Feykir - 07.03.2013, Síða 15
09/2013 Feykir 15
Sævar Óli gerði margt og
mikið á Opnum dögum.
- Á miðvikudeginum fór ég í
Prezi um morguninn, sem er
kennsla í að búa til glæru-
kynningu. Eftir hádegi fór ég í
Sjósundið
skemmtilegast
Viðtal við Sævar Óla Valdimarsson
UMSJÓN
Ágúst Natan
Rúnarsson
félagsvist sem er semsagt spil og kom
skemmtilega á óvart. Svo fór ég einnig í
Streetball í íþróttahúsinu, þá voru körfurnar
lækkaðar og það var hellings fjör. Á
fimmtudeginum fór ég í sjósund fyrir hádegi á
Reykjaströndinni sem var mjög skemmtilegt. Á
föstudeginum fór ég í brids um morguninn en
það var kynning frá Ásgeiri um reglurnar í
Bridsi og leiddi hann okkur í sannleikann um
leyndardómana í því. Eftir hádegi fór ég í
fjarvíddarteikningu með Guðbrandi Ægi og
þar voru kenndar aðferðir um helstu fjarvíddir
sem hægt er að teikna á blöð.
Var það skemmtilegt sem þú gerðir? -Sumt var
alveg skemmtilegt en sumt sem ég fór í var bara
helst til að fylla upp í til að ná kelum sem við
þurfum. [innsk.blm. Kelar eru vottun um
þátttöku].
Hvað var skemmtilegast? -Sjósundið var
skemmtilegast. Það var freistandi að skella sér
ofan í kaldann sjóinn og svo synda smá og fara
svo í Grettislaug eftir á og hafa það rólegt.
Myndir þú vilja gera það aftur? -Já, án efa
myndi ég vilja fara í sjósund aftur, það var bara
svo freistandi að fara ofan í ískaldann sjó.
Hvað finnst þér um Opna daga? -Þeir eru
skemmtilegir og fjölbreyttir. Alltaf gaman að
prófa eitthvað sem er nýtt og fyrir utan efni
skólans.
Æðislegt að vera
miðpunktur alls
Viðtal við Agnesi Báru Aradóttur
Agnes Bára fermdist þann 9. apríl árið 2007 og segir hún
fermingardaginn hafa verið skemmtilegan og stressandi.
Hvað fékkst þú í fermingargjöf ? -Í fermingargjöf fékk ég
svefnpoka, helling af pening, skartgripaskrín og skartgripi og
Manchester United bol.
Hvað fannst þér skemmtilegast við ferminguna og hvað var
leiðinlegast? -Mér fannst skemmtilegast að undirbúa allt fyrir ferminguna. Ég
hjálpaði til við baksturinn og fékk að ráða miklu. Það var líka æðislegt að vera
miðpunktur alls og fá alla athyglina. Hitta alla ættingjana sem komu og vera með
þeim dags part. Leiðinlegast fannst mér samt athöfnin.
Af hverju fermdist þú ? -Mér fannst bara á mínum tíma að það fermdust allir og ég
spáði ekkert í því hvort ég vildi fermast eða ekki. Þá var líka ekki komin borgarleg
ferming eða hún var allavega ekki eins mikið í umræðunni og nú. Svo var allt sem
fylgdi henni eitthvað sem ég hefði ekki viljað missa af, til dæmis myndatökunni,
greiðslunni, gjafirnar og fallegur kjóll.
UMSJÓN
Jóna Kristín
Vagnsdóttir
Fermingin mín er
ein af stærstu minn-
ingum mínum og
það ekki að ástæðu-
lausu því að yfirleitt
hjá flest öllum
fermingarbörnum
fer mikill tími í
undirbúning. Það
Ein stór og
skemmtileg minning
Jón Freyr Gíslason : Fermingardagurinn minn
var í mínu tilfelli u.þ.b. hálft ár, alveg
frá fermingarfræðslu til fermingar-
innar sjálfrar.
Ég byrjaði í fermingarfræðslu í miðjum
nóvember og var búinn í mars en um
áramótin var byrjað að skipuleggja
ferminguna frá grunni. Skreytingar,
matur, föt, boðskort og svokölluð
„dagskrá“ yfir hvað yrði gert í veislunni
var allt skipulagt ýtarlega og dagurinn
nálgaðist skyndilega. Í mínum huga, á
meðan undirbúningnum stóð, var
ferming eitthvað hugtak sem ég vissi að
flest allir 14 ára krakkar gengu í gegnum
sem innihélt kirkjuathöfn og svo veislu,
svo hafði ég oft farið í fermingar áður.
Samt gat ég ekki ímyndað mér að
bráðum þyrfti ég að vera miðpunkturinn
í heilan dag og fannst því tilhugsunin
um að fermast einn alveg hræðileg, en
ég hélt þá að athyglin yrði svo óbærileg
að mínu mati á einn 14 ára ungling.
Þannig ákvað ég að biðja frænku mína
hana Guðrúnu Helgu Magnúsdóttur að
fermast með mér svo við gætum deilt
athyglinni á fermingardeginum og ég
var mjög þakklátur fyrir.
Við fermdumst í Staðarbakkakirkju
þann 13. júní 2010 og var ég fermdur af
séra Guðna á Melstað og Guðrún var
fermd af föður sínum, séra Magnúsi
Magnússyni. Athöfnin gekk vel sem og
veislan og allur þessi undirbúningur
sem fór í þennan eina dag var alveg þess
virði því nú situr þessi dagur eftir sem
einungis ein stór og skemmtileg
minning sem mér finnst alltaf gaman
að minnast til.
UMSJÓN
Jón Freyr
Gíslason og
Heiðrún Marý
Björnsdóttir
Feykir þakkar krökkunum í
fjölmiðlahópnum fyrir góð störf
og óskar þeim góðs gengis
í framtíðinni.