudraugurinn frá 80´s
sem Fröken Fabjúlöss liggur á bæn með
að verði aldrei vakinn af gömlum haug:
Axlapúðarnir ægilegu! Fröken Fabjúlöss
hefur annað slagið rekið augun í axlapúða
upp á síðkastið en vonar svo sannarlega að
þeir sitji sem fastast bara þar sem þeir eiga
heima, á 8. áratugnum! /HV
Frá tískusýningu Jean Paul Gaultier. Ziggy. Madonna. Michael Jackson. Boy George.
Feykir spyr...
Hvað stendur
uppúr í heim-
sókn þinni í
Skagafjörð?
[ Spurt í FNV ]
KRISTOF RITTER
frá Ungverjalandi
-Útsýnið og fjallasýnin en það
eru engin fjöll þar sem ég bý. Litli
bærinn og vingjarnlega fólkið.
AMANDA SILFVAST
frá Finnlandi
-Fjöllin og fallega útsýnið frá
skólanum, það eru heldur engin
fjöll þar sem ég bý. Það var
líka rosalega gaman að fara á
hestbak.
VIVIEN SZABÓ
frá Ungverjalandi
-Það var æðislegt að fara á hest-
bak, íslensku hestarnir
eru svo fallegir.
STELLIOS SIRIRAKIS
frá Ungverjalandi
-Allt saman; fallega umhverfið,
sveitin, náttúran, hafið og
gestrisni fólksins.