Fréttablaðið - 16.05.2018, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 16.05.2018, Blaðsíða 38
Hafðu lyfin tilbúin þegar þú sækir Pantaðu tiltekt á appotek.is eða í síma 568 0990 Garðs Apótek - í leiðinni Fáðu lyfin send heim með póstinum Pantaðu sendingu á appotek.is Garðs Apótek - um land allt Sogavegi við Réttarholtsveg og Miklubraut Opið kl. 9-18 virka daga, lokað um helgar TónlisT Djasstónleikar HHHHH stórsveit Reykjavíkur flutti nýja íslenska tónlist. Silfurberg í Hörpu sunnudaginn 13. maí Djass er ekki bara djass, heldur greinist hann í þrjár megingerðir og um fjörutíu undirgerðir, sumar þeirra töluvert ólíkar. Á árlegum vortónleikum Stórsveitar Reykja- víkur í Silfurbergi í Hörpu upplifði maður að nokkru þessa skemmti- legu fjölbreytni. Þar mátti heyra fleiri en eina stíltegund, meira að segja blús. Blúsinn er reyndar alveg sjálfstætt tónlistarform, þótt sterkar tengingar séu við djassinn. Einu sinni var mun- urinn á djassi og blús skilgreindur svona: Blússpilarinn leikur þrjá hljóma fyrir þúsund áheyrendur, en djassarinn spilar þúsund hljóma fyrir þrjá áheyrendur. Þetta er ein- földun, en það er sannleikskorn í henni. Djassinn er svo miklu víð- feðmari og fyrir bragðið torskildari. Blúsinn sem hér heyrðist var reyndar mjög djassskotinn og var eftir Eirík Rafn Stefánsson. Tónlistin var djörf og skemmtilega flippuð; sólóin leiftr- andi fjör. Útkoman var stórfengleg. Öll músíkin á efnisskránni var frumflutt eins og vaninn er á vortónleikum Stórsveitarinnar. Djasspíanistinn knái, Agnar Már Magnússon, átti tvö lög. Hann tók þó ekki sjálfur þátt í flutningnum, heldur var það Kjartan Valdemars- son, annar frábær píanisti, sem sá um píanórulluna. Lög Agnars voru margbrotin. Þau einkenndust af skýrt afmörkuðum flötum, svell- andi málmblástursleik, ísmeygileg- um píanókafla, áleitnu slagverki og vímukenndum saxófónleik. Hver kafli kallaði fram sinn galdur, mel- ódíurnar voru grípandi og heildin mögnuð. Lögin eftir Hauk Gröndal voru allt öðru vísi, en ekkert síðri. Það fyrra, Ecko, var ákaflega kliðmjúkt, með margbrotnum, litríkum tóna- hendingum og fíngerðum rytma. Hið síðara, The White Tower, byrj- aði á seiðandi trommuleik sem lá undir dempuðu brassi. Von bráðar hurfu dempararnir og tónlistin reis upp í tignarlegan hápunkt. Þar blésu spilararnir sem mest þeir máttu. Það var afar áhrifamikið. Sigurður Flosason átti líka atriði á tónleikunum sem var sérlega heillandi. Sigurður spilaði sóló; saxófónninn hans og slagverks- leikur Jóhanns Hjörleifssonar voru í raun burðarás tónlistarinn- ar. Kjartan píanóleikari hristi þó síðar glæsilegan einleikskafla fram úr erminni og Jóhann tók sömu- leiðis flott sóló. Músíkin í heild var spennandi, ögn þráhyggjukennd, en á góðan máta. Lag eftir Kjartan Valdimarsson var jafnframt á dagskránni. Það var einkar fallegt. Eins konar film noir stemning sveif yfir vötnunum. Stefin voru hrífandi og nostalgískt flygilhorn á einum tímapunkti full- komnaði töfrana. Fyrir þá sem ekki vita svipar flygilhorninu útlitslega til trompetsins, en er aðeins stærra og hljómurinn mýkri. Snorri Sigurðarson stjórnaði hljómsveitinni og gerði það af léttleika og öryggi, auk þess sem hann kynnti dagskrána á afslapp- aðan hátt. Heildarhljómurinn var fagurlega mótaður og í fullkomnu styrkleikajafnvægi. Samspilið var nákvæmt og leikstíllinn snarpur; stuð var alltaf í fyrirrúmi. Þetta voru glæsilegir tónleikar og enn eitt dæmið um þá miklu grósku sem ríkir í djassinum hér á landi, en þar á Stórsveitin drjúgan hlut að máli. Jónas Sen niðuRsTaða: Hvert lag var öðru betra og tónlistarflutningurinn var í fremstu röð. Frá þremur hljómum upp í þúsund Það er mikil gróska sem ríkir í djassinum hér á landi, en þar á Stórsveitin drjúgan hlut að máli, segir í dómnum. 1 6 . m a í 2 0 1 8 m i ð V i K u D a G u R18 m e n n i n G ∙ F R É T T a B l a ð i ð menning 1 6 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :3 8 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F C 8 -0 5 6 C 1 F C 8 -0 4 3 0 1 F C 8 -0 2 F 4 1 F C 8 -0 1 B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.