Fréttablaðið - 23.05.2018, Síða 16

Fréttablaðið - 23.05.2018, Síða 16
MARKAÐURINN ÚTGÁFUFÉLAG 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5800 Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 512 5800 Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang frettabladid.is SÍMI 510 6000 - WWW.SVAR.IS FRAMTÍÐARLAUSN Í BÓKHALDINU FJÁRHAGUR VIÐSKIPTAVINIR LÁ NA DR OT TN AR VERKBÓKHALD BIRGÐIR LA UN AB ÓK HA LD ÞÍN STAFRÆNA FRAMTÍÐ – Tengir þig við framtíðina! Sjónvarpsdreifikerfi fyrir hótel, gistiheimili og skip. Auðbrekku 3 • Kópavogur • s. 564 1660 oreind@oreind.is • www.oreind.is Stærsti hluthafi Stoða, fjárfesta-hópur sem samanstendur meðal annars af Jóni Sigurðs- syni, Einari Erni Ólafssyni og Magnúsi Ármann, keypti 4,6 pró- senta hlut í fjárfestingarfélaginu af erlendum fjármálastofnunum á seinni hluta síðasta árs. Hópurinn átti tæplega 55 prósenta hlut í Stoð- um í lok ársins. F j á r f e s t a h ó p u r i n n k e y p t i umræddan eignarhlut í gegnum félagið S121 af fjármálastofnunum Tavira Securitas og Lux CSD. Eins og upplýst var í Markaðinum í síðustu viku munu Stoðir á næstu vikum gera öllum minni hluthöfum, meðal annars ýmsum íslenskum líf- eyrissjóðum og erlendum fjármála- stofnunum, tilboð um að kaupa bréf þeirra í félaginu. Eigið fé fjárfestingarfélagsins er um átján milljarðar króna en félagið fékk í lok síðasta mánaðar greiddar um 144 milljónir evra fyrir tæplega 8,9 prósenta hlut sinn í evrópska drykkjaframleiðandanum Refresco. Eins og kunnugt er eignaðist fjár- festahópurinn, sem samanstendur af einkafjárfestum auk trygginga- félagsins TM, ríflega helmings- hlut í Stoðum á fyrri hluta síðasta árs. Næststærsti hluthafi Stoða er Arion banki með 16,4 prósenta hlut og þá fer Landsbankinn með 13,4 prósenta hlut. Ólíklegt þykir að bankarnir muni losa um bréf sín í félaginu á næstunni, samkvæmt heimildum Markaðarins. Hagnaður Stoða nam 5,4 millj- örðum króna á síðasta ári, sam- kvæmt nýbirtum ársreikningi félagsins, en til samanburðar var afkoman neikvæð um 4,8 milljarða árið áður. Félagið lauk nauðasamn- ingum árið 2009 og hefur frá þeim tíma unnið að því að umbreyta eignum í reiðufé og greiða út til hluthafa. Líkt og Markaðurinn hefur greint frá hefur hins vegar verið ákveðið að breyta tilgangi félagsins og halda starfsemi þess áfram sem fjárfestingarfélagi. – kij Bættu við sig fimm prósenta hlut í Stoðum Jón Sigurðsson, stjórnarformaður Stoða 55% var hlutur félaganna S121 og S122 í Stoðum í lok árs 2017. Starfsmenn sjóðastýringar-fyrirtækisins Summu rekstrar-félags hafa keypt fjórðungshlut Íslandsbanka í fyrirtækinu og eign- ast þannig allt hlutafé þess. Starfs- mennirnir fjórir, Sigurgeir Tryggva- son framkvæmdastjóri, Haraldur Óskar Haraldsson, Hrafnkell Kára- son og Ómar Örn Tryggvason, eiga Summu í gegnum eignarhaldsfélagið Megind. Summa var áður dótturfélag Íslandsbanka en bankinn hefur selt sig úr félaginu í nokkrum skrefum á undanförnum árum. Sigurgeir stað- festir við Markaðinn að kaupin á fjórðungshlut Íslandsbanka hafi gengið í gegn í byrjun síðasta mán- aðar. „Eigendurnir, sem eru jafnframt allir starfsmenn Summu, hafa mikla trú á félaginu og framtíðarhorfum þess. Við starfsmenn og hluthafar erum nú einir ábyrgir fyrir því að nýta þá möguleika sem eru til staðar en teljum jafnframt að viss tækifæri felist í félagi sem er sjálfstætt og óháð á fjármálamarkaði,“ segir hann. Þá hafa þeir Birgir Örn Arnarson, yfirmaður hjá PayPal, og Tryggvi Björn Davíðsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri markaða hjá Íslandsbanka, tekið sæti í stjórn sjóðastýringarfyrirtækisins en þar fyrir situr Þórunn Helga Þórðar- dóttir lögfræðingur. Summa hagnaðist um 3,7 millj- ónir króna á síðasta ári borið saman við 243 milljóna hagnað árið 2016. Alls námu hreinar rekstrartekjur tæpum 143 millj- ónum í fyrra en rekstrargjöld voru 138 milljónir. Var fyrirtækið með um 25 milljarða króna í stýringu í lok síðasta árs. Summa rekur meðal annars inn- viðasjóð sem er í eigu íslenskra líf- eyrissjóða en forsvarsmenn fyrir- tækisins telja aðkomu slíkra sjóða að brýnum innviðaverkefnum hér á landi, svo sem í vegakerfinu, ákjósanlega. – hvj, kij Starfsmenn eignast Summu að fullu Sigurgeir