Feykir


Feykir - 20.12.2012, Page 2

Feykir - 20.12.2012, Page 2
2 Feykir 48/2012 Sérstakur þakklætisvottur Óður til sólarinnar Fyrr á árinu afhenti Guðfinna Svava Sigurjónsdóttir sr. Gísla Gunnarssyni hökul sem minningargjöf til Skagafjarðar. Hökullinn "Óður til sólar- innar" er gefinn til minningar um Andra Ísaksson, móður hans Sigrúnu Sigurjónsdóttur frá Ingveldarstöðum í Hjalta- dal og Sigurjón Sigurðsson, föður Svövu. Guðfinna Svava afhenti sr. Gísla hökulinn sem þakklætisvott fyrir at- höfn í Hólakirkju við jarð- setningu duftkers eiginmanns hennar Andra Ísakssonar sem lést 6. ágúst 2005. Hök- ullinn er hannaður og gefinn af Guðfinnu Svövu. /GG Ný smábátahöfn á Sauðárkróki Fyrsta skóflu- stungan Hafist var handa við fyrsta áfanga að byggingu smábátabryggju á Sauðár- króki sl. laugardag er Gunnar Steingrímsson hafnarvörður tók fyrstu skóflustunguna með stærri skóflu en hann er vanur að nota. Það er verktakafyrir- tækið Fjörður ehf. sem sér um jarðvinnuna. Að sögn Jóns Árnasonar hjá Firði ehf. verður grjótið sem myndar sjóvarnargarð- inn tekið upp fyrir áramótin en um miðjan janúar verður farið í dýpkun hafnarinnar. Þá verður farið í landmótun, byggingu aðstöðuhúss fyrir vatn og rafmagn, þrjá landstöpla fyrir flotbryggjur og upptökubraut að sögn Gunnars og eru verklok áætluð um mánaðarmótin apríl maí 2013. Í seinni áfanganum sem Gunnar vonast til að boðinn verði út strax eftir áramót verður 80 metra löng flot- bryggja með sjö 12 metra löngum fingrum og 60 metra flotbryggja með átta 8 metra fingrum og tíu 6 metra fingrum. /PF Jólakrossgáta Feykis Anna Eiríksdóttir hreppti ostakörfu Búið er að draga úr innsendum lausnum jólakrossgátu Feykis. Þátttaka var mjög góð eða alls 92 réttar lausnir. Anna Eiríksdóttir Hnjúki í Vatnsdal var sú heppna og fær að launum gjafabréf að Sælkerakörfu frá Mjólkur- samlagi KS. Lausnarorðið er: Ostur er veislukostur. /PF Gísla Gunnarsson tekur við listagrip úr höndum Guðfinnu Svövu Sigurjónsdóttur. Útgefandi: Nýprent ehf. Borgarflöt 1 Sauðárkróki Póstfang Feykis: Box 4, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Páll Friðriksson – palli@feykir.is & 455 7176, 861 9842 Blaðamenn: Berglind Þorsteinsdóttir – berglindth@feykir.is & 694 9199 Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is Hrafnhildur Viðarsdóttir – hrafnhv@nyprent.is Forsíðumynd: Svavar Sigurðsson. Áskriftarverð: 350 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 390 kr. með vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum LEIÐARI Gleðileg jól Íslendingar hafa haldið jólin hátíðleg frá því að land byggðist. Eflaust hefur rauði þráðurinn í hátíð ljóssins verið sá sami frá upphafi þ.e. að fagna birtunni og þeim góðu gjöfum sem almættið gefur okkur mönnunum. Vissulega hafa siðir og formerki jólanna breyst í aldanna rás, en fögnuðurinn er sá sami og verður á meðan jörð hverfist um sólu. Rætur jólanna liggja djúpum rótum í sið vorra Norrænna manna, en engu að síður hafa straumar og lífssýn seytlast í þúsundir ára á milli menningarheima, en þó ekki með þeim hraða og straumi sem fylgir netvæddum nútímanum. Sumir sjá skýra hliðstæðu í hinum góða ási Baldri hinum hvíta og frelsaranum frá Nasaret. Augljós eru