Víkurfréttir - 24.05.2018, Blaðsíða 26
26 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 24. maí 2018 // 21. tbl. // 39. árg.
„Að þetta skuli gerast í bakgarðinum hjá okkur er dálítið merkilegt en þessi
atburður er bara þaggaður niður, því hann gerist á svo óheppilegum tíma á
stríðsárunum,“ segir Þorsteinn Marteinsson, áhugamaður um flugslys og
flugóhöpp úr seinni heimstyrjöldinni. Hann og bróðir hans, Ólafur halda úti
heimasíðu sem fjallar um stríðsóhöpp á Íslandi. Á dögunum var afhjúpað
minnismerki um bandarísku sprengjuflugvélina „Hot Stuff“ sem fórst
3. maí 1943 á Fagradalsfjalli á Reykjanesskaga. Alls fórust fjórtán menn í
flugslysinu en einn komst lífs af, stélskytta vélarinnar. Um borð í vélinni
var Frank M. Andrews en hann var yfirmaður alls herafla Bandaríkjanna
í Evrópu þegar vélin fórst og var hann á meðal þeirra sem létust.
Minnismerkið er við Grindavíkurveg
en á því er meðal annars eftirlíking af
Liberator-vélinni. Bandaríkjamaður-
inn Jim Lux hafði mikinn áhuga á
þessu slysi eftir að hafa kynnst afkom-
anda þess sem komst lífs af í slysinu,
Jim fann upp á þeim bræðrum Þórði
og Ólafi en þá fóru hjólin að snúast og
úr varð þessi glæsilegi minnisvarði.
Hver er tilurð þessa verkefnis?
Upphafið er þannig að þessi maður
tengist einum áhafnarmeðlim sem
er skilinn eftir í Englandi á sínum
tíma, þeir kynnast löngu seinna og
eru félagar, spila saman golf og við
það þá fara þeir að segja sögur af
hver öðrum en þá kemur það í ljós
að Jake Jakubsen var sá sem kastar
sprengjunum úr vélinni og Jim fer
að garfa í þessu og kemst að því að
þessi vél og áhöfnin er fyrsta vélin
sem klárar 25 árásaferðir yfir Evrópu
og ástæðan fyrir því að menn voru að
klára 25 ferðir var að þetta var svo
hættulegt, menn voru svo berskjald-
aðir fyrir þýsku orrustuvélunum að
það var ekki nema einn af hverjum
fimm sem náði að klára þetta, sem
er alveg ótrúlegt í sjálfu sér. Í dag
er Jake, félagi Jim, látinn og þetta
spinnst þannig að Jim fer að reyna
að finna einhvern hér sem þekkir til
því hann vildi vita meira um þessa
sögu, það gengur frekar illa, þangað
til að hann finnur mig.
Þið bræður eruð búnir að vera af
garfa svolítið í þessu?
Já, við höldum úti síðu sem heitir
stríðsminjar.is og erum að safna upp-
lýsingum um þessa atburði á stríðsár-
HOT STUFF
7 5 F R Á Þ V Í S P R E N G J U F L U G V É L I N
BRÆÐURNIR ÞORSTEINN OG ÓLAFUR MARTEINSSYNIR
SKRÁ STRÍÐSMINJAR Á ÍSLANDI OG ERU ÁHUGAMENN UM SÖGU „HOT STUFF“
fórst í Fagradalsfjalli
„HOT STUFF“ FÓRST 3. MAÍ 1943 Á FAGRADALSFJALLI Á REYKJANES-
SKAGA. ALLS FÓRUST FJÓRTÁN MENN Í FLUGSLYSINU EN EINN KOMST
LÍFS AF, STÉLSKYTTA VÉLARINNAR. UM BORÐ Í VÉLINNI VAR FRANK M.
ANDREWS EN HANN VAR YFIRMAÐUR ALLS HERAFLA BANDARÍKJANNA Í
EVRÓPU ÞEGAR VÉLIN FÓRST OG VAR HANN Á MEÐAL ÞEIRRA SEM LÉTUST.
Þorsteinn Marteinsson
Lúðrasveit frá Tónlistarskóla Reykjanesbæjar lék við athöfnina 3. maí sl.
Myndir frá slysstað þann 4. maí 1943, daginn eftir slysið.