Feykir


Feykir - 20.12.2012, Blaðsíða 10

Feykir - 20.12.2012, Blaðsíða 10
10 Feykir 48/2012 Fyrir skömmu var þess minnst að 120 ár væru liðin frá því að Sauðarkrókskirkja var vígð en það var þann 18. desember árið 1892. Hátíðarmessa var haldin í kirkjunni af því tilefni að viðstöddu fjölmenni og mættu margir góðir gestir m.a. nokkrir afkomendur þeirra Popp og Claessen, aðalhvatamanna að byggingu kirkjunnar á sínum tíma. Björn Björnsson stiklaði á stóru í sögu kirkjunnar sem er merkileg að mörgu leyti og fékk Feykir leyfi til að birta erindið sem hér fer á eftir. Millifyrirsagnir eru blaðsins. Þegar skammdegið var sem svartast árið 1892, og aðeins örfáir dagar þar til skemmstur var sólargangur, sáu íbúarnir í Sauðárkrókssókn loks langþráðan draum sinn verða að veruleika, nýja og glæsilega kirkju sem risin var syðst í þéttbýlinu, og nú var senn fullfrágengin til þess að vígja mætti til þess hlutverks sem henni var ætlað. Hér hafði þetta örsamfélag, -sem nú yrði kallað, - lyft þvílíku Grettistaki að seint mun leikið eftir. Hér hafði þetta samfélag reist sín vé og varnarþing, festarklett, sína kirkju, - sem staðfesti að hér var samfélag sem komið var til þess að vera, - og var albúið að mæta því sem koma skyldi, í trausti þess almættis sem bjó íbúum þessa lands skin og skúri, sorg og gleði. Vissulega var þetta örsamfélag svolítið öðruvísi í laginu, en ef til vill hefði mátt búast við, - vegna þess, - að innan vébanda þess voru máttarstólpar sem voru öflugri og traustari en almennt gerðist, - en þar er á engan hallað þó að nefndir séu dönsku kaupmennirnir á Sauðárkróki, þeir Ludvig C. Popp og Valgard Cleassen og Carl Knudsen, en hann greiddi úr eigin sjóði til að byrja með, efni til byggingarinnar. Þarna eins og oft síðar sýndu þeir traust sitt og trú, - á almættið og Ísland og hallaðist þar hvergi á. Bygginganefnd kirkjunnar, - en í henni áttu báðir sæti Popp og Cleassen, - náðu með krafti sínum og áræði að mynda slíka samstöðu um alla framkvæmdina undir skeleggri forystu Ludvigs C. Popp að einstakt má telja. Við lok nítjándu aldar var ekki bjart yfir íslensku þjóðlífi, hvorki í Skagafirði né annarsstaðar á Íslandi. Árið 1871 hafði fyrsti íbúinn Árni Einar Árnason tekið sér fasta búsetu á Sauðárkróki, en áður hafði þar um bil verið sumarverslun danskra kaupmanna, sem komu að vori og höndluðu, lokuðu verslunarhúsum sínum að hausti og hurfu til baka til heimalandsins, - þótti verslun gefast vel vestan fjarðar þó að aðalhöndlunarstaður héraðsins væri á Hofsósi. Árin á undan höfðu verið hörð og illskeytt, með harðindum og mann- sköðum bæði til lands og sjávar, en þrátt fyrir það var lifandi baráttuhugur víða um land og konur í Hegranesi stofnuðu 1869 kvenfélag, það fyrsta hérlendis, með markmiðum sem slík félög til mannræktar, mannbóta en ekki síður til eflingar íslensk iðnaðar, starfa eftir enn þann dag í dag. Stiklað á stóru í sögu kirkjunnar Sauðárkrókskirkja 120 ára 1 y ir 48/2012 Þegar árið 1872 fékk Hallur Ásgrímsson Grænlandsfari útmælda verslunarlóð á Sauðárkróki, byggði verslunarhús, hóf verslun árið eftir. Hallur lét af verslunarrekstri en seldi verslun sína dönskum kaupmanni Ludvig Popp, sem stundað hafði sumarverslun um nokkurt skeið, en vildi nú festa sig í sessi, þar sem Grafarósshöndlun stóð stuggur af lausakaupmönnum og starfsemi þeirra, - og hafði amast nokkuð við. Árið 1876 höfðu allmargir tekið sér bólstað á Sauðárkróki, og landneminn Árni E. Árnason hóf veitingarekstur í húsi sínu, en leigði jafnframt herbergi til sjúklinga sem til læknis leituðu, og 1878 var Valgard Cleassen ráðinn verslunarstjóri við Poppsverslun. Árið 1880 voru skráðir íbúar á Sauðárkróki 60 talsins og fór nú ört vaxandi, og þetta ár voru samþykkt lög þess efnis að Fagraness- og Sjávarborgarsóknir leggist til Reyni- staðaklausturs prestakalls og fékk sr. Tómas Þorsteinsson veitingu fyrir kallinu og sat fyrstur presta á Sauðár- króki. Ári síðar flutti hann á almennum fundi þá tillögu að Sjávarborgarkirkja verði aflögð en ný kirkja reist á Sauðárkróki. Hlutirnir fara að gerast Árið 1886 fluttist Ludvig Popp til Sauðárkróks ásamt fjölskyldu sinni og tók sjálfur við verslun sinni af Valgard Cleassen sem verið hafði verslunar- stjóri í 8 ár en Valgard stofnaði eigin sölubúð á staðnum. Og nú fara hlutirnir að gerast. UMSJÓN Páll Friðriksson / palli@feykir.is

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.