Fréttablaðið - 30.05.2018, Qupperneq 6
Þjónustumiðstöð
tónlistarfólks
Heilsubótarganga, hvað er það?
Heilsubótarganga er það að hreyfingin sé aðalatriðið með göngunni, ekki það
að eiginlegur tilgangur sé með ferðinni. Annað er að njóta áhrifa líkamlegrar
áreynslu við gönguna. Það er hverjum manni nauðsynlegt að hreyfa sig á
hverjum degi, hver lágmarkshreyfingin er veit ég ekki. Ég er vanur að ganga
20 mínútur, eftir 20 mínútur finn ég til líkamlegrar vellíðunar af þreytunni.
Raunar er ég 66 ára gamall og alveg þreklaus. Ég sleppi þrem dögum úr vegna
rigningar, stundum hef ég gengið 30 mínútna gönguferð en eftir þá göngu-
ferð verð ég örþreyttur. Það er minna en tveir mánuðir síðan ég byrjaði á því
að ganga heilsubótargönguna, 20 metra vegalengd innanhúss og ég geng 15
mínútur fram og til baka innanhúss. Eftir að ég hef gengið 15 mínútur á sokk-
unum innanhúss er ég jafn þreyttur og eftir 20 mínútna gönguferð úti. Æskileg
hreyfing fyrir fullfrískan mann er ein klukkustund á dag.
Björgvin Ómar Ólafsson, Frumskógar 6, 810 Hveragerði
AUGLÝSING
SAMFÉLAG Frjósemi kvenna á Íslandi
hefur aldrei mælst minni en á síð
asta ári. Frjósemin er hins vegar enn
með því mesta sem þekkist í Evrópu.
Prófessor í félagsfræði segir að það
verði athyglisvert að sjá hvernig
hagkerfi sem byggist á vexti muni
takast á við þessar breytingar.
4.071 barn fæddist hér á landi í
fyrra sem er fjölgun frá árinu 2016.
Frjósemi var hins vegar 1,71 barn á
ævi hverrar konu samanborið við
1,75 barn á ævi hverrar konu árið
á undan. Sú tala hefur aldrei mælst
lægri frá því að mælingar hófust árið
1853. Undanfarinn áratug hefur
frjósemi á Íslandi verið um tvö börn
á ævi hverrar konu en áætlað er að
um 2,1 barn á ævi hverrar konu
þurfi til að viðhalda fólksfjölda.
„Fæðingartíðni eins og hún er
mæld sem lifandi fædd börn á ævi
hverrar konu hefur verið sögulega
lág á Íslandi frá árinu 1983 en á
sama tíma hefur þessi tíðni verið há
í evrópsku samhengi. Þannig hefði
síðustu ár mátt glíma á sama tíma
við spurninguna af hverju tíðnin var
svona há í samanburði við flestöll
önnur Evrópulönd og af hverju hún
var svona lág í sögulegu íslensku
ljósi,“ segir Stefán Hrafn Jónsson,
prófessor í félagsfræði við Háskóla
Íslands.
Meðalaldur mæðra hefur hækkað
jafnt og þétt samhliða þróuninni.
Um miðja síðustu öld og fram yfir
1980 var meðalaldur frumbyrja
undir 22 árum en hefur nú hækkað
upp í 27,8 ár. Það er þó enn undir
meðaltali Evrópuríkja.
„Lækkun fæðingartíðni frá 4,3
börnum árið 1960 í 2,1 barn árið
1983 hefur þegar haft mikil áhrif
á aldurssamsetningu þjóðarinnar
eins og birtist í mannfjöldapíra
mída. Hlutfallsleg fjölgun eldri
borgara síðustu ár, þróun sem er
einnig fyrirsjáanleg næstu áratugi,
er fyrst og fremst vegna lækkandi
fæðingartíðni síðustu ára en mun
minna vegna hækkandi meðalald
urs við fæðingu eða lífslíka fólks,“
segir Stefán Hrafn.
Stefán segir margar leiðir færar til
að bera saman fjölda fæðinga á milli
landa og yfir tíma. Sú sem hefur
gefið besta raun er lifandi fædd
börn á ævi hverrar konu. Sú mælir
þó ekki aðeins líffræðilega getu til
barneigna heldur einnig viljann til
þess. Gallinn þar kemur fram þegar
fólk ákveður að fresta barneignum.
„Þegar fólk hættir að fresta barn
eignum þá mun fæðingartíðnin
hækka aftur. Þannig breyting hefur
sést í mörgum Evrópulöndum að
fæðingartíðnin er farin að hækka
aftur eftir að hafa verið lág í ára
tugi. Íslendingar eru í raun mörgum
árum á eftir mörgum öðrum Evr
ópulöndum að sjá þessar breyting
ar,“ segir Stefán.
Það muni hafa afleiðingar í
menntakerfinu og síðar hafa áhrif
á fjölda þeirra sem starfa á vinnu
markaði. Hlutfallsleg aldursdreifing
mun einnig breytast og mun hærra
hlutfall eldri borgara verða áskorun
fyrir stjórnvöld og hagkerfið í heild.
„Það verður áhugavert að vita
hvernig hagkerfi sem byggir á vexti
mun takast á við þessar breytingar.
Mannfækkun er samt ekki fyrirsjá
anleg á næstu áratugum af ýmsum
lýðfræðilegum ástæðum, meðal
annars í ljósi búferlaflutninga.
