Víkurfréttir - 24.05.2018, Blaðsíða 35
35MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 24. maí 2018 // 21. tbl. // 39. árg.
Karlakór Keflavíkur hélt tvenna vortónleika í Ytri-Njarðvíkurkirkju í síðustu viku.
Tónleikarnir voru mjög vel sóttir og með léttara yfirbragði en kórinn söng lög eftir
yngri tónskáld á borð við Ásgeir Trausta, Braga Valdimar og Mugison í bland við
klassísk eldri lög.
Í pistli formanns í söngskrá segir Jón
Ragnarsson Gunnarsson að kórinn hafi
verið mjög virkur í vetur og margir nýir
félagar hafi bæst við og blásið nýju lífi í
starf kórsins. Eitt af verkefnum vetrarins
var að taka sal kórsins við Vesturbraut
í gegn og voru kórfélagar duglegir í því
verkefni. Eftir það er salurinn nú eins og
nýr. Þá nefnir formaðurinn að Jóhann
Smári Sævarsson, formaður klúbbsins, hafi
boðið félögum upp á námskeið í söng sem
margir hafi nýtt sér. Jóhann Smári stýrði
tónleikunum en undirleikur var í höndum
sonar hans, Sævars Helga, en hann er fjöl-
hæfur tónlistarmaður og hefur spilað með
mörgum hljómsveitum.
Á tónleikunum söngu þeir Haraldur Arn-
björnsson og Kristján Þ. Guðjónsson ein-
söng, Ingólfur Ólafsson og Valgeir Þor-
láksson tóku dúett og Valgeir var svo með
í tenóratríói ásamt þeim Jóni R. Gunnars-
syni og Páli Bj. Hilmarssyni.
Páll Ketilsson kíkti inn á tónleikana og tók
meðfylgjandi myndir í kirkjunni.
Krafturí Karlakór Keflavíkur