Víkurfréttir - 24.05.2018, Qupperneq 28
28 UMRÆÐAN Á SUÐURNESJUM f immtudagur 24. maí 2018 // 21. tbl. // 39. árg.
Þann 11.nóvember síðastliðinn urðu kafla-
skipti í lífi Garðbúa og Sandgerðinga. Við
tókum þá ákvörðun um að sameinast í eitt
öflugt sveitarfélag. Þennan laugardag varð
strax ljóst að breytinga væri að vænta.
Breytingum fylgja sóknarfæri og við B-lista
fólk viljum fá að vera í fararbroddi í þeirri
sókn. Við erum með skýra framtíðarsýn á
verkefnin framundan og höfum samvinnu að leiðarljósi.
Samvinna við mótun nýs sveitarfélags
Íbúar í okkar nýja sveitarfélagi eiga það skilið að tilvon-
andi sveitastjórnarfólk vinni þétt saman að mikilvægum
málum, eins og fræðslu- og öldrunarmálum, dagvistun
og skipulags- og menningarmálum, svo eitthvað sé nefnt.
Að mati okkar hjá B-listanum er ótímabært að langir
loforðalistar detti inn um bréfalúgu íbúa þar sem öllu
fögru er lofað. Við setjum okkur markmið og leggjum
fram ákveðna framtíðarsýn. Líklega hefur enginn af til-
vonandi sveitastjórnarfólki áður tekið þátt í að sameina
sveitarfélög. Það verkefni er afar spennandi áskorun og
tækifæri til að bæta þjónustu við íbúa og þróa okkar góða
samfélag til framtíðar.
Aðkoma íbúa að ákvörðunum
Tölurnar sýna að hið nýja sveitarfélag verði með um
250.000 milljónir króna til umráða til nýframkvæmda
fyrir árið 2019. Að mati okkar hjá B-listanum er mikilvægt
að íbúar komi að ákvarðanatöku um hvernig verkefnum
verði forgangsraðað og fjármunum til þeirra úthlutað.
Það gerum við með íbúakosningum.
Aukum lífsgæði eldri borgara
Við vitum öll að sveitarfélögin hafa ekki gert nóg í mál-
efnum aldraða. Nú er tækifæri að gera betur í þeim
efnum. Við hjá B-listanum viljum auka heimaþjónustu
við aldraða, bjóða upp á fjölbreyttara félagsstarf, bæta
akstursþjónustu og margt fleira sem eykur lífsgæði eldri
borgara. En heilsugæsla í heimabyggð er líka eitt af þeim
verkefnum sem við B-lista fólk ætlum að beita okkur sér-
staklega fyrir. Nýtt upphaf er á næsta leyti. Framsókn og
óháðir eru tilbúnir til að leggja sitt af mörkum til að gera
gott samfélag ennþá betra fyrir okkur öll. Við biðjum um
þinn stuðning til þess.
Daði Bergþórsson 1.sæti B-listi og óháðir
í Sandgerði og Garði
Ný bæjarstjórn verður
að breyta deiliskipu-
lagi í Helguvík og
leggja til bann við
mengandi stóriðju.
Íbúar verða að fá að
kjósa um breytingu á
skipulaginu í bindandi
kosningu.
Í mörg ár hef ég barist af krafti gegn
kísilverksmiðjum í Helguvík. Ég hélt
íbúafundi, skipulagði mótmæli og
fór af stað með undirskriftarlista til
að knýja fram íbúakosningu. Ég hef
barist gegn þessum mengandi iðnaði
vegna þess að ég vil ekki fórna nátt-
úru og heilsu minni né samborgara
um ókomna tíð. Heilsan er það dýr-
mætasta sem við eigum og hún er ekki
til sölu. Framtíðin liggur í ósnertri
náttúru, heilsusamlegu andrúmslofti
og hreinu vatni.
Mengandi iðnaður mengar
alltaf
Kísilver United Silicon er málefni sem
mikið er rætt í aðdraganda sveitar-
stjórnarkosninga í Reykjanesbæ.