Næsta eðlilega spurning felst í því
hvort og þá hversu vel Íslendingar
eru í stakk búnir til að mæta þessum
breytingum með því að auka við
fjölda innflytjenda,“ segir Stefán.
joli@frettabladid.is
Krefjandi verkefni bíða
með minni frjósemi
Frjósemi kvenna hér á landi hefur aldrei mælst minni en í fyrra. Þó að fæddum
börnum hafi fjölgað frá 2016 hefur frjósemi íslenskra kvenna dalað og eignast
þær nú 1,71 barn yfir ævina. Prófessor segir ærin verkefni blasa við að óbreyttu.
Rúmlega fjögur þúsund börn fæddust á Íslandi á síðasta ári. Frjósemi fer á sama tíma minnkandi. NoRdicphotos/Getty
uMhverFiSMáL The Atlantic Salmon
Federation (ASF) og Verndarsjóður
villtra laxastofna (NASF, North
Atlantic Salmon Fund) hafa náð
samningum við sjómenn á Græn
landi og í Færeyjum.
Samkvæmt tilkynningu mun
þessi samningar „forða þúsundum
fullorðinna Atlantshafslaxa frá
úthafsveiðum í net og þannig auka
líkurnar á að þeir nái að snúa aftur
til hrygningar á æskustöðvum
sínum“. Nýi grænlenski laxverndar
samningurinn sé til tólf ára. Skrifað
hafi verið undir samninginn eftir
liðlega heils árs viðræður. Til að
bæta grænlenskum sjómönnum
tekjutap munu ASF og NASF styrkja
aðra atvinnuþróun, rannsóknir og
menntun frumkvöðla sem beita
sér fyrir verndun vistkerfa hafsins.
Veiðimenn á Grænlandi munu þó
geta veitt allt að tuttugu tonnum
af laxi á ári til eigin neyslu og sölu
í heimabyggð.
„Með því að tryggja þessa
samninga nú hefst nýtt tímabil
laxaverndar í NorðurAtlantshafi
og á alþjóðavísu, sem sýnir að við
erum staðráðin í að endurreisa
þessa villtu laxa stofna í sitt sögu
lega hámark,“ er haft eftir Friðleifi
E. Guðmundssyni, formanni NASF
á Íslandi.
„Áhrifamesta leiðin til að tryggja
að sem flestir hrygningarlaxar nái
að snúa aftur til ánna sinna í Norð
urAmeríku og Evrópu er að draga
verulega úr úthafsveiðum á villtum
Atlantshafslaxi á hans helstu fæðu
slóð,“ er haft eftir forseta ASF, Bill
Taylor. – gar
Fagna tólf ára samningi
við Grænlendinga
stefán hrafn
Jónsson
Besta leiðin til að
bjarga villta lax-
inum í Norður-Atlantshafi er
að hætta að drepa hann.
Chad Pike, formaður NASF
í Bandaríkjunum
AtvinnuMáL Hátt í 700 börn yngri
en þrettán ára voru í launuðu starfi
á síðasta ári samkvæmt nýútgefnum
tölum Hagstofunnar er varða stöðu
barna á Íslandi. Samkvæmt reglu
gerð um vinnu barna og unglinga
þarf að fá leyfi frá Vinnueftirliti
ríkisins áður en til ráðningar kemur
vegna vinnu barna yngri en 13 ára.
Þrátt fyrir að fjöldi starfandi barna
sé svona mikill er varla hægt að tala
um að Vinnueftirlitinu berist fyrir
spurnir um slík leyfi.
„Ef þetta eru raunveruleg störf sem
börnin eru að vinna þá ætti sam
kvæmt þessu að sækja um leyfi. Það
koma ekki fyrirspurnir nema kannski
ein til tvær á ári til Vinnueftirlitsins,“
segir Svava Jónsdóttir, sviðsstjóri
eftirlitsdeildar Vinnueftirlitsins.
Vinnueftirlitið hefur ekki virkt
eftirlit með þessu en skoðar einstök
mál. „Við fáum stundum vísbend
ingar úr fréttum fjölmiðla og frá
fólki um að börn séu í óeðlilegum
aðstæðum, þá förum við og skoðum
það nánar,“ segir Svava.
„Í fyrsta lagi fagna ég þessu sam
starfi við Hagstofuna og því að
þessar tölur liggi fyrir. Nú þarf að
rýna þær betur sérstaklega með til
liti til athugasemda barnaverndar
nefndar Sameinuðu þjóðanna um
vinnu barna,“ segir Salvör Nordal,
umboðsmaður barna, um tölurnar.
Hún telur börn vinna of mikið með
skóla og segir það geta bitnað á tóm
stundum þeirra, námi og hvíld.
Hjá Hagstofunni fengust þær upp
lýsingar að þar á bæ sé möguleiki á
að skoða þetta eftir atvinnugreinum
og það verði gert. „Okkar tilgáta er
sú að þetta séu aðallega börn sem
eru að taka þátt í auglýsingum og
setja upp leikrit og annað slíkt.
Þetta er eitthvað sem við erum að
skoða og reiknum með að birta
síðar meir,“ segir Anton Örn Karls
son hjá Hagstofunni. – gþs
Sækja þarf um leyfi fyrir vinnandi börn
salvör Nordal,
umboðsmaður
barna
3 0 . M A í 2 0 1 8 M i Ð v i K u D A G u r6 F r É t t i r ∙ F r É t t A B L A Ð i Ð
3
0
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
F
1
-E
C
2
4
1
F
F
1
-E
A
E
8
1
F
F
1
-E
9
A
C
1
F
F
1
-E
8
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
2
9
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K