Víkurfréttir - 24.05.2018, Blaðsíða 38
38 ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 24. maí 2018 // 21. tbl. // 39. árg.
Guðmundur Tyrfingsson ehf.
Grænir & Góðir
TM HÖLLIN KEFLAVÍK
30. MAÍ
31. MAÍ
LAUGARDALSHÖLLINNI
NÆLDU Þ
ÉR Í MIÐ
Á TIX.IS
„Það sem þú gerir á æfingu
er það sem þú gerir í leik“
Anita Lind Daníelsdóttir leikur með Keflavík í knattspyrnu en liðinu er spáð
góðu gengi í Inkasso-deild kvenna í sumar. Anita hefur æft knattspyrnu
frá því að hún var níu ára gömul og hlakkar til sumarsins með Keflavíkur-
liðinu. Við fengum Anitu til að svara nokkrum spurningum fyrir okkur í
Sportspjalli Víkurfrétta.
Fullt nafn: Anita Lind Daníelsdóttir.
Íþrótt: Knattspyrna.
Félag: Keflavík.
Hjúskaparstaða: Á lausu.
Hvenær hófst þú að stunda þína
íþrótt? Ég byrjaði níu ára gömul.
Hver var fyrsti þjálfarinn þinn? Elís
Kristjánsson.
Hvað er framundan? Framundan er
geggjað sumar með stelpunum.
Eftirminnilegasti áfanginn á ferl-
inum? Það er mögulega þegar ég
skoraði sigurmark í 1:0 sigri á ná-
grönnum okkar úr Grindavík, það er
alltaf gaman að vinna nágrannana.
Uppáhalds...
...leikari: Cameron Diaz.
...bíómynd: The Greatest Showman.
...bók: Engin sérstök.
...Alþingismaður: Enginn.
...staður á Íslandi: Flugumýri er uppáhaldsstaðurinn minn á Íslandi.
Hvað vitum við ekki um þig? Ég fædd-
ist sitjandi.
Hvernig æfir þú til að ná árangri?
Ég æfi með það hugarfar að leggja
mig alla fram því það sem þú gerir
á æfingu er það sem þú gerir í leik.
Hver eru helstu markmið þín? Þau eru
að halda mér í góðu formi og eiga gott
sumar með liðinu, svo er alltaf mark-
mið að vera valin í landsliðsverkefni.
Skemmtilegasta sagan af ferlinum?
Þegar við fórum til Króatíu í byrjun
apríl þá gleymdi markmaðurinn
okkar að taka markmannshanskana
sína með út.
Skilaboð til upprennandi íþrótta-
manna: Leggja sig alla/allan fram
og gera sitt allra besta og hafa gaman
af því að spila leikinn.
SPORTSPJALL
„DEILDIN ER GRÍÐARLEGA STERK Í ÁR“
„Við erum með hóp stútfullan af hæfileikum,“ segir Úlfur Blandon, þjálfari Þróttar Vogum.
Þróttur Vogum fer vel af stað í 2. deildinni í knattspyrnu, liðið hefur farið
með sigur af hólmi í fyrstu tveimur viðureignum sínum á tímabilinu.
Nýliðunum er spáð sjöunda sæti í 2. deildinni af Fótbolti.net en Þróttur
leikur í fyrsta sinn í ár í annari deildinni. Úlfur Blandon, þjálfari Þróttar,
svaraði nokkrum spurningum fyrir Víkurfréttir um tímabilið, stuðninginn
og styrkleika liðsins.
Ertu ánægður með byrjunina
á Íslandsmótinu?
Við höfum farið vel af stað,
bæði í stigasöfnun og eins
í frammistöðu. Við hins
vegar gerum okkur
grein fyrir að þetta
er gríðarlega sterk
deild í ár, það eiga
allir eftir að taka
stig af hver öðrum
þannig að við
tökum bara einn
leik í einu.
Hvernig er
staðan á
hópnum?
Hún er góð, við
erum með hóp
stútfullan af hæfi-
leikum, það er fín reynsla í bland
við yngri leikmenn.
Hvert er markmið sumarsins?
Ætlum okkur að spila
skemmtilegan fótbolta,
skemmta okkar áhorf-
endum í Vogunum og
sýna að við erum lið
sem erfitt verður að
mæta.
