Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.05.2018, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 23.05.2018, Qupperneq 2
Veður Suðvestan kaldi með skúrum í dag, en léttskýjað á norðaustanverðu landinu. Hægari og úrkomulítið síðdegis. Hiti 5 til 13 stig, hlýjast norðaustanlands. SJÁ SÍÐU 18 Blekhylki.is, S. 517 0150 – 2. hæð Smáralind Ódýr blekhylki og tónerar! Blautt og kalt í borginni Veðrið hefur ekki beinlínis leikið við íbúa og gesti á höfuðborgarsvæðinu undanfarna daga og vikur og sólin hefur lítið látið sjá sig þrátt fyrir að júní sé handan við hornið. Þessir ferðamenn sem stóðu við Hallgrímskirkju í gær voru ekki upplitsdjarfir á að líta, en það var blautt og kalt í borginni í gær. Útlit er fyrir aðeins bjartari tíma og búist við minni úrkomu í dag en í gær. Þá verður hiti á bilinu fimm til níu stig. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN SKIPULAGSMÁL Eigandi jarðarinnar Hrauntungu í Garðabæ furðar sig á því að bæjaryfirvöld synji honum um að reisa íbúabyggð á lóðinni. Hann segir bæjaryfirvöld meðal annars bera fyrir sig vilja fyrri eig- anda, manns sem lést árið 2009, um að lóðin skyldi haldast óbyggð og gróðurinn sem fyrri eigandi hafði lagt sál sína í að rækta varðveittur. Lögmaður núverandi eiganda segir þennan vilja hvergi koma fram í opinberum gögnum, kvöðum á eigninni, erfðaskrá hins látna né annars staðar. Svo virðist sem ein- hvers konar munnlegt samkomulag haldi lóðinni í gíslingu. Ákvörðun bæjarins um að synja eigandanum um deiliskipulag á lóðinni hefur verið kærð til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Jörðin Hrauntunga er 3,2 hektarar og á henni stendur 364 fermetra hús. Fyrri eigandi bjó þar lengi en arfleiddi ýmis samtök að jörðinni þegar hann lést í apríl 2009. Nýir eigendur fólu síðar Ríkiskaupum að selja hana og keypti félagið Dalsnes ehf., sem er í eigu Ólafs Björns- sonar, fasteignina og lóðaréttindin árið 2011. Árni Helgason, lögmaður Dalsness ehf., segir að hvergi í sölu- ferli eignarinnar hafi komið fram að kvaðir fylgdu henni. Afstaða bæjar- yfirvalda til þess að skipulögð verði íbúabyggð með sérbýli og íbúðir á lóðinni valdi miklum vonbrigðum, enda verulegur skortur á húsnæði fyrir ungt fólk á höfuðborgarsvæð- inu. „Við höfum alltaf verið að kalla eftir því hjá bænum hvar jörðin var sett í þessi álög um aldur og ævi en það hefur aldrei komið í ljós þrátt fyrir að það hafi litað afstöðu bæjar- ins í málinu,“ segir Árni og bendir á að allt um kring séu áþekkar lóðir sem skipt hafi verið upp í íbúabyggð á sínum tíma. Ef hugmyndin sé að jörðin nýtist fólki til útivistar þurfi eitthvað að breytast. „Þetta er einkalóð í dag og það væri heiðarlegra ef bærinn keypti þetta þá og breytti í grænt svæði. En það hefur ekki verið neinn vilji í þá átt heldur.“ Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, segir þó í samtali við Fréttablaðið að hann sé opinn fyrir þeim möguleika að bærinn kaupi jörðina aftur, berist tilboð um slíkt, enda minnugur hugmyndar fyrri eiganda um að jörðin standi órösk- uð. Vilji sé fyrir því hjá bænum að svæðið verði grænt en ekki undir- lagt þéttri íbúabyggð. „Við leggjum mikið upp úr því að halda í græn svæði og þarna er skógrækt og mikil saga á bak við. Það skiptir máli að mínu mati. Að ekki sé byggt út í allar línur.