Fréttablaðið - 23.05.2018, Page 32

Fréttablaðið - 23.05.2018, Page 32
Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur les úr bókum sínum um Fíusól. Sumarlestur er skemmtilegt lestrar­átak sem börn á aldrinum 5­12 ára geta tekið þátt í hjá Bókasafni Kópavogs. Lestrarátakið hefst 26. maí og stendur fram til 17. ágúst. Á laugar­ daginn er það Kristín Helga Gunnars­ dóttir rithöfundur sem les og spjallar við krakkana um bók sína, Fíusól. Bækurnar um Fíusól hafa notið mikilla vinsælda hjá börnum á öllum aldri. Sumarlestur­ inn verður kl. 13­14 en þetta er við­ burður sem er liður í fjölskyldustundum Menningarhúsanna í Kópavogi. Eftir hverjar þrjár lesnar bækur fá þátttakendur happamiða sem settur er í pott. Dregið verður úr happamiðum vikulega og nafn vinningshafa birt á heimasíðu safnsins á hverjum þriðju­ degi. Þátttakan er ókeypis. Þeir sem áhuga hafa á átakinu geta skráð sig á heimasíðu bókasafnsins bokasafn.kopavogur.is/fraedsla/sumar­ lestur. Föstudaginn 17. ágúst kl. 15.30 verður uppskeruhátíð í aðalsafni. Allir sem mæta fá glaðning! Sumarlestur barna hjá Bókasafni Kópavogs Kópavogur ætlar að styðja við bakið á Pieta samtökunum. Kópavogsbær hefur ákveðið að gerast stuðningsaðili Pieta samtakanna, sem vinna gegn sjálfsskaða og sjálfs­ vígum. Þetta var samþykkt ein­ róma af bæjarráði á fimmtudag í síðustu viku. Samstarfið tryggir Kópavogs­ búum tíu meðferðir á ári, en meðferð samtakanna felur í sér að einstaklingur fái 15 ókeypis viðtöl við sérfræðinga og aðstandendur fái fimm ókeypis tíma hjá sér­ fræðingi. Pieta samtökin eru frjáls félaga­ samtök sem vinna gegn sjálfsskaða og sjálfsvígum á Ísland og vinna einnig að forvörnum vegna sjálfs­ vígshættu og sjálfsskaða. Þau veita bæði meðferðarúrræði og fræðslu sem fer fram í skólum. Samstarfið er tilraunaverkefni, en það verður skoðað að hefja langtímasamstarf við samtökin við gerð fjárhagsáætlunar Kópavogs fyrir árið 2019. Kópavogur styður Pieta Kópavogsdalur er paradís úti­vistar­ og líkamsræktarfólks. Í dalnum liggja skemmti­ legir göngu­ og hlaupastígar og má þar nefna Himnastigann sem eru langar og brattar tröppur sem liggja frá Kópavogsdal upp á Digranesheiði. Tröppurnar eru afar vinsælar meðal göngufólks og hlaupara sem nota þær til æfinga og brátt bætast við líkamsræktar­ tæki við enda stigans. Austar í dalnum eru einnig líkamsræktar­ tæki og leiksvæði. Vestast í Kópavogsdal er anda­ pollur með fjölbreyttu fuglalífi og í víðs vegar um dalinn eru bekkir fyrir þá sem vilja staldra við og njóta þess að horfa á fagra náttúru og mannlíf. Þá rækta börn sitt eigið grænmeti í skólagörðum í Kópa­ vogsdal og í dalnum er að finna íþróttasvæði Breiðabliks sem er eitt hið stærsta á landinu. Útivistarparadís í Kópavogsdal HAPPY-HOUR 15.00-19.00 500 kr GRANDAGARÐI 8 101 REYKJAVÍK * 00354 456 4040 * WWW.BRYGGJANBRUGGHUS.IS HÚSBJÓRINN 8 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . M A Í 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U RKÓPAVOGUR 2 3 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :4 5 F B 0 5 6 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F D E -8 C 6 C 1 F D E -8 B 3 0 1 F D E -8 9 F 4 1 F D E -8 8 B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 5 6 s _ 2 2 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.