Fréttablaðið - 23.05.2018, Side 8

Fréttablaðið - 23.05.2018, Side 8
Alltaf til staðar www.n1.is facebook.com/enneinn Maí tilboð 35% afsláttur 9.718 kr. Verð áður: 14.950 kr. 3.244 kr. Verð áður: 4.990 kr. 8.866 kr. Verð áður: 13.640 kr. 9.037 kr. Verð áður: 13.903 kr. 9.742 kr. Verð áður: 14.987 kr. 12.935 kr. Verð áður: 19.990 kr. Fristads jakki vattfóðraður Vnr: 9613 122221 Vatteraður léttur og flottur jakki. Hægt að sérpanta í dökkbláum. Litur: Svart. Stærðir: XS-3XL. Fristads pólóbolur Vnr: 9613 100780 Pólóbolur með hnepptu hálsmáli. Hægt að sérpanta fl liti. Litur: Svartur, Dökkblár. Stærðir: XS-4XL. Fristads jakkapeysa Vnr: 9613 125026 Fristads jakkapeysa. Hægt að sérpanta fl liti. Litir: Grár/svartur. Stærðir: S-3XL. Fristad buxur Vnr: 9613 121632 Streach efni sem gerir buxurnar mjög þægilegar að vera í. Henta vel í alla almenna vinnu. Litur: Svart og grátt. Stærðir: 48-66. Fristads hettupeysa Vnr: 9613 LYS7783/110309 Efni: 100% polyester. Litur: Svartur. Stærðir: XS- 3XL. Jogging iðnaðarbuxur Vnr: 9613 126512 Lausir vasar fyrir iðnaðarmenn. Vasar á lærum. Frábærar buxur fyrir iðnaðarmanninn Litur: Svart. Stærðir: XS-2XL. Akureyri s. 440 1420 • Höfn s. 478 1940 • s. 456 3574 • Húsavík s. 440 1448 • Blönduós s. 467 1010 s. 440 1330 • Ólafsvík s. 436 1581 • s. 456 1245 s. 474 1293 • Reykjanesbær s. 421 4980 • Vestmannaeyjar s. 481 1127 Tökum við pöntunum fyrir Hólavallagarð, Gufuneskirkjugarð, Fossvogskirkjugarð, Sólland og Kópavogskirkjugarð. Upplýsingar alla virka daga frá kl. 9 - 16 í síma 585 2770 og 585 2770 Einnig er hægt að panta beint af vefnum www.kirkjugardar.is Blóm á grafreiti MALASÍA Shukri Abdull, sem stýrði og stýrir rannsókn á hinu svokall- aða 1MDB-spillingarmáli í Malasíu, lýsti því á blaðamannafundi í höfuð- borginni Kúala Lúmpúr í gær þegar hann fékk tíðar morðhótanir fyrir störf sín. Málið sem Shukri rannsakar gengur út á að Najib Razak, þáver- andi forsætisráðherra Malasíu, sé sakaður um að hafa stolið rúmlega sjötíu milljörðum króna úr 1MDB- sjóðnum, þróunarsjóði malasíska ríkisins. Málið reyndist Razak erfitt í þingkosningum fyrr í mánuð- inum. Tapaði bandalag íhaldsflokka þá meirihluta í fyrsta sinn  í sögu malasísks lýðræðis. Mahathir Mohamad, 92 ára gamall fyrirrennari Razaks sem for- sætisráðherra og leiðtogi BN, banda- lags íhaldsflokka, keyrði á málinu í kosningabaráttu sinni. Nú eftir að Mahathir  náði kjöri skipaði hann fyrrnefndan Shukri  aftur sem for- mann MACC, nefndarinnar gegn spillingu. Shukri hafði áður þurft að flýja land vegna hótana. „Mér var hótað uppsögn, ég var beðinn um að fara snemma á eftir- laun, fara í frí og var svo dreginn inn í starfsendurhæfingu. Mér bárust hót- anir yfir Whatsapp, fólk hótaði mér á heimili mínu og ég fékk byssukúlur í pósti,“ sagði Shukri á blaðamanna- fundi gærdagsins. Shukri var nálægt því að bresta í grát þegar hann lýsti þessari lífs- reynslu. Rannsókn MACC hefði leitt í ljós að til stæði að handtaka Shukri og fangelsa. Saka hefði átt hann um samsæri gegn ríkisstjórninni. „Við vildum ná aftur í fé sem stolið var af ríkinu. Í staðinn vorum við sökuð um að reyna að ráðast á Malasíu. Við vorum sökuð um landráð,“ sagði Shukri. Najib Razak hefur alla tíð neitað sök í