Fréttablaðið - 23.05.2018, Blaðsíða 11
Það má ekki alltaf vera fyrsta
svar hins opinbera að seilast
dýpra og dýpra ofan í vasa
heimilanna í landinu.
Hæstvirtur ríkissaksóknari, Sigríður Friðjónsdóttir.Starfshópur sem heilbrigðis-
málaráðherra skipaði árið 2016
til þess að setja saman tillögur um
nýtingu erfðaupplýsinga til forvarna
skilaði af sér á mánudaginn. Í til-
lögum starfshópsins kemur fram að
hann geri sér grein fyrir því að þeir
sem beri íslensku stökkbreytinguna
í BRCA2 séu í lífshættu. Starfshópur-
inn tjáir síðan þá skoðun sína að það
bryti í bága við lög að vara arfberana
við hættunni sem væri fyrsta skrefið
til þess að koma þeim til hjálpar. Það
er sjálfsagt að bera í bakkafullan læk-
inn að benda þér á 221. gr almennra
hegningarlaga sem er svona:
„Láti maður farast fyrir að koma
manni til hjálpar, sem er staddur í
lífsháska, þótt hann gæti gert það
án þess að stofna lífi eða heilbrigði
sjálfs sín eða annarra í háska, þá
varðar það fangelsi allt að 2 árum,
eða sektum, ef málsbætur eru.“
Starfshópurinn hefur ekkert gert
til þess að bjarga arfberunum úr lífs-
hættunni þótt það séu til aðferðir
sem duga í flestum tilfellum og
reynir að sannfæra aðra um að það
væri brot á lögum ef þeir gerðu það.
Þetta er klárlega margfalt brot á
221. greininni vegna þess að fjöldi
manns er nú staddur í lífsháska
vegna stökkbreytingarinnar.
Með þessu bréfi fer ég formlega
fram á að þú skoðir þann möguleika
að starfshópurinn hafi gerst sekur
um refsivert athæfi.
Með þökk,
Kári Stefánsson
Skyldan til þess að bjarga lífi
– Opið bréf til ríkissaksóknara
Sjálfstæðisflokkurinn hefur fyrir þessar borgarstjórnarkosningar kynnt skynsamlega og metn-
aðarfulla stefnu í mörgum málum
sem auka mun lífsgæði borgaranna
og bæta daglegt líf, til að mynda í
dagvistunar- og leikskólamálum.
Fleiri valkostir, fjölbreyttari þjón-
usta. Ekki er vanþörf á því að nýleg
þjónustukönnun í stærstu sveitar-
félögum landsins sýnir að hvergi eru
íbúarnir óánægðari með þjónustu
leikskóla og grunnskóla en í Reykja-
vík, sjálfri höfuðborg landsins.
Borgin hefur brugðist á fleiri
sviðum. Hún fær falleinkunn á fimm
af níu mælikvörðum fjármála í nýrri
skýrslu Samtaka atvinnulífsins. Og
hún er Íslandsmeistari í skattbyrði
í flokki stærstu sveitarfélaga lands-
ins, því að ekkert þeirra tekur til sín
hærra hlutfall af tekjum íbúanna en
Reykjavík gerir.
Þetta er afleitt og þessu ætlar
Sjálfstæðisflokkurinn að breyta. Það
má ekki alltaf vera fyrsta svar hins
opinbera að seilast dýpra og dýpra
ofan í vasa heimilanna í landinu, oft
til að fjármagna óskilvirkt og þung-
lamalegt bákn. Stjórnvöld verða að
líta í eigin barm, hagræða og for-
gangsraða.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur því
boðað að hann ætli að lækka útsvar
borgarbúa í þrepum á hverju ári þar
til það verður komið undir 14 pró-
sent. Þetta eru góð og skynsamleg
áform sem auka munu ráðstöfunar-
tekjur einstaklinga og fjölskyldna í
Reykjavík. Það er kominn tími til að
breyta í borginni.
Álögur lækki í Reykjavík
Þórdís Kolbrún
Reykfjörð
Gylfadóttir
varaformaður
Sjálfstæðis-
flokksins
Kári Stefánsson
forstjóri
Íslenskrar
erfðagreiningar
Meirihluti Reykvíkinga ferðast einn um í bíl. Annar stærsti kostnaðar-
liður heimilanna er samgöngur.
Samkvæmt FÍB kostar rekstur lítils
fólksbíls yfir milljón á ári og mörg
heimili reka fleiri en einn.
Beinn kostnaður borgarinnar af
rekstri og viðhaldi gatnakerfisins er
um 3,2 milljarðar á ári. Tekjur borg-
arinnar af bílum eru engar umfram
bílastæðagjöld.