“ Nýjar hugmyndir Dalsness um jörðina voru lagðar fyrir bæjarráð í gær. Þar er leitað álits á því að húsið á jörðinni verði rifið, byggt þúsund fermetra einbýlishús í staðinn sem nýtt yrði til útleigu fyrir ferðamenn og lóðin girt af. Slíkt myndi falla innan núverandi skipulagsheimilda. Árni spyr sig þó hvort það sé virkilega það sem menn vilji, fyrst Garðabær lýsi sig mótfallinn íbúa- byggð á lóðinni. mikael@frettabladid.is Segir lóðina í gíslingu Eigandi Hrauntungu í Garðabæ hefur kært synjun á deiliskipulagi fyrir íbúa- byggð til úrskurðarnefndar. Lögmaður eigandans segir bæinn bera fyrir sig loforð við fyrri eiganda, sem lést árið 2009, um að lóðin skuli standa óröskuð. Stór jörð sem eigandinn fær ekki að breyta í íbúabyggð. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar. Árni Helgason, lögmaður. STJÓRNMÁL Stjórn Samfylkingarinn- ar segir ásakanir fjögurra meðlima #daddytoo-hópsins svokallaða, um Heiðu Björgu Hilmisdóttur, varafor- mann flokksins og borgarfulltrúa, úr lausu lofti gripnar. Forsaga málsins er sú að Huginn Þór Grétarsson, Hugi R. Ingibjarts- son, Stefán Páll Páluson og Friðgeir Örn Gunnarsson, meðlimir#daddy- too-hópsins kröfðu Heiðu Björgu um opinbera afsökunarbeiðni, en þeir segja hana hafa sakað þá um að vera ofbeldismenn í útvarpsþætt- inum Harmageddon í marsmánuði. Yfirlýst markmið #daddytoo-hóps- ins er að sýna hversu algeng feðra- svipting er á Íslandi með því að safna reynslusögum feðra. Stjórn Samfylkingarinnar hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem flokkurinn hafnar ásökunum í garð Heiðu Bjargar. „Í bréfinu eru meint ummæli Heiðu Bjargar ekki tilgreind með nákvæmum hætti og því óljóst hvað hún á að hafa gerst sek um. Hins vegar hafa einstaklingar er segjast koma fram fyrir hönd daddytoo hópsins ítrekað á undanförnum tveimur mánuðum sakað Heiðu Björgu opinberlega um að hafa sagt nafngreinda einstaklinga innan hópsins hafa beitt barnsmæður sínar ofbeldi. Allar þær ásakanir eru úr lausu lofti gripnar,“ segir í yfirlýsingunni. Þar segir enn fremur að Heiða Björg hafi farið fram fyrir hópi sem berst gegn ofbeldi. Undir yfirlýsinguna skrifa Logi Einarsson formaður, Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir, formaður framkvæmdastjórnar, Þórarinn Snorri Sigurgeirsson ritari, Hákon Óli Guðmundsson gjaldkeri og Oddný G. Harðardóttir þingflokks- formaður. – dfb Stjórnin styður Heiðu Björgu Heiða Björg Hilmisdóttir ÁRNESHREPPUR Tvö af sex málum varðandi skráningu lögheim- ilis í Árneshreppi sem út af stóðu hjá Þjóðskrá í síðustu viku voru afgreidd í gær. Í öðru tilfellinu var skráning lögheimilis staðfest en felld niður í hinu. Með þessu hafa samtals þrettán af átján sem skráðu sig til lögheimilis í Árneshreppi á tveimur vikum áður en frestur til þess vegna sveitar- stjórnarkosningananna var úti horf- ið aftur af skránni. „Í þeim fjórum málum sem eftir standa er frestur til að skila inn athugasemdum ekki liðinn og verða þau afgreidd síðar í vikunni,“ segir Ástríður Jóhannes- dóttir, sviðsstjóri hjá Þjóðskrá. Á fundi hreppsnefndar sem lauk á tíunda tímanum í gærkvöldi voru þessir þrettán færðir af kjörskrá. „Við fórum eftir niðurstöðum Þjóð- skrár. Þannig fór það,“ sagði Eva Sig- urbjörnsdóttir, oddviti hreppsins, að fundi loknum. – gar, gþs Enn fækkar í Árneshreppi 2 3 . M A Í 2 0 1 8 M I Ð V I K U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 3 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :4 5 F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F D E -5 B 0 C 1 F D E -5 9 D 0 1 F D E -5 8 9 4 1 F D E -5 7 5 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 5 6 s _ 2 2 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.