Tryggvason, framkvæmdastjóri Summu. Fagfjárfestasjóðurinn ORK, sem er að mestu leyti í eigu íslenskra lífeyrissjóða, áformar að selja 12,7 prósenta hlut sinn í HS Orku. Formlegt söluferli hófst í síðustu viku, samkvæmt heimildum Markaðarins, en væntingar eru um að á bilinu sjö til átta milljarðar króna geti fengist fyrir eignarhlutinn í orkufyrirtækinu. Miðað við það verðmat er markaðs- virði fyrirtækisins um 55 til 63 millj- arðar. Það er fyrirtækjaráðgjöf Kviku banka sem hefur umsjón með sölu- ferlinu. Talsverður áhugi er sagður vera á hlutnum í HS Orku, bæði á meðal erlendra og innlendra fjárfesta, en gert er ráð fyrir að óskuldbindandi tilboð muni berast í næsta mánuði. Gangi áætlanir eftir gæti salan klárast í lok sumars. Tæplega þrettán prósenta hlutur- inn komst í eigu fagfjárfestasjóðsins í júlí í fyrra þegar samkomulag náð- ist við Magma Energy, dótturfélag kanadíska orkufélagsins Alterra, um uppgjör á skuldabréfi sem Magma hafði gefið út við kaup á hlut sínum í HS Orku árið 2009. Í stað þess að greiða útistandandi höfuðstól skulda- bréfsins skömmu fyrir gjalddaga var um það samið að ORK, sem hafði keypt bréfið af Reykjanesbæ í ágúst 2012 fyrir 6,3 milljarða, myndi ganga að veði þess og yfirtaka þannig 12,7 prósenta hlut í HS Orku af Magma. Við það minnkaði hlutur Magma úr 66,6 prósentum í 53,9 prósent, en fyrir eiga fjórtán lífeyrissjóðir einnig 33,4 prósenta hlut í HS Orku í gegn- um samlagshlutafélagið Jarðvarmi. Magma Energy er í dag í eigu kanad- íska orkufyrirtækisins Innergex en það gekk í byrjun ársins frá kaupum á öllu hlutafé Alterra. Samkvæmt samþykktum HS Orku hafa hluthafar, að félaginu sjálfu frá- gengnu, forkaupsrétt að hlutum í fyrirtækinu við eigendaskipti í hlut- falli við hlutafjáreign sína. Samhliða samkomulaginu við ORK í fyrra féll Magma Energy frá forkaupsrétti sínum og þá ákvað stjórn Jarðvarma einnig að nýta sér ekki forkaupsrétt- inn og bæta þannig við sig 12,7 pró- senta hlut. Á 30 prósent í Bláa lóninu HS Orka, sem á og rekur orkuver í Svartsengi og á Reykjanesi, er eina orkufyrirtæki landsins sem er í eigu einkafjárfesta. Hagnaður félagsins í fyrra nam 4.588 milljónum króna og jókst um liðlega 1.500 milljónir á milli ára. Þá jukust rekstrartekjur HS Orku um 430 milljónir og voru rúmlega 7.530 milljónir á árinu 2017. Stjórn félagsins lagði til að greiddur yrði arður að fjárhæð 440 milljónir króna til hluthafa á þessu ári. Heildareignir HS Orku námu 48,4 milljörðum í árs- lok 2017 og eigið fé félagsins var um 35,5 milljarðar. Á meðal eigna HS Orku er 30 prósenta hlutur í Bláa lóninu. Var eignarhlutur fyrirtækisins settur í söluferli um miðjan maí á síðasta ári og var það sjóður í stýringu Black- stone, eins stærsta fjárfestingar- sjóðs heims, sem átti hæsta tilboðið, eða um 11 milljarða króna. Ekkert varð hins vegar af sölunni eftir að stjórn Jarðvarma ákvað að beita neitunarvaldi sínu, á grundvelli hluthafasamkomulags um minni- hlutavernd, og hafna tilboðinu. Mikillar óánægju gætti hjá stjórn- endum Alterra, þáverandi eigendum Magma Energy, með ákvörðun líf- eyrissjóðanna að hafna tilboði Black- stone, enda hafi það verið nokkuð yfir væntingum stjórnar HS Orku þegar ákveðið var að setja hlut félagsins í söluferli. hordur@frettabladid.is Lífeyrissjóðir vilja selja 13 prósent í HS Orku Fagfjárfestasjóðurinn ORK hefur sett hlut sinn í orkufyrirtækinu í söluferli. Væntingar um að 7 til 8 milljarðar fáist fyrir hlutinn. Kvika ráðgjafi við söluna. Lífeyrissjóðir eiga fyrir rúmlega þriðjungshlut í HS Orku í gegnum Jarðvarma. Hagnaður HS Orku fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) var 2,2 milljarðar í fyrra og jókst um 200 milljónir, einkum vegna aukinnar raforkuframleiðslu og hækkandi álverðs. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ 30% hlutur í Bláa lóninu er á meðal verðmætustu eigna HS Orku. 2 3 . M A Í 2 0 1 8 M I Ð V I K U D A G U R2 MARKAÐURINN 2 3 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :4 5 F B 0 5 6 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F D E -6 4 E C 1 F D E -6 3 B 0 1 F D E -6 2 7 4 1 F D E -6 1 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 5 6 s _ 2 2 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.