Fréttablaðið - 23.05.2018, Qupperneq 22
Penninn hefur tekið í notkun tvo vöruturna fyrir lager og sá þriðji verður reistur innan
skamms. Hver turn er 10 metra
hár, 5 metrar á breidd og 5 metrar
á dýpt og tekur aðeins 45 fermetra
gólfpláss. Þetta kerfi felur tvímæla-
laust í sér mikla hagræðingu og
ekki síður vinnusparnað,“ segir
Guðbjartur Greipsson, vöruhúsa-
stjóri hjá Pennanum. Hann hefur
unnið hjá fyrirtækinu í tólf ár og
segir þessa turna algjöra byltingu í
lagermálum.
„Forsagan er sú að við fluttum
ritfangalager Pennans frá Fosshálsi
í Reykjavík að Ásbrú í Reykjanesbæ
í október árið 2006. Í framhaldi
af því, vorið 2017, var ákveðið að
reisa vöruturn fyrir lagerinn til að
skapa rými í húsinu og fá þannig
pláss fyrir húsgagnalager Penn-
ans sem var í Kópavogi. Lykillinn
að því að við gátum flutt hús-
gagnalagerinn að Ásbrú var sá að
við tókum vöruturninn í notkun.
Með því að nota vöruturn sparast
70-90% af því gólfplássi sem áður
fór undir lager. Það er mikið
pláss sem hægt er að nota undir
eitthvað annað. Við minnkuðum
fermetrafjöldann sem fór undir
lager um 2.000 fermetra án þess að
draga saman í vörunúmerum eða
vöruúrvali,“ segir Guðbjartur.
Hæðin nýtt undir lagerinn
Eftir að hafa skoðað hvernig vöru-
turnar væru á markaðnum var
ákveðið að kaupa turna frá sænska
fyrirtækinu Weland sem sérhæfir
sig í slíkum lausnum. „Weland
er með meira en 70 ára reynslu í
lagerkerfum og leggur áherslu á að
koma til móts við óskir viðskipta-
vina sinna. Öllum vörum er raðað
í hillur og sjálfvirkur, tölvustýrður
búnaður sér um að sækja vörur í
hverja hillu fyrir sig. Það felur í sér
mikla hagræðingu í rekstri að nýta
hæðina undir lagerinn í staðinn
fyrir gólfpláss,“ greinir Guðbjartur
frá.
Hver turn er þannig útbúinn að
hann er í raun lokuð geymsla en
á honum eru eitt til tvö op fyrir
afgreiðslu, eftir því hversu hár
turninn er. „Þar nær starfsfólk í
vörurnar eða setur þær inn, hvort
sem verið er að hlaða vörum inn
eða út af lagernum. Við reiknum
með að í turnunum þremur verði
4.500 vörunúmer. Við erum þegar
komin með 2.800 vörunúmer í tvo
turna og 600 þúsund einingar,“
segir Guðbjartur.
Vöruturnarnir eru mjög hag-
stæðir út frá vinnuvistfræðilegum
sjónarmiðum, að sögn Guð-
bjarts. „Starfsmenn þurfa hvorki
að beygja sig né teygja til að ná í
vörurnar heldur vinna þeir ávallt
í réttri hæð. Það skiptir miklu
máli. Fólki líður betur í vinnunni
og er betur á sig komið líkamlega.
Turninn gerir það líka að verkum
að starfsfólk þarf ekki að ganga um
stórt svæði til að tína til vörur,“
segir Guðbjartur og leggur áherslu
á að það sé því til mikils að vinna
að nýta þessa turna.
Þjónustumiðstöð að
Krókhálsi
Á lager Pennans eru geymdar
vörur sem síðan er dreift um allt
land. „Við erum með þjónustumið-
stöð að Krókhálsi 5 og á hverjum
degi dreifum við vörum til meira
en 100 mismunandi aðila, bæði á
höfuðborgarsvæðinu og úti á landi.
Með því að nota vöruturn sparast 70-90 prósent af því gólfplássi sem áður fór
undir lager. MYND/ANTON BRINK
Á Krókhálsi fer
fram dreifing
á erlendum
blöðum um allt
land.
MYND/ANTON
BRINK
Mikið rými skapaðist þegar turnarnir voru teknir í notkun. MYND/ANTON BRINK
Turninn er tölvustýrður. MYND/ÓLAFUR ÞÓRISSON
Framhald af forsíðu ➛ Weland hefur
mikla reynslu í
lagerkerfum og leggur
áherslu á að koma til
móts við óskir viðskipta-
vina sinna. Öllum vörum
er raðað í hillur og sjálf-
virkur, tölvustýrður
búnaður sér um að sækja
vörur í hverja hillu fyrir
sig. Það felur í sér mikla
hagræðingu í rekstri að
nýta hæðina undir lager-
inn í staðinn fyrir gólf-
pláss.
Starfsfólk nær í vör-
urnar eða setur þær
inn, hvort sem verið er að
hlaða vörum inn eða út af
lagernum. Við reiknum
með að í turnunum
þremur verði 4.500
vörunúmer. Við erum
þegar komin með 2.800
vörunúmer í tvo og 600
þúsund einingar.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 3 . M A Í 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U R
2
3
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:4
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
D
E
-A
0
2
C
1
F
D
E
-9
E
F
0
1
F
D
E
-9
D
B
4
1
F
D
E
-9
C
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
2
2
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K