Fréttablaðið - 23.05.2018, Page 44
Okkar ástkæra móðir,
tengdamóðir og amma,
Marta Bíbí Guðmundsdóttir
póstmeistari og skíðadrottning,
lést þann 13. maí 2018 á heimili sínu.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu. Þeim sem vilja minnast Mörtu
Bíbíar er bent á styrktarsjóð í hennar nafni hjá Zontaklúbbi
Reykjavíkur, 0513-26-401717, kt. 610174-1839.
Hjördís, Andrea og Jakob
Jóhanna og Sigurður
Tómas, Hjálmar og Ida, Marteinn
Geirný Ósk og Erik
Friðrikka og Nichlas
Ástkær dóttir okkar og móðir mín,
Katrín Ólafsdóttir
læknir,
sem lést þann 10. maí, verður
jarðsungin frá Neskirkju 24. maí
kl. 13.00.
Ólafur Haraldsson Inga Lára Bachmann
Kormákur Hólmsteinn Friðriksson
Elskuleg eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
Sonja Guðlaugsdóttir
Böðvarsgötu 11, Borgarnesi,
andaðist á Landspítalanum í Fossvogi,
fimmtudaginn 17. maí. Útför hennar
fer fram frá Borgarneskirkju,
laugardaginn 2. júní kl. 11.
Þórður Sigurðsson
Guðlaugur Þór Þórðarson Ágústa Johnson
Anna Ýr, Rafn Franklín, Þórður Ársæll og Sonja Dís
Þökkum innilega alla samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar
elskulegrar eiginkonu minnar,
dóttur, móður, ömmu og langömmu,
Steinunnar Marinósdóttur
Ásbúð 11, Garðabæ.
Sérstakar þakkir til Lögreglukórs
Reykjavíkur og Heimahlynningar Landspítalans.
Sigurður Viðar Benjamínsson
Margrét S. Einarsdóttir
Þórir Marinó Sigurðsson
Einar Björn Sigurðsson
Brynja Lísa Þórisdóttir
Sigurður Ingvar Þórisson
Ísabella Sól Þetta er í sjöunda sinn sem Startup Reykjavík viðskipta-hraðallinn er gangsettur en í ár er aðsóknin að honum 45 prósentum meiri en í fyrra – umsóknir voru 270 í ár og
um helmingur þeirra barst að utan.
„Við höfum góð tengsl við aðra hraðla
um allan heim og sömuleiðis vorum við
valin besti hraðallinn á Norðurlönd-
unum á Nordic Startup Awards 2015.
Þannig höfum við vakið athygli erlendis
og því fengið töluvert af umsóknum að
utan – þær hafa verið um 30 prósent
allra umsókna, en nú í ár voru þær um
50 prósent. Á síðasta ári tókum við inn
fyrsta og eina erlenda teymið, Zifra frá
Svíþjóð.
Við höfum aldrei auglýst markvisst
erlendis og aðalmarkhópur okkar er
íslensk fyrirtæki – þannig að það má
segja að þessi aukning hafi átt sér stað
„óvart“,“ segir Edda Konráðsdóttir, verk-
efnastjóri hjá Icelandic Startups.
Teymin tíu sem valin hafa verið til
þátttöku eru afar fjölbreytt. Flest þeirra
eru vel á veg komin með verkefni sín
og farin að afla tekna. Þrjú teymanna
eru erlend, frá Bretlandi, Svíþjóð og
Spáni. Þau munu njóta ráðgjafar og
leiðsagnar reyndra frumkvöðla, fjár-
festa og annarra sérfræðinga með það
að markmiði að þróa áfram viðskipta-
hugmyndir sínar.
stefanthor@frettabladid.is
Aldrei fleiri umsóknir
borist í Startup Reykjavík
Viðskiptahraðallinn Startup Reykjavík er nú við það að fara í gang. Kunngert hefur verið
hvaða tíu teymi taka þátt í ár og vekur það athygli að þrjú þeirra eru erlend. Tvö hundruð
og sjötíu umsóknir bárust í ár og er það metfjöldi og 45 prósenta fjölgun frá því í fyrra.
