Fréttablaðið - 23.05.2018, Qupperneq 26
Hekla og Dagur stunda bæði nám við Tónlistarskóla Kópavogs og eru meðlimir í þjóðlagasveitinni Þulu.
Þjóðlagasveitin Þula er nú þegar víðförul en hér er sveitin á Spáni í fyrra.
Elvar bætir við: „Ég ætla að verða
bakari svo þá lá beinast við fyrir
mig að fara í MK á matvælabraut.“
Dagur er í MH á tónlistarbraut en
er mjög sáttur við að eiga bróður í
bakaranámi. „Hann kemur oft með
skólaverkefnin heim. Eldri bróðir
okkar er svo að læra að vera kokkur
svo það virkar mjög vel.“ Hekla er
einnig í MH og stundar þar nám á
opinni braut.
Þjóðlagasveitin Þula
Dagur, Elvar og Hekla hafa öll þrjú
verið í tónlistarnámi í Tónlistar-
skóla Kópavogs frá blautu barns-
beini. Hekla spilar á fiðlu, Elvar
á selló og Dagur á kontrabassa.
Þau hafa öll spilað oft og mörgum
sinnum á skólatónleikum í Salnum
í Kópavogi og finnst tónleikadag-
skráin þar oft áhugaverð þó þau
hafi ekki endilega alltaf tíma til að
sækja tónleika. Og svo eru þau öll
meðlimir í þjóðlagasveitinni Þulu
sem er á leið til Kína.
„Það eru svona sex ár síðan
sveitin var stofnuð,“ segir Elvar.
„Eydís Franzdóttir setti sveitina
saman fyrst og við höfðum svo
samband við vini okkar sem voru
að læra á hljóðfæri og þetta varð að
einhverju stórkostlegu,“ segir Elvar.
Hekla kom einmitt inn í sveitina af
því að vinkona hennar var í henni
og bauð Heklu á æfingu. „Við erum
átta í Þulu núna,“ segir hún, „á
aldrinum sextán til átján ára. Hljóð-
færin eru kontrabassi, selló, þrjár
fiðlur og þrjár flautur.“ Strákarnir
eru tveir og stelpurnar sex en það
er enginn að pæla neitt í því, um
það eru þau öll sammála. Og hljóð-
færaskipanin skiptir heldur ekki
höfuðmáli. „Það skiptir ekki öllu
máli á hvaða hljóðfæri fólk spilar,
aðalmálið er hvernig hópurinn er
samsettur og hvort okkur gengur
vel að búa til tónlist saman,“ segir
Elvar. Dagur samsinnir því og bætir
við: „Við spilum eingöngu íslensk
þjóðlög sem er ekkert endilega það
sem við erum að spila í tónlistar-
náminu okkar, við erum í klassísku
námi og erum ekkert endilega
að hlusta á þjóðlög í frítímanum
okkar.“ Þau segja að Eydís Franz-
dóttir, stjórnandi sveitarinnar, ann-
ist útsetningar en þó séu þær líka
í höndum hljómsveitarmeðlima.
„Stundum erum við sjálf að leika
okkur og búa til línur og hljóma
kringum laglínurnar,“ segir Hekla.
„Við erum búin að vera að spila
saman svo lengi að núna munum
við ekkert alltaf hver samdi hvaða
línur.“ Dagur samsinnir því og bætir
við: „Við erum búin að koma okkur
upp mjög stórum lagabanka.“
Á leið til Kína
Þula snýst ekki eingöngu um spila-
mennsku. „Nei, nei, við syngjum og
dönsum og erum í þjóðbúningum
og þetta er svaka sýning,“ segir
Elvar. Þjóðlagasveitin Þula hefur
komið fram við ýmis tilefni, bæði
heima og heiman. „Við fórum
til Spánar í fyrra og tókum þátt í
þjóðlagahátíð þar,“ segir Dagur og
Elvar bætir við: „Og svo spiluðum
við á Siglufirði á Þjóðlagahátíðinni
þar, það var svaka gaman.“ Og nú
hefur Þula verið valin til þátttöku
í alþjóðlegri listahátíð ungmenna
í borginni Tianjin í Kína í lok júlí.
„Við erum bún að vera að safna fyrir
þessu á Karolina Fund og náðum
takmarkinu svo … við erum að fara!“
segir Hekla. „Þetta var mjög fjarlægt
en núna er þetta allt að gerast.“
Strákarnir eru líka mjög spenntir
fyrir Kínaferðinni. „Það er ekkert
rosalega langt síðan við ákváðum
að þiggja boðið svo þetta hefur allt
gerst frekar hratt,“ segir Dagur og
Elvar tekur undir og bætir við: „Ég
hef aldrei farið út fyrir Evrópu svo
þetta verður alveg nýtt.“
Í tilefni af Kínaferðinni efnir
Þula til tónleika í kvöld klukkan
átta í Kefas Fríkirkjunni þar sem
hópurinn vonast til að sjá sem flesta
velunnara sína og aðra áhugasama
um íslenska þjóðlagatónlist og
þá gleði sem getur fylgt flutningi
hennar. „Við ætlum að spila þar allt
sem við kunnum, svo þetta verða
örugglega frekar langir tónleikar,“
segir Dagur. „Örugglega þrjátíu lög.
En allt mjög skemmtilegt.“
Gott að búa í Kópavogi
Að lokum eru þessir verðandi víð-
förlu Kópavogsbúar spurðir hvort
þau mæli með að búa í Kópavogi.
„Já, það er fínt,“ segir Elvar. „Vinir
mínir búa flestir hér svo ég hef enga
ástæðu til að fara annað.“ Dagur
og Hekla eru bæði á því að Kópa-
vogur sé mjög fjölskylduvænn bær.
„Hér er margt í boði fyrir krakka
og mikið hugsað um fjölskyldur.“
Þegar þau eru beðin um að nefna
uppáhaldsstaðinn sinn í Kópavogi
stendur ekki á svörum. „Kársnesið,
smábátahöfnin og fjaran,“ segir
Hekla ákveðin á meðan Elvar nefnir
Fossvogsdalinn og nándina við
Elliðaárdalinn. Dagur segist hrifinn
af Hamraborginni. „Hér er tónlistar-
skólinn, bókasafnið við hliðina
á, Salurinn og Gerðarsafn og svo
stoppar strætó hér. Hamraborgin
er skemmtilegur miðpunktur
bæjarins.“
Tónleikar þjóðlagasveitarinnar
Þulu eru eins og áður sagði í kvöld
klukkan átta í Kefas Fríkirkjunni,
Fagraþingi 2a í Kópavogi. Stjórn-
andi sveitarinnar er Eydís Franz-
dóttir og aðstoðarstjórnandi er
Pamela de Sensi.
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@frettabladid.is
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður: Elmar
Hallgríms Hallgrímsson
Sölumaður auglýsinga:
Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433
Framsókn
í Kópavogi
Samvinna
í verki
/framsoknkopavogi
2 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . M A Í 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U RKÓPAVOGUR
2
3
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:4
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
D
E
-8
7
7
C
1
F
D
E
-8
6
4
0
1
F
D
E
-8
5
0
4
1
F
D
E
-8
3
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
2
2
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K