Víkurfréttir - 24.05.2018, Síða 27
27MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 24. maí 2018 // 21. tbl. // 39. árg.
unum og erum í dag komnir með 130
óhöpp. Bæði þar sem er mannskaði
og alveg niður í minniháttar óhöpp
á flugvöllunum, bæði hér í Keflavík
og í Reykjavík.
Slysið sem verður í Fagradalsfjalli
fyrir 75 árum síðan er í rauninni
stórmerkilegur atburður, ekki satt?
Mér finnst það og að þetta skuli gerast
í bakgarðinum hjá okkur vera dálítið
merkilegt en þessi atburður er bara
þaggaður niður því hann gerist á svo
óheppilegum tíma á stríðsárunum.
Þetta er svo slæmt áróðurslega að
hershöfðinginn farist og fyrstu hetj-
urnar eru jafnvel á leiðinni heim.
Þannig að það er bara sléttað yfir
þetta en það er hvergi fjallað um
þennan mann og jafnvel þó þú lesir
þér til í sögubókum um stríðið þá er
hvergi minnst á hann. Hann á í raun
og veru að vera í sama hópi og Eisen-
hover, Patton, Bradley og Montgo-
mery, Andrews á að vera í þessum
hópi en hann væri þar fremstur í
flokki, hefði hann lifað.
Flugslysið breytir þá hugsanlega
kannski bandarísku sögunni?
Ég veit það ekki, það er nú meira en að
segja það að fara að leiðrétta söguna.
Þetta er allavega fyrsta skrefið og
þessir menn gleymast ekki, þeirra
verður minnst og það er svo gaman að
geta tekið þátt í þessu. Jim Luke hefur
átt veg og vanda að safna fyrir þessu
og að koma þessu í kring, við erum
bara búin að vera að hjálpa honum
hér heima. Ég er svo stoltur af okkar
fólki hér heima, móttökurnar sem við
höfum fengið við þessari hugmynd hjá
Grindavík, Landhelgisgæslunni, Keili.
Minnisvarðinn er veglegur, sýnir það
ekki að þetta sé svolítið merkilegur
atburður?
Þetta er stórmerkilegur atburður, þeir
voru ansi margir á stríðsárunum og
þessi er kannski svolítið afskekktur
hér á Íslandi en nú er Ísland inn í
ferðaþjónustunni þannig að kannski
breytist þetta eitthvað. Við sjáum
bara til, þetta er á góðum stað, fólk
keyrir hér framhjá þegar það fer í
Bláa Lónið og því er aldrei að vita
nema að þetta verði stoppistöð fyrir
ferðamenn og aðra.
Eru margir svona slysstaðir frá
stríðsárunum hér á Reykjanesskag-
anum?
Já, hér í næsta nágrenni við Fagra-
dalsfjall eru sjö flugslys. Það eru tvö
önnur slysflök í Fagradalsfjalli fyrir
utan þetta og eru þau flest vegna
veðurs, aðstæðna og kunnáttuleysis.
Svo voru siglingartækin á þessum
tíma bara loftvog og áttaviti, það var
ekkert GPS þá.
Veðrið sem við erum að upplifa núna
við afhjúpun minnisvarðans, þetta
er eitthvað svipað og var þegar slysið
varð?
Ég hugsa það, það er a.m.k. mjög ná-
lægt því. Það er til myndband sem
var tekið daginn eftir slysið sem var
tekið upp þegar björgunarfólk mætti
á staðinn og það sést á því að það er
suðvestan og éljagangur á þeirri mynd
þannig að ég er nokkuð viss um að
veðrið í dag er mjög svipað.
Ólafur Marteinsson
Minnismerkið við Grindavíkurveg var afhjúpað 3. maí sl.
Myndir frá slysstað þann 4. maí 1943, daginn eftir slysið.
HORFÐU
Á VIÐTALIÐ
Í SJÓNVARPI
VÍKUR FRÉTTA