Icelandic Lava Show tók þátt í Startup Reykjavík árið 2016 og vakti mikla athygli á fjárfestadeginum. FRéttabLaðIð/anton bRInk
Við höfum aldrei
auglýst markvisst
erlendis og aðalmarkhópur
okkar er íslensk fyrirtæki –
þannig að það má segja að þessi
aukning hafi átt sér
stað „óvart“.
Edda Konráðsdóttir,
verkefnastjóri hjá
Icelandic Startups
Teymin
anymaker
Stafrænt stúdíó sem framleiðir þrí-
víddarhugbúnað ætlaðan börnum.
blockcycle
Kerfi sem nýtir Blockchain-tæknina
til að rekja feril umbúða frá afurð til
endastöðvar.
Ekki banka
Einföld og snjöll þjónusta,
sem hjálpar fólki að
gera meira úr pening-
unum sínum.
Huginn.care
Skýjalausn, fyrir
fyrirtæki og stofnanir,
sem ætlað er að ein-
falda atvika- og dag-
bókaskráningar skjól-
stæðinga í umönnun.
koride
Deilibílalausn fyrir ævintýragjarna
ferðamenn á Íslandi.
Leiguskjól
Fjártæknifyrirtæki sem býr til nýjar
lausnir fyrir leigumarkað.
Melius
Hannar og framleiðir vélbúnað sem
gerir snjallsímum kleift að fylgja því
sjálfvirkt eftir sem tekið er upp á
símanum.
Sea Data Center
Tæknilausn sem byggir á ein-
stökum gagnagrunni og
ætlað er að auka virði
viðskipta meðal
fyrirtækja í sjávar-
útvegi.
taktikal
Hugbúnaðar-
lausn sem gerir
einstaklingum
og lögaðilum
mögulegt að
stofna til viðskipta
á örfáum mínútum
með sjálfvirknivæð-
ingu á ýmsum viðskipta-
ferlum.
Unify Me
Tæknilausn sem gerir fyrirtækjum
kleift að eiga öll innri samskipti á
einum stað.
Merkisatburðir
1430 Jóhanna af Örk er tekin til fanga við Compiègne.
1618 30 ára stríðið hefst í Evrópu með uppþotum í Prag.
1923 Írski lýðveldisherinn lýsir yfir vopnahléi. Þar með
lýkur borgarastyrjöldinni á Írlandi.
1949 Vestur-Þýskaland var formlega stofnað á hernáms-
svæðum Bandaríkjamanna, Breta og Frakka í Þýskalandi.
1965 Danir samþykkja að afhenda Íslendingum handrit úr
Árnasafni í Kaupmannahöfn.
1976 Samningar nást milli íslenskra og breskra stjórnvalda í
Landhelgismálinu.
1977 Hryðjuverkamenn frá Mólúkkaeyjum hertaka skóla
og lest í Bovensmilde í Hollandi og taka 195 gísla.
1985 Stefna Íslendinga í afvopnunarmálum er staðfest á
Alþingi: Á Íslandi verða ekki staðsett kjarnorkuvopn.
1985 Smáþjóðaleikarnir eru settir í fyrsta sinn í San Marínó.
2003 Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin fer til Alsír til rústa-
björgunar. Tveimur dögum fyrr varð jarðskjálfti 6,7 á Richter
í norðurhluta Alsír.
2 3 . m a í 2 0 1 8 m I Ð V I K U D a G U R16 t í m a m ó t ∙ F R É t t a B L a Ð I Ð
tímamót
2
3
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:4
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
D
E
-6
E
C
C
1
F
D
E
-6
D
9
0
1
F
D
E
-6
C
5
4
1
F
D
E
-6
B
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
2
2
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K