Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.05.2018, Blaðsíða 35

Víkurfréttir - 24.05.2018, Blaðsíða 35
35MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 24. maí 2018 // 21. tbl. // 39. árg. Karlakór Keflavíkur hélt tvenna vortónleika í Ytri-Njarðvíkurkirkju í síðustu viku. Tónleikarnir voru mjög vel sóttir og með léttara yfirbragði en kórinn söng lög eftir yngri tónskáld á borð við Ásgeir Trausta, Braga Valdimar og Mugison í bland við klassísk eldri lög. Í pistli formanns í söngskrá segir Jón Ragnarsson Gunnarsson að kórinn hafi verið mjög virkur í vetur og margir nýir félagar hafi bæst við og blásið nýju lífi í starf kórsins. Eitt af verkefnum vetrarins var að taka sal kórsins við Vesturbraut í gegn og voru kórfélagar duglegir í því verkefni. Eftir það er salurinn nú eins og nýr. Þá nefnir formaðurinn að Jóhann Smári Sævarsson, formaður klúbbsins, hafi boðið félögum upp á námskeið í söng sem margir hafi nýtt sér. Jóhann Smári stýrði tónleikunum en undirleikur var í höndum sonar hans, Sævars Helga, en hann er fjöl- hæfur tónlistarmaður og hefur spilað með mörgum hljómsveitum. Á tónleikunum söngu þeir Haraldur Arn- björnsson og Kristján Þ. Guðjónsson ein- söng, Ingólfur Ólafsson og Valgeir Þor- láksson tóku dúett og Valgeir var svo með í tenóratríói ásamt þeim Jóni R. Gunnars- syni og Páli Bj. Hilmarssyni. Páll Ketilsson kíkti inn á tónleikana og tók meðfylgjandi myndir í kirkjunni. Krafturí Karlakór Keflavíkur

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.