Ætlið þið að fá fleiri
leikmenn til ykkar
áður en leikmanna-
glugginn lokar?
Við erum opnir fyrir
því en það er ekkert
í hendi.
Er einhver leikmaður
sem þú vilt nefna sem
hefur sýnt framfarir í
vetur eða bindur miklar vonir við?
Við bindum miklar vonir við alla okkar
stráka og búumst við miklu frá þeim.
Skiptir stuðningurinn máli?
Hann skiptir öllu máli, fengum frá-
bæra mætingu í fyrsta leik sem gríðar-
lega jákvætt. Svo núna um helgina
á móti Gróttu voru stuðningsmenn
Þróttar algjörlega geggjaðir, létu vel í
sér heyra allan leikinn þetta var alveg
ómetanlegt og hjálpaði okkur svo
sannarlega, þeir voru okkar tólfti
maður. Það er bara þannig að við
eigum frábæra stuðningsmenn og
vonumst til að sjá þá sem oftast þetta
gerir svo mikið fyrir okkur.
Hver er ykkar styrkleiki/veikleiki?
Umgjörðin í kringum félagið og liðið
er til algjörrar fyrirmyndar, það á
tvímælalaust eftir að hjálpa okkur
í sumar. Við erum með sterkan hóp
af leikmönnum sem eru tilbúnir að
leggja á sig mikla vinnu til að ná ár-
angri. Ég kýs að líta svo á að glasið
sé hálffullt, engir veikleikar bara
ákveðnir styrkleikar sem við ætlum
að verða enn betri í.
FÓTBOLTASAMANTEKT
MJÓLKURBIKAR KVENNA: Keflavík í 16 liða úrslit Mjólkurbikarsins
Keflavíkur mætti ÍA í Mjólkubikar kvenna á sunnudaginn. Leiknum lauk
með 2:0 sigri Keflavíkur. Anita Lind Daníelsdóttir skoraði fyrra mark
leiksins á 57. mínútu og Eva María Jónsdóttir, leikmaður ÍA, varð fyrir því
óláni að skora sjálfsmark á 62. mínútu. Keflavík er því komið áfram í 16
liða úrslit Mjólkurbikars kvenna.
PEPSI-DEILD KARLA:
Góður útisigur Grindvíkinga
Grindavík heimsótti Víking í fjórðu
umferð Pepsi-deildar karla í knatt-
spyrnu, leiknum lauk með sigri
Grindavíkur 1:0. Óli Stefán Fló-
ventsson, þjálfari Grindavíkur,
gerði nokkrar breytingar á liði
sínu frá síðasta leik gegn KR.
Bæði lið sóttu á fyrstu mínútum
leiksins og nokkur dauðafæri litu
dagsins ljós, á 45. mínútu skoraði
Aron Jóhannsson fyrir Grindavík
eftir stoðsendingu frá Nemanja Lat-
inovic. Grindavík keyrði í skyndisókn
eftir hornspyrnu frá Víkingum og
úr henni kom eina mark leiksins,
með því nældi Grindavík sér í góðan
útisigur í Víkinni og er komið með
sjö stig eftir fjórar umferðir í Pepsi-
devildinni.
Keflavík tapaði fyrir Fjölni
Keflavík tók á móti Fjölni á Nettó-
vellinu í fjórðu umferð Pepsi-
deildar karla.
Bæði lið sóttu í byrjun fyrri hálf-
leiks en gestirnir komust yfir á 31.
mínútu þegar Birnir Snær Ingason
skoraði fyrir Fjölni. Fyrir utan mark
gestanna var fyrri hálfleikur ansi
tíðindalítill og var staðan því 1:0
í hálfleik. Keflavík hóf seinni hálf-
leikinn af krafti og Hólmar Örn
Rúnarsson skoraði á 52. mínútu
eftir hornspyrnu. Gestirnir voru
ekki lengi að svara fyrir sig en Alm-
arr Ormarsson kom Fjölni í 2:1 á
62. mínútu og það urðu lokatölur
leiksins. Keflavík á því enn eftir að
næla sér í sinn fyrsta sigur í Pepsi-
deildinni og eru með eitt stig eftir
fjórar umferðir.
Mikilvægt stig á erfiðum útivelli
Baráttuglaðir Keflvíkingar gerðu
góða ferð norður yfir heiðar í
fimmtu umferð Pepsi-deildarinnar
þar sem þeir gerðu markalaust
jafntefli gegn KA.