United Silicon er skólabókardæmi
um hvernig ekki skal gera hlutina,
og afleiðingarnar skelfilegar fyrir
alla sem að komu en fyrst og síðast
fyrir bæjarbúa, sem m.a þurftu að
líða mikla mengun þann stutta tíma
sem kísilverið var í rekstri.
Í þessum kosningum virðast margir
framboðslistar vera á móti kísil-
verinu, en það þarf meira en orð á
blaði, það þarf að sýna dug og þor
að taka skrefið alla leið. Það þarf að
stöðva reksturinn fyrir fullt og allt.
Eflaust gera menn sér í hugarlund
að mengunarslysið á síðasta ári hafi
verið mistök í framleiðslu sem hægt
verði að koma í veg fyrir með betri
mengunarvörnum. Staðreyndin er
sú að mengandi stóriðja er mengandi
stóriðja hvernig sem hún er matreidd.
Íbúakosning eða
skoðunarkönnun
Flest framboð í Reykjanesbæ tala um
að hér verði íbúakosning um fram-
tíðarskipulag Helguvíkursvæðisins, en
hún verði skv. lögum ekki bindandi
kosning og því alfarið undir bæjaryfir-
völdum komið hvort unnið sé í takti
við niðurstöðu kosningar.
Íbúakosning sem er ekki bindandi er
gagnlaus að mínu mati, hún er í raun
bara kostnaðarsöm skoðunarkönnun.
Í 107. gr. sveitarstjórnarlaga um
íbúakosningar segir; „Sveitarstjórn
ákveður hvort fram skuli fara almenn
atkvæðagreiðsla meðal íbúa um ein-
stök málefni. Atkvæðagreiðsla sam-
kvæmt þessari grein, sem og 108.
gr., er ráðgefandi nema sveitarstjórn
ákveði að hún skuli binda hendur
hennar til loka kjörtímabils”. Það er
því villandi og beinlínis rangt að tala
um að íbúakosning geti ekki verið
bindandi, allt sem þarf er vilji bæjar-
yfirvalda að hlusta og fara eftir vilja
íbúa. Nærtækt dæmi er þegar Hafnar-
fjarðarbær fór í íbúakosningu hér um
árið, um hvort leyfa skyldi stækkun
álversins við Straumsvík og niður-
staðan var að íbúar höfnuðu þeirri
stækkun. Þarna var bæjarstjórn sem
þorði að taka mark á vilja íbúanna.
Ekki gleyma Thorsil
Allt virðist stefna í aðra risavaxna
kísiliðju við hliðina á United Silicon
kísilverinu. Það furðar mig að menn
skorti vilja og þor til að láta hér staðar
numið í ljósi fyrri reynslu.
Ekki byrjar Thorsil ævintýrið vel; í
lóðasamningi sem Reykjanesbær og
Thorsil undirrituðu árið 2014, kemur
fram að ef vanskil verði vegna greiðslu
á gatnagerðargjöldum skv. gr. 3.1, þá
hefur Reykjaneshöfn heimild til að
rifta samningum í heild sinni einhliða.
Það er skemmst frá því að segja að
ítrekað hafa bæjaryfirvöld gefið frest
á greiðslu. Þetta segir mér að stóriðju-
vitleysan heldur áfram í Helguvík.
Það er sannarlega mikil vonbrigði.
Framtíðin er vistvæn og
Vinstri græn
„Kálver í stað álvers“, var einu sinni
sprenghlægileg hugmynd en sýnir
sig nú meira og meira að í breyttum
heimi er matvælaframleiðsla atvinnu-
grein framtíðarinnar.
Ég sé fyrir mér Helguvík sem fallegt
útivistarsvæði og jafnvel tjaldstæði
þar sem göngu- og hjólreiðarbrautir
tengja svæðið frá höfninni inn í
miðbæ Reykjanesbæjar.
Skip sem fylgja hertum reglum um
hreinsibúnað og bruna svartolíu, gætu
bætt fjárhagsstöðu hafnarinnar með
því að tengja sig við rafmagn. Ferða-
menn í göngufæri við miðbæinn væri
velkomin lyftistöng fyrir verslun og
þjónustu bæjarins.
