Feykir - 07.03.2013, Page 4
4 Feykir 09/2013
MINJASTOFNUN ÍSLANDS
Styrkir úr húsafriðunarsjóði 2013
Minjastofnun Íslands auglýsir
eftir umsóknum um styrki úr
húsafriðunarsjóði fyrir árið 2013
Frá og með 1. janúar 2013 tóku gildi ný lög um
menningarminjar nr. 80/2012. Með gildistöku þessara
laga voru Húsafriðunarnefnd og Fornleifavernd ríkisins
sameinaðar í nýja stofnun, Minjastofnun Íslands.
Minjastofnun Íslands úthlutar styrkjum úr húsafriðunarsjóði.
Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi
friðlýstra og friðaðra húsa og mannvirkja, sbr. reglur nr.
182/2013. Sjóðurinn veitir styrki til viðhalds og endurbóta á
friðlýstum og friðuðum húsum og mannvirkjum. Sjóðnum er
einnig heimilt að veita styrki til viðhalds annarra mannvirkja
sem hafa menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi.
Sjóðnum ber einnig að stuðla að byggingarsögulegum
rannsóknum, þar með talið skráningu húsa og mannvirkja,
og miðlun upplýsinga um þær.
Umsóknir eru metnar með tilliti til varðveislugildis,
t.d. vegna byggingarlistar, menningarsögu, umhverfis,
upprunaleika og tæknilegs ástands ásamt gildis hennar fyrir
varðveislu byggingararfleifðarinnar.
Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar, m.a.
úthlutunarreglur, er að finna á heimasíðu Minjastofnunar
Íslands, husafridun.is eða í síma 570 1300.
Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2013.
Minjastofnun Íslands hefur eftirlit með að þær framkvæmdir
sem hún styrkir séu viðunandi af hendi leystar og í
samræmi við innsend gögn. Bent er á leiðbeiningarit
Húsafriðunarnefndar og Húsverndarstofu um viðhald og
viðgerðir eldri húsa í Minjasafni Reykjavíkur/Árbæjarsafni.
MINJASTOFNUN ÍSLANDS,
SUÐURGÖTU 39, 101 REYKJAVÍK
hefðin hefur ekki breyst og það er að festa þessi
merku tímamót á filmu. Feykir hafði samband við
nokkra einstaklinga á Norðurlandi vestra til að fá
myndir af þeim á fermingardegi þeirra.
Fermingar-
dagurinn minn
Svipmyndir
UMSJÓN
Berglind Þotsteinsdóttir Rakel Runólfsdóttir
umsjónarmaður dreifnáms FNV
á Hvammstanga
Fermd 16. apríl 1992
í Siglufjarðarkirkju
Kári Kárason
bæjarstjórnarmaður á Blönduósi
og framkvæmdastjóri Vilko
Fermdur 26. apríl 1981
í Blönduóskirkju
Ragnar Smári Helgason
sveitarstjórnarmaður í Húnaþingi vestra og
sérfræðingur hjá Fæðingarorlofssjóði
Fermdur Pálmasunnudag árið 1995
í Sauðárkrókskirkju
Sigríður B. Aadnegard
skólastjóri
Húnavallaskóla
Fermd skírdag 7. apríl 1977
í Blönduóskirkju
Íris Olga Lúðvíksdóttir
grunnskólakennari
í Varmahlíðarskóla
Fermd 4. apríl 1982
í Keflavíkurkirkju
Mismunandi hefðir og
tískustraumar hafa haft
áhrif á fermingar barna
í gegnum tíðina en ein