Ástand Akureyrarvallar var ekki gott
og bauð ekki upp á áferðarfallegan
fótbolta. Mikilvægt stig kom í hús
hjá Keflavík og var ánægjulegt að
sjá hugarfarsbreytingu leikmanna
sem lögðu sig alla fram í leiknum.
PEPSI-DEILD KVENNA:
Þriðja tap Grindavíkur
Grindavík tók á móti Val í þriðju
umferð Pepsi-deildar kvenna,
lokatölur leiksins urðu 3:0 fyrir
gestina. Leikurinn byrjaði heldur
betur með látum en á sjöttu mínútu
skoraði Málfríður Erna Sigurðar-
dóttir fyrir Val eftir hornspyrnu.
Grindavík átti skyndisókn á tólftu
mínútu en náði ekki að nýta færið.
Tveimur mínútum seinna jók Valur
forystu sína með marki frá Ásdísi
Karen Halldórsdóttur en markið
skoraði hún af 25 metra færi í
vinkilinn.
Heimakonur sýndu mikla baráttu í
seinni hálfleik en fengu víti dæmt á
sig á 66. mínútu sem Valskonur skor-
uðu úr. Lokastaðan 0:3 og Grinda-
víkurstúlkur stigalausar eftir þrjár
umferðir.
INKASSO-DEILD KARLA:
Njarðvík fékk mark á sig í upp-
bótartíma
Njarðvík tók á móti Þór frá Akur-
eyri í þriðju umferð Inkasso-
deildar karla. Fátt markvert gerðist
framan af í leiknum en það var
háspenna á lokamínútunum og
Alvaro Montejo, leikmaður Þórs,
skoraði á 94. mínútu leiksins en
dómarinn flautaði hann af eftir
miðju Njarðvíkinga. Njarðvík er
um miðja deild með fjögur stig eftir
þrjár umferðir.
INKASSO-DEILD KVENNA:
Annar sigur Keflavíkur
Keflavík tók á móti Fjölni í ann-
ari umferð Inkasso-deildarinnar.
Lokatölur leiksins urðu 2:1 fyrir
Keflavík og liðið því með fullt hús
stiga eftir tvær umferðir og situr
á toppi deildarinnar.
Keflavík skoraði fyrra mark sitt á
26. Mínútu, þar var Anita Lind Daní-
elsdóttir að verki eftir fyrirgjöf frá
Marín Rún.
Fjölnir byrjaði seinni hálfleik af
krafti en Keflavík komst í 2:0 for-
ystu á 84. mínútu þegar Mairead
Clare Fulton skoraði. Fjölniskonur
minnkuðu muninn á 87. mínútu
en lengra komust þær ekki þó sjö
mínútum væri bætt við venjulegan
leiktíma. Annar sigurinn því í höfn
hjá Keflavík sem ætlar sér að enda
á toppi deildarinnar í sumar.
2. DEILD KARLA:
Draumabyrjun Þróttar Vogum
Þróttur Vogum er í góðri stöðu í 2.
deildinni eftir góðan sigur á Tinda-
stóli á laugardaginn. Lokatölur
leiksins urðu 4:0 fyrir Þrótti. Örn
Rúnar Magnússon skoraði fyrsta
mark leiksins á 10. mínútu, annað
mark Þróttara Jordan Chase Tyler
á 20. mínútu og Brynjar Sigþórsson
bætti því þriðja við á 40. mínútu
úr víti. Í seinni hálfleik skoraði
Bjarki Már Árnason sjálfsmark.
Þróttur er því með fullt hús stiga
eftir þrjár umferðir.
Víðir tapaði fyrir Aftureldingu
Víðir mætti Aftureldingu í Mos-
fellsbæ í þriðju umferð deildar-
innar og urðu lokatölur leiksins 2:1
fyrir Aftureldingu. Víðir komst yfir
á 36. mínútu með marki Ara Steins
Guðmundssonar og leiddu Víði-
smenn leinn í hálfleik. Á 86. mínútu
jöfnuðu heimamenn metin og í
uppbótartíma skoraði Alexander
Aron Davorsson sigurmark Aftur-
eldingar.
Ljósm.: Skagafréttir
AUGLÝSINGASÍMINN ER
421 0001