Við verðum að sýna hugrekki til að
leiða bæinn okkar inn í nýja tíma, þar
sem skýr framtíðarsýn og vistvæn
stefna fara hönd í hönd og náttúran
og mannfólkið fái alltaf að vera í
fyrirrúmi.
Dagný Alda Steinsdóttir
1. sæti VG í Reykjanesbæ
Næstkomandi laugardag ræðst það hvort
við sjálfstæðismenn verðum áfram í
meirihluta í Grindavík. Það stefnir
í mikla baráttu þar sem sex framboð
bjóða nú fram. Sjálfstæðisflokkurinn
telur sig hafa unnið vel fyrir bæjarfélagið
á kjörtímabilinu og hefur efnt flest af
þeim metnaðarfullu atriðum sem fram komu í síðustu
stefnuskrá. Þar má helst telja byggingu sex nýrra íbúða
í Víðihlíð, framkvæmdir við nýtt íþróttahús eru hafnar
og keypt hefur verið stórt húsnæði undir daggæslu
barna frá 12 mánaða aldri.
Á næsta kjörtímabili stefnum við m.a að því að úthluta
lóðum undir litlar íbúðir fyrir eldri borgara við Víðihlíð
og tengja við þær 300 – 400 fermetra félagsaðstöðu. Þá
leggjum við til að ráðinn verði ferðamálafulltrúi sem
hafi yfirumsjón með að móta ferðamálastefnu fyrir
bæinn. Einnig er mikilvægt að hefja framkvæmdir að
nýrri aðkomu inn á knattspyrnuvöllinn með því að
klára aðstöðuna við Hópið.
Kæri kjósandi! Það er í þínum höndum hverjum þú
treystir til að standa við gefin loforð, við sjálfstæðismenn
höfum sýnt að við erum traustsins verðir. Settu x við D
til að tryggja örugga stjórn bæjarins næstu fjögur árin.
Guðmundur Pálsson,
skipar 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins
Fra m u n d a n e r u
sveitarstjórnarkosn-
ingar þar sem íbúar
Reykjanesbæjar velja
sér framtíð. Bæjar-
búar hafa lært af
reynslunni. Þeir vita
að þeir geta valið á milli draum-
kenndra loforða sem munu koma
fjárhag bæjarfélagsins aftur í kaldakol
og raunhæfra loforða þar sem ábyrg
stjórnun leiðir af sér betra bæjarlíf.
Stefna okkar hjá Frjálsu afli snýst um
hið síðarnefnda.Fjármál sveitarfélags-
ins, uppbygging atvinnulífs, málefni
barnafjölskyldna, eldri borgara og
íþróttafélaga er það sem brennur
mest á okkur.
Skuldastaða bæjarins hefur lagast
mikið á líðandi kjörtímabili. Á árinu
2014 var bæjarsjóður rekinn með 4,8
milljarða tapi, en árið 2017 var hagn-
aður af rekstrinum 1,2 milljarðar.
Samkvæmt sveitarstjórnarlögum
verðum við að ná skuldum miðað
við tekjur niður í 150% fyrir árslok
2022. Skuldaviðmið Reykjanesbæjar
var í árslok 2014 228% hjá bæjarsjóði
en 233% hjá samstæðunni en í árslok
2017 158% en 186% hjá samstæðunni.
Sóknin gengur vel en Reykjanesbær
er þó enn undir smásjá Eftirlits-
nefndar um fjármál sveitarfélaga.
Við í bæjarstjórn erum kosin til að
fara með fjármuni íbúa bæjarins og
okkur ber skylda til að fara vel með
þá. Það höfum við líka lagt okkur fram
við að gera. Þrátt fyrir aðhald í rekstri
höfum við varið grunnþjónustu við
íbúana og höfum náð að lækka út-
svar og fasteignagjöld á árinu. Einnig
viljum við veita eldri borgurum meiri
afslátt af fasteignagjöldum en nú er
með hærri tekjutengingu.
Við eigum að veita börnum okkar
góða menntun. Við eigum að styðja
dyggilega við bakið á hvers konar for-
varnarstarfi eins og íþróttum. Veita
eldri borgurum aðgang að þjónustu
í samræmi við þarfir hvers og eins.