Borgin er skipulögð í kringum
bíla og hlutfall samgöngumann-
virkja af landnotkun er 48%. Þrátt
fyrir að bíllinn sé í forgangi og að
stofnbrautir kljúfi borgina og hverfi
borgarinnar og þrátt fyrir að mis-
læg gatnamót greiði fyrir umferð
inni í borginni þá hægist á umferð
á háannatíma.
Það hægist á umferð þar sem stór
hluti fólks ferðast sömu leiðir til og
frá vinnu á sama tíma, hver og einn í
sínum bíl. Til þess að bílarnir komist
leiðar sinnar höfum við 4-8 akreina
hraðbrautir sem liggja milli úthverfa
Reykjavíkur, nágrannasveitarfélaga
og borgarinnar þar sem stór hluti
stundar nám eða vinnu.
Ferðatími fólks í borginni hefur
lengst um 1-2 mínútur í hverri ferð
á seinustu árum. Umferðin hefur
þyngst og fólk er 1-2 mínútum leng-
ur í bílnum í hverri ferð. Aðspurður
vill meirihluti Reykvíkinga setja
borgarlínu, strætó og hjólreiðar í
forgang þegar spurt er út í umbætur
á samgöngukerfi borgarinnar. Þriðj-
ungur nefnir stofnvegakerfið.
Stofnkostnaður við borgarlínu
felst í að leggja og reka forgangsak-
reinar og gera skýlin rúmgóð, hlý og
þægileg og aðgengileg öllum. Þessar
forgangsreinar, ef notaðar undir
almenna umferð, myndu kosta
jafnmikið en hafa mjög takmörkuð
áhrif á umferðarflæði og ferðatíma.
Rekstrarkostnaður borgarlínu
mun vera vegna rekstrar rafmagns-
vagna sem keyra á 5-10 mínútna
tíðni óhindrað eftir helstu sam-
gönguleiðum borgarinnar. Far-
þegar borgarlínu munu taka þátt í
þeim rekstrarkostnaði með farþega-
gjöldum.
Kostnaður við einkabílinn leggst
þyngst á heimilin, sem greiða fleiri
milljónir á ári fyrir rekstur einka-
bíla og finnst þau ekki hafa val
um annað. Kostnaður borgarinnar
við rekstur vegakerfisins er um 3,2
milljarðar á ári og við það leggst
svo rekstur stofnbrauta sem er hjá
ríkinu. Samfélagslegur kostnaður
vegna umferðarslysa er gríðarlegur
og áætlað er að rekja megi 80 dauðs-
föll á ári til svifryksmengunar.
Með því að segja já við borgarlínu
og horfa til framtíðar þá munum við
sjá styttri ferðatíma, minni sam-
göngukostnað fyrir heimilin, hag-
kvæmari rekstur samgöngukerfis
borgarinnar, minni mengun og
meira frelsi fólks til að ferðast um
höfuðborgina.
Því segi ég Borgarlína, já takk!
Borgarlína, nei takk?
Kristín Soffía
Jónsdóttir
borgarfulltrúi
Samfylkingar
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt:
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
Við látum framtíðina rætast.
Komdu við hjá sérfræðingum
okkar að Laugavegi 174 og kynntu þér úrval Volkswagen atvinnubíla í einni fjölhæfustu
fjölskyldu landsins.
FJÖLHÆFASTA
FJÖLSKYLDA
LANDSINS?
Glæsilegur og vel út búinn pallbíll
með 3.0 lítra, 225 hestafla, V6
dísilvél, 550 Nm togi, læst afturdrif,
dráttarbeisli, heithúðun á palli,
stigbretti, vetrardekk og nú á
einstöku tilboðsverði.
Volkswagen Amarok
verð frá 7.890.000 kr.
Hannaður með þarfir iðnaðar-
manna að leiðarljósi og með
átta þrepa sjálfskiptingu fyrir
allar útgáfur. Fjöldi útfærslna
á hleðslurými, farþegarými og
aðstoðarkerfi.
Volkswagen Crafter
verð frá 5.610.000 kr.
Einn vinsælasti atvinnubíll
á Íslandi undanfarin ár.
Áreiðanlegur, öruggur og
fæst í tveimur lengdum,
fjórhjóladrifinn og í fjölda
útfærslna.
Volkswagen Caddy
verð frá 2.590.000 kr.
Transporter hefur fylgt
kynslóðum af fólki sem hefur
þurft á traustum og áreiðan-
legum vinnuþjarki. Fulkomin
stöðugleikastýring, spólvörn og
sjö þrepa sjálfskipting.
Volkswagen Transporter
verð frá 4.180.000 kr.
S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 11M i ð V i k u D A G u R 2 3 . M A í 2 0 1 8
2
3
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:4
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
D
E
-8
2
8
C
1
F
D
E
-8
1
5
0
1
F
D
E
-8
0
1
4
1
F
D
E
-7
E
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
2
2
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K