Fréttablaðið - 16.05.2018, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 16.05.2018, Blaðsíða 18
Lyfjafyrirtækið Alvogen hefur ráðið fjárfestingar-bankann Jefferies sem ráðgjafa í tengslum við mögulega sölu á starfsemi fyrirtækisins í mið- og austurhluta Evrópu. Í fjárfestakynn- ingu sem bankinn hefur útbúið og Markaðurinn hefur undir höndum kemur fram að starfsemin hafi skilað tekjum upp á um 200 milljónir dala, sem jafngildir um 20,6 milljörðum króna, á síðasta ári. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) sem hlutfall af tekjum er jafnframt sagður hafa verið mitt á milli 20 og 30 pró- sent á árinu. Í kynningunni, sem er dagsett 5. apríl, er ekki minnst berum orðum á Alvogen heldur er félag að nafni Alloy Group sagt hafa ráðið Jefferies til þess að veita ráðgjöf vegna sölunnar. Af efnisatriðum kynningarinnar má þó ljóslega ráða að hún fjalli um starfsemi lyfjafyrirtækisins Alvogen í Mið- og Austur-Evrópu. H a l l d ó r K r i s t m a n n s s o n , framkvæmdastjóri hjá Alvogen, sagðist í samtali við Markaðinn ekki vilja tjá sig um trúnaðargögn. Hann sagði við Viðskiptablaðið í mars að engin ákvörðun hefði verið tekin um að selja starfsemi fyrirtækisins í Evrópu. Umrætt verkefni ber vinnuheitið „Project Nuna“. Í kynningunni er starfsemi Alvogen í mið- og austur- hluta Evrópu kynnt sem ákjósanlegur fjárfestingarkostur. Er fyrirtækið sagt vera í góðri stöðu til þess færa sér í nyt þau miklu vaxtartækifæri sem fyrir hendi eru á evrópskum nýmörk- uðum, en tekið er fram að gert sé ráð fyrir að lyfjamarkaðurinn í þessum hluta álfunnar vaxi að meðaltali um 5,2 prósent á ári frá 2016 til 2020. Mun veltan á markaðinum þá vera um 22,4 milljarðar evra, 2.738 millj- arðar króna, árið 2020. Búist er við sérstaklega miklum vexti á Rússlandsmarkaði, að því er segir í kynningunni, eða um 8 prósent að meðaltali á ári næstu þrjú árin. Vöxtur starfseminnar síðustu átta árin er rakinn með ítarlegum hætti í kynningunni. Er sala Alvogen á svæðinu sögð hafa vaxið að meðaltali um 30 prósent á ári frá árinu 2011, árleg velta sé nú um 200 milljónir dala og EBITDA-hlutfall jafnframt í kringum 25 prósent. Miðað við hefðbundna EBITDA- margfaldara fyrir lyfjafyrirtæki á nýmörkuðum gæti heildarvirði Alvogen í Mið- og Austur-Evrópu þannig numið hátt í einum milljarði dala, samkvæmt lauslegum útreikningum Markaðarins, eða sem jafngildir ríflega 100 milljörðum króna. Er það í samræmi við það sem heimildarmenn Reuters tjáðu fréttaveitunni í síðasta mánuði. Yfir 900 manns starfa hjá Alvogen í mið- og austurhluta Evrópu og þar af um 450 í sölu- og markaðsmálum. Fyrirtækið hefur vaxið hratt í álfunni með samrunum og yfirtökum en til dæmis festi það kaup á rússneska lyfjafyrirtækinu Omega Bittner á síðasta ári og Labormed, sem var eitt stærsta samheitalyfjafyrirtæki í Rúmeníu, árið 2012. Alvogen er í meirihlutaeigu alþjóðlegu fjárfestingarsjóðanna CVC Capital Partners og Temasek. Morgunblaðið greindi frá því í mars að Róbert Wessmann, forstjóri og stofnandi Alvogen, ætti tilkall til ríflega 22 prósenta hlutar í lyfjafyrirtækinu. Fram kom að hlutur Róberts væri vistaður í sjálfseignarsjóði á Jersey. Staðfesti Árni Harðarson, aðstoðarforstjóri Alvogen, að sjóðurinn hefði eignast 74 prósenta hlut í eignarhaldsfélaginu Aztiq Finance Holding í Lúxemborg árið 2015 en það félag fer með um 30 prósenta hlut í lyfjafyrirtækinu. Árni hafnaði því hins vegar að Róbert réði yfir hlutnum í raun. Markaðinum barst bréf frá lög- mannsstofunni White & Case í Lundúnum þar sem þess var krafist, fyrir hönd Alvogen Lux Holdings, að ekki yrði greint frá innihaldi kynn- ingarinnar sem blaðið hefur undir höndum. Að öðrum kosti áskildi félagið sér allan rétt til þess að grípa til lagalegra úrræða, þar á meðal að fara fram á lögbann. hordur@frettabladid.is, kristinningi@frettabladid.is Alvogen ræður Jefferies sem ráðgjafa Bankinn Jefferies hefur verið ráðinn til þess að veita lyfjafyrirtækinu Alvogen ráðgjöf við mögulega sölu á starfsemi þess í Mið- og Austur-Evrópu. Bankinn hefur útbúið kynningu á starfseminni fyrir fjárfesta. Starfsemin gæti verið allt að 100 milljarða króna virði. 200 milljónir dala voru tekjur Alvogen í Mið- og Austur- Evrópu í fyrra. Róbert Wessman, forstjóri Alvogen, stofnaði lyfjafyrirtækið með samstarfsmönnum sínum árið 2009. FRéttAblAðið/EyþóR 1 6 . m a í 2 0 1 8 m I Ð V I K U D a G U R4 MArkAðurinn 1 6 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :3 8 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K _ N Ý. p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K _ N Ý. p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F C 8 -3 6 C C 1 F C 8 -3 5 9 0 1 F C 8 -3 4 5 4 1 F C 8 -3 3 1 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.