Feykir - 20.12.2012, Blaðsíða 17
48/2012 Feykir 17
Spákonur Spákonuarfs
á Skagaströnd hafa rýnt
í framtíðina fyrir les-
Út með illsku og hatur
inn með gleði og frið
Völvuspá – Spákonuarfs á Skagaströnd 2013
UMSJÓN
Páll Friðriksson / palli@feykir.is
endur Feykis undanfarin ár og gera enn. Spáin fyrir
árið sem senn er að líða fór skemmtilega nærri
raunveruleikanum og margt sem stendur eins og
stafur á bók. Nú er komin spá fyrir árið 2013 og má
sjá að veðrið á eftir að verða rysjótt og sumarið ekki
beint að flýta sér að koma eftir ágætt vor. Þá eru
líkur á að septemberhret endurtaki sig frá fyrra ári
og getur enginn hlakkað til þess. Miklar sviptingar
munu verða hjá stjórnmálaflokkunum, sumir auka
fylgi sitt, aðrir tapa og einn flokkurinn sést ekki í
neinum spám. Þá sjá spákonurnar að gert verður hlé
á viðræðum um Evrópusambandsaðild eftir mikið
karp og þref.
Veðurfar og náttúruhamfarir
Veðrið er okkur Íslendingum alltaf hugleikið, eitthvað sem við getum alltaf talað um. Við
leggjum því spilin fyrir veðrið og miðum við veðráttuna hér norðanlands.
Í janúar verður fremur rólegt veður, stillur en svalt í veðri eins og við má búast. Febrúar
kaldsamur með éljaskaki þó mun koma bloti um miðjan mánuðinn, úrkoma og
umhleypingasamt í Góubyrjun. Rysjótt tíð í mars en stillir til síðustu daga mánaðarins.
Apríl ljúfur og hyllir undir gott vor. Maí hlýrri en undanfarin ár en skítur í nyt sýna í
mánaðarlok og kólnar þá. Áfram kalt í júní fram um Jónsmessu og menn langeygðir eftir
sumrinu. Júlí veldur vonbrigðum hjá bændum og búaliði. Lagast nokkuð upp úr
hundadögum. Meirihluti ágústmánaðar lofar allgóðu. Minnist septemberhretsins á liðnu
ári, því líkur eru á að slíkt endurtaki sig, þó það verði heldur seinna í mánuðinum. Vonandi
veldur hvellurinn ekki sömu búsifjum eins og sá er gekk yfir sl. haust. Október verður
meinhægur, kólnar um veturnætur. Nokkur snjóþyngsli í nóvember en desember
þokkalegur og ágætur um jól og áramót.
- - - -
Einhver umbrot verða neðanjarðar sem munu brjótast upp á yfirborðið og nú óttumst við
gömlu Kötlu. Allar spár hníga að því og þetta gos mun verða að vetri til. Einhver skaði
verður, en þó miklu minni en við mætti búast. En sveitir gætu einangrast um tíma.
Stjórnmálin- Kosningaár
Þá er komið að blessuðum stjórnmálunum og þar er auðvitað mikið að gerast, þar sem
kosningar eru í nánd. Við tókum fyrir gengi stjórnmálaflokka í komandi kosningum og
ber þar fyrst að nefna Samfylkinguna, hún mun tapa allmiklu fylgi, en Evrópusinnar
fylgja þeim þó enn fast. Árni Páll verður formaður flokksins þó skoðanakannanir bendi til
hins gagnstæða. Eitthvað mun verða Guðbjarti andstætt undir lokin.
Vinstri grænir fá meira uppúr kjörkössunum en við var búist. Ekki getum við betur séð
en að Jón Bjarnason muni ekki fara fram fyrir Vinstri græna en eitt er víst að lán fylgir
honum inn í framtíðina á öðrum vettvangi.
Sjálfstæðisflokkurinn hlýtur gott gengi í kosningunum. Bjarni Ben situr samt í fari sem
hann þarf að komast uppúr en fortíðin fylgir honum. Hanna Birna er framagjörn með
ríka réttlætiskennd og tilbúin að færa fórnir í starfi. Hún þarf að laga sig að nýjum
aðstæðum og takast á við breytingar.
Hreyfingin sést nú bara ekki í okkar spilum né rúnum og spákúlan varð algjörlega auð
er við spurðum eftir þeirra framtíð.
Framsókn má vel við una í kosningunum en hjá þeim þarf að taka á einhverjum
innanmeinum í flokknum svo um verulega „framsókn“ verði að ræða.
Björt framtíð nær á þing, en hópurinn er ósamstæður og þarf að samræma skoðanir
sínar ef til framtíðar er lítið, allavega ekki nógu bjart yfir þeim. Ekki sjáum við að önnur
framboð nái að verma stóla alþingis. Samfylkingin verður utan stjórnar eftir þessar
kosningar og sjáum við ekki betur en að Sjálfstæðisflokkur og Framsókn myndi nýja
ríkisstjórn. Spil okkar gefa til kynna að Vinstri grænir vilji samstarf í einhverri mynd eða
verði í einhverjum viðræðum.
VÖLVUSPÁIN 2013
VÖLVUSPÁIN 2013
48/2012