Fréttablaðið - 23.05.2018, Qupperneq 42
Markaðurinn
Einföld lausn fyrir lítil félög
til að skila ársreikningi
Þjónustuver opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:00
442 1000
rsk@rsk.is
❚ Hnappurinn er einföld og þægileg lausn fyrir lítil félög (örfélög)
til að setja upp og skila ársreikningi.
❚ Eftir að félög hafa skilað inn skattframtali geta þau farið á
þjónustusíðu ríkisskattstjóra, skattur.is, og valið að láta ríkis
skattstjóra útbúa ársreikning félagsins.
❚ Ríkisskattstjóri útbýr ársreikning byggðan á upplýsingum úr
skattframtali félagsins sem síðan er skilað til ársreikningaskrár.
❚ Algjörlega rafrænt ferli enginn pappír til ríkisskattstjóra.
Hvað er örfélag?
Örfélag er félag sem við uppgjörsdag fer ekki fram úr tveimur af þremur
stærðarmörkum sem eru:
a) Heildareignir: 20 milljónir kr.
b) Hrein velta: 40 milljónir kr.
c) Meðalfjöldi ársverka á reikningsári: 3 starfsmenn.
Fullgild skil
Skili félög hnappsársreikningi teljast það fullgild skil til ríkisskattstjóra og ársreikningaskrár.
Ef stjórnendur örfélags vilja ekki nýta sér heimildina verða þeir líkt og áður að skila
hefðbundnum ársreikningi bæði til ríkisskattstjóra og ársreikningaskrár.
Félög sem eru endurskoðunarskyld mega ekki skila hnappsársreikningi.
Nánari upplýsingar um Hnappinn eru á vef ríkisskattstjóra, rsk.is
instagram
fréttablaðsins
@frettabladidfrettabladid.is
Miðvikudagur 23. maí 2018fylgirit fréttablaðsins um Viðskipti og fjármál |
Stjórnar-
maðurinn
18.05.2018
Þetta er allt
orðið
erfiðara. Það er allt
að hækka en það er
ekki hægt að hækka
verðið.
Hrefna Rósa Sætran, eig-
andi Fiskmarkaðarins
og Grillmarkaðarins
@stjornarmadur
Hugbúnaðarfyrirtækið Kóði, sem rekur
meðal annars Kelduna, hagnaðist um
88 milljónir króna árið 2017 og jókst
hagnaðurinn um 30 prósent á milli ára.
Tekjurnar námu 368 milljónum króna
og jukust um 18 prósent á milli ára. Arð-
semi eigin fjár nam 81 prósenti en eigið fé
var 127 milljónir við árslok. Stjórn félagsins
leggur til að arðgreiðsla nemi 80 milljónum
í ár en hún var 50 milljónir síðastliðin tvö
ár.
Kóði á eins og fyrr segir Kelduna, upp-
lýsingaveitu fyrir íslenskt viðskiptalíf, og
Vaktarann sem sinnir net- og fjölmiðla-
vöktun. Fyrirtækið rekur jafnframt verð-
bréfaviðskiptakerfið KODIAK. Auk þess
gekk það í hluthafahóp Sea Data Center á
þessu ári. Stærstu hluthafar Kóða eru Thor
Thors, framkvæmdastjóri fyrirtækisins
með 22,7 prósenta hlut, Dagur Gunnarsson
forritari með 19 prósent, og Tómas Tómas-
son forritari með 19 prósent. – hvj
kóði hagnaðist um 88 milljónir
Thor
Thors, fram-
kvæmdastjóri
Kóða
Eimskip birti á mánudag athyglis-
verða tilkynningu, sem kynnt var
sem eins konar viðbót við afkomu-
tilkynningu félagsins frá 17. maí
síðastliðnum.
Í tilkynningunni var sérstaklega
tekið fram að tveir starfsmanna
félagsins, þar með talinn for-
stjórinn, hefðu verið boðaðir í
yfirheyrslur þann 11. maí og í
framhaldi fengið réttarstöðu sak-
bornings í rannsókn samkeppnis-
eftirlitsins á meintu samráði
Eimskips og Samskips.
Í afkomutilkynningunni frá
17. maí var einungis minnst á það
í framhjáhlaupi á blaðsíðu sex að
rannsókn stæði yfir og að starfs-
mennirnir hefðu réttarstöðu
sakbornings. Ekkert var minnst á
dagsetningu í þeim efnum.
Eins og flestir vita þá ber skráðum
félögum að tilkynna markaðnum
án tafar um mál sem geta haft
verðmótandi áhrif á gengi bréfa
félagsins.
Varla verður komist að annarri
niðurstöðu en að Eimskip hafi því
átt að tilkynna um nýjar væringar
í samkeppnismálinu svo fljótt
sem verða mátti eftir atburðina
11. maí.
Þeir létu það hins vegar hjá líða
og grófu málið á blaðsíðu sex í
afkomutilkynningunni.
Ljóst er að líkur eru á því að ein-
hverjir fjárfestar hafi á þessum tíu
dögum vitað meira en aðrir, enda
eiga tíðindi sem þessi það til að
kvisast út.
Sannarlega voru þetta verð-
mótandi upplýsingar enda sýndi
það sig í því að bréf félagsins fóru
niður um rétt tæp 5 prósent í gær
þegar Eimskip vakti loks athygli á
málinu.
Heildarviðskipti með bréf í Eim-
skip hafa numið réttum hálfum
milljarði frá 11. maí, og því ljóst að
ekki er um neinar smáupphæðir
að ræða. Vonandi, markaðarins
vegna, sátu allir við sama borð í
þeim viðskiptum.
Nú skal enginn ætla að mistök sem
þessi verði af ásetningi. Fyrir suma
gæti þetta hins vegar reynst dýr
handvömm.
Dýr handvömm
Eimskips
2
3
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:4
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
D
E
-5
F
F
C
1
F
D
E
-5
E
C
0
1
F
D
E
-5
D
8
4
1
F
D
E
-5
C
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
5
6
s
_
2
2
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K