áhrifin í hina áttina þ.e. áhrif Rómverja, sem ástunduðu keimlík trúarbrögð og vor siður er, á kristnina, sem tók sín bernskuspor í ríki Rómar. Skýrasta birtingarmynd áhrifanna er í sjálfu jólahaldinu, sem heiðrað var með því að gera hátíðina sömuleiðis að fæðingarhátíð frelsarans. Á þarsíðustu öld varð jólatréð liður í jólahaldinu hér á landi og hefur vegur þess farið vaxandi. Það á skýra samsvörun í okkar Norræna sið sem lífsins tré, Askur Yggdrasils. Tréð stendur upp í gegnum heiminn allan og er sameiningartákn lífsins og ólíkra krafta heimsins. Boðskapur jólanna er nýtt upphaf og tilhlökkun yfir bjartari tíð. Helgisaga jólanna er falleg ástarsaga þeirra Freys og Gerðar Gýmisdóttur. Freyr frjósemisgoð er bróðir Freyju, en þau eru af ætt Vana, en Gerður, sem fegurst er allra kvenna, er af ætt jötna. Með Brúðkaupinu, sem fram fór á jólunum náðist sátt á milli myrkursins og birtunnar, sem tryggði hringrás árstíðanna. Brúðhjónin, sem voru af gjörólíkum uppruna, náðu vel saman og elskuðust á jólunum í níu daga og níu nætur, á meðan á brúðkaupinu stóð. Það fer því vel á því að gera vel við sig og sína á jólunum í mat og drykk og gleðjast yfir því jákvæða sem tilveran hefur upp á að bjóða. Boð og veisluhöld eru góð leið til þess að koma saman og rækta andann og efla tengslin við frænd- garðinn. Að lokum er hér falleg og skýr mynd úr Völuspá, sem segir frá nýju upphafi. Ég óska lesendum ástríkra jóla og birtu og gleði á nýju ári. Sér hún upp koma öðru sinni Jörð úr ægi iðjagræna; falla fossar, flýgur örn yfir, sá er á fjalli fiska veiðir. Sigurjón Þórðarson Hegranesgoði Króksbíó í bestu gæðum Filmuvélinni skipt út Ný sýningarvél af fullkomnustu gerð er komin í Króksbíó á Sauðárkróki og leysir þar með af hólmi úrelta tækni þar sem 35 millimetra filman réði ríkjum. Filmuvélin hefur þjónustað bíógesti á Sauðár- króki í áratugi en myndir eru ekki lengur fáanlegar nema stafrænar. -Þetta gerir okkur kleift að frumsýna myndir á sama tíma og annarsstaðar á landinu í bestu gæðum, segir Sigurbjörn Björnsson bíóstjóri og mun veislan byrja strax annan í jólum þegar Hobbitinn verður tekinn til sýninga. Meðal annarra mynda sem brátt verða sýndar í Króksbíói eru Skyfall, The Twilight Saga, Rise of the Guardians, og Life of Pi og Jack Reacher. Nánar er hægt að sjá um myndirnar á Facebook-síðu Króksbíó. /PF Sýningarvélin komin á sinn stað. Við vélina stendur breskur sérfræðingur sem setti vélina upp en með honum eru á vinstri hönd Sigurbjörn Bíóstjóri og Guðbrandur húsvörður en Helga SiguRbjörnsdóttir er lengst til vinstri. Feykir í jólafrí Kemur næst út 10. janúar Feykir óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári með þökk fyrir samfylgdina á árinu sem er að líða. Vonandi finnur þú lesandi góður eitthvað við þitt hæfi í þessu lokablaði ársins og getir hlakkað til að fá þann næsta sem kemur út þann 10.janúar 2013. Það er við hæfi að birta vísu Rúnars Kristjánssonar á Skagaströnd sem hann samdi og sendi til blaðsins fyrir skömmu og lýsir ósk blaðsins til lesenda sinna. Feykis andinn héraðshlýi heillir sendir vítt um ból. Öllum hjá hann endurnýi elsku og tryggð við heilög jól! /PF

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.