málinu. Gerði hann væntan- lega slíkt hið sama þegar hann kom til yfirheyrslu hjá MACC í síðustu viku. Najib hefur haldið því fram að milljarðarnir 70 hafi verið gjöf frá sádiarabískum prins. Lögregla gerði áhlaup á ýmsar eignir tengdar Najib í síðustu viku. Gerði hún upptæk 284 veski frá stærstu tískuhúsum heims, 72 sekki af seðlum auk ýmissa skartgripa og úra. Talningu seðlanna úr sekkj- unum er ekki enn lokið. thorgnyr@frettabladid.is Tóku sekki af seðlum Shukri Abdull sagði meðal annars frá tíðum morðhótunum á blaðamannafundinum í gær. NORDICPHOTOS/AFP Maðurinn sem stýrir rannsókn á umfangs- miklu spillingarmáli fyrrverandi forsætisráð- herra Malasíu er snúinn aftur eftir að hann flúði land vegna hótana. Save the Children á Íslandi ÍTALÍA Um leið og Fimm stjörnu hreyfingin og Bandalagið, popúl- istaflokkarnir sem náð hafa sam- komulagi um ríkisstjórnarmyndun á Ítalíu, tilkynntu að þeir vildu gera lítt þekkta lögfræðinginn Giuseppe Conte að forsætisráðherra voru stór spurningarmerki sett við menntun Conte. Conte, sem Sergio Mattarella á eftir að samþykkja að verði for- sætisráðherra, segir á ferilskrá sinni að hann hafi stundað lögfræðinám við New York University (NYU) til að dýpka þekkingu sína árin 2008 og 2009. En bæði Corriere della Sera og La Repubblica greindu frá því að engan með þessu nafni væri að finna í skrám háskólans. Nefnir Conte einnig austurríska International Kultur Institut og hinn breska Cambridge, auk ann- arra skóla. Reuters greindi frá því að nafn Conte hefði ekki verið að finna í skrám Cambridge og þá sagði The Guardian frá því að austurríski háskólinn væri tungumálaskóli, en Conte sagðist hafa lært lögfræði þar. – þea Menntun Conte véfengd VENESÚELA Viðskiptaþvinganir sem Bandaríkin innleiddu gegn Venesú- elamönnum í kjölfar forsetakosn- inga helgarinnar eru „glæpur gegn mannkyninu“. Þetta fullyrti utan- ríkisráðuneyti Venesúela í gær. Bandaríkin eru eitt þeirra ríkja sem viðurkenna ekki forseta- kosningarnar og ákvað Donald Trump forseti á mánudag að sam- þykkja þvinganir sem gera Venesú- elamönnum erfitt að selja eignir ríkisins. Það kemur sér illa fyrir ríkisstjórn Nicolas Maduro, sem var endurkjörinn á sunnudag, enda er ríkið í afar djúpri kreppu. Venesúelastjórn hefur reglu- lega kennt Bandaríkjunum um þá kreppu og sagt ríkið heyja efna- hagslegt stríð gegn sér. „Venesúela fordæmir enn á ný kerfisbundna herferð og árásargirni Bandaríkja- stjórnar sem reynir að refsa Venesú- elamönnum fyrir að nýta sér kosn- ingaréttinn,“ sagði í tilkynningunni í gær. Maduro fékk 68 prósent atkvæða en stjórnarandstaðan sniðgekk kosningarnar að mestu. Hefur stjórnarandstaðan sagt að Maduro svindli og því séu kosningarnar marklausar. – þea Segja þvinganirnar glæp Conte segir á ferilskrá sinni að hann hafi stundað lögfræðinám við New York University (NYU). 2 3 . M A Í 2 0 1 8 M I Ð V I K U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 3 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :4 5 F B 0 5 6 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F D E -9 6 4 C 1 F D E -9 5 1 0 1 F D E -9 3 D 4 1 F D E -9 2 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 5 6 s _ 2 2 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.