Feykir - 20.12.2012, Blaðsíða 4
4 Feykir 48/2012
Á gamlárskvöld vill
lýður landsins oft bregða
undir sig betri fætinum
Falleg og fabjúlöss
í áramótafagnaðinn
Áramótalúkkið 2012
UMSJÓN
Hrafnhildur Viðarsdóttir
og demba sér út á galeiðuna eftir að hafa kvatt
gamla árið með tilheyrandi flugeldasprenging-
um og stöku stjörnublysum. Allir vilja bjóða
nýjar árið velkomið í sínu fínasta pússi, og hafa
pjattrófur þá sérstaka tendensa til að umbreyt-
ast í glamúrpíur.
Þar sem Fröken Fabjúlöss er sjálfskipaður
fegurðarlífskúnstner Feykis finnur hún fyrir
grasserandi ábyrgðartilfinningu þegar kemur að
því að miðla útlitsráðgjöf og að því tilefni ákvað
hún að raka saman elítuliðinu sem aðstoðaði svo
fagmannlega við jólaförðunina og ekki stóð á
þeim Agnesi, Önnu Siggu, Pétri og Gunnhildi.
Að þessu sinni var hin stórglæsilega Inga
Margrét fórnarlamb tískuspekúlantanna.
Förðun
Sem fyrr sá Fröken Fabjúlöss alfarið um andlit
fegurðardísarinnar, og notaði í verknaðinn
Lancome förðunarvörurnar stórkostlegu sem
fást í Lyfju. Í farða notaði hún Teint Miracle meik
og Majeure Excellence púður. Í skyggingu var
Star Bronzer burstinn brúkaður ásamt kinnalit
og nýja blush highlighter púðrinu. Fröken Fab
ákvað að smella Smokey förðun á gelluna, og á
augun notaði hún fyrst augn-blýantinn France in
A Glance úr jólalínunni og svo mjög fallegann
grásilfraðan augnskugga og Liner Plume augn-
skuggatússinn í eyeliner. Þar sem Fröken
Fabjúlöss er enn sem fyrr að missa sig í vara-
litunum varð mjög fallegur dökkbleikur varalitur
fyrir valinu til að toppa áramótalúkkið!
Hár
Agnes hárgreiðslugúru sá um hár áramóta-
gellunnar og byrjaði hún á að greiða hárið strekt
til annarar hliðar og spennta fast. Á hinni hlið-
inni greiddi hún svo að spennunum og spennti
fast þar til að ná öllu hárinu á sama punkt. Til að
vefja hárið niður í pylsu notaði hún svo svamp
með vír í, og festi svo fallegann hatt með spenn-
um ofan á herlegheitin!
Fatnaður
Ekki klikkaði tískudrottningin Anna Sigga
frekar en fyrri daginn og mætti inn á gólf vopnuð
stórglæsilegum svörtum pallíettukjól, svörtum
eyrnalokkum og hálsmeni með mjög fallegum
krossi. Þar sem háu platformskórnir eru gjör-
samlega að æra tískudívur hvunndagsins voru
þeir að sjálfsögðu brúkaðir í lúkkið!
48/2012