En við þurfum einnig að koma sem
flestum til sjálfsbjargar. Næsta stóra
verkefnið er bygging Stapaskóla sem
þegar er fullfjármagnað og er í út-
boðsferli.
Fulltrúar Á- listans Frjáls afls munu
leggja sig alla fram til að ná fram veru-
legum umbótum fyrir bæjarbúa. Við
viljum efla bæjarlífið þannig að öllum
geti liðið vel.
Setjum X við Á á kjördaginn 26.
maí. Virkjum Frjálst afl til framfara
í Reykjanesbæ!
Gunnar Þórarinsson,
skipar 1. sæti hjá Frjálsu afli
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 2018
MARGT HEFUR ÁUNNIST OG BJARTIR TÍMAR FRAMUNDANVirkjum Frjálsa aflið fyrir íbúa Reykjanesbæjar!
Burt með allan kísiliðnað úr Helguvík
Í kosningabaráttunni hef ég hitt fjölmarga bæjarbúa og
hefur það verið einkar ánægjulegt. Margir eru áhugasamir
um framboð Miðflokksins og höfum við fengið ákaflega
góðar viðtökur, fyrir það erum við þakklát. Skólamálin
eru málaflokkur sem margir hafa komið inn á. Mið-
flokkurinn leggur áherslu á að fjölga plássum í leik- og
grunnskóla, enda nauðsynlegt vegna fordæmalausrar
fólksfjölgunar. Einnig er forgangsmál að huga að kennurunum okkar.
Kennarar koma börnunum til manns
Hvað er okkur mikilvægara í lífinu en börnin okkar og menntun
þeirra. Margar áskoranir bíða okkar í skólamálum. Ekki er nóg að
fjölga plássum í skólunum. Það þarf að huga að þeim dýrmæta mann-
auði sem býr innan veggja skólanna, kennurunum. Álag á kennara
er mikið og of lítil nýliðun er í kennarastéttinni. Við þessu verður að
bregðast. Við erum að sjá fram á kennaraskort á næstu árum og til að
bregðast við verða laun kennara að vera samkeppnisfær. Svigrúmið
til að bæta kjör kennarar og auka nýliðun í stéttinni verður að vera til
staðar. Mjög mikilvægt er að endurskoða og breikka tekjustofna sveitar-
félaga svo halda megi uppi eðlilegu skólastarfi. Þetta er forgangsmál.
Lengi býr að fyrstu gerð
Miðflokkurinn vill efla iðn-tækni og listgreinakennslu á grunnskólastigi.
Í grunnskóla kemur oft í ljós hvaða nemendur hafa sérstaka hæfileika í
handverki. Við viljum hlúa enn betur að þessum nemendum. Menntamála-
ráðuneytið hefur m.a. lagt áherlsu á að fjölga þurfi nemendum í iðn- og
tæknigreinum í framhaldskóla, vegna skorts á iðn- og tæknimenntuðu
fólki á atvinnumarkaði. Málið verður unnið í fullu samráði við kennara
og auknar greiðslur til þeirra verða að fylgja fleiri kennslustundum.
Systkinaafsláttur af skólamáltíðum
Miðflokkurinn ætlar að innleiða systkinafslátt af skólamáltíðum. Verður
hann 50% af öðru barni eða fleirum. Stefnan er síðan sú að í framtíðinni
verði skólamáltíðar gjaldfrjálsar í Reykjanesbæ.
Kennarasamband Íslands hefur bent á að hættumerki séu víða í grunn-
skólunum þegar kemur að stöðu íslenskrar tungu. Þetta hefur einnig
komið fram í viðræðum mínum við kennara. Les- og málskilningi barna
hefur hrakað og við höfum horft upp á innrás enskrar tungu, ef svo má
að orði komast. Íslenskukennsluna þarf að styrkja á mörgum sviðum
og þar viljum við eiga gott samstarf við kennarana. Styrkja þarf skóla-
bókasöfnin, hvetja til meiri lesturs og fá höfunda til að koma í skólana
til að lesa úr verkum sínum.
Ábyrgðin er okkar allra.
X-M
SKÓLAMÁLIN Í FORGANG
AU
GL
ÝS
IN
G
Nýtt upphaf
á timarit.is
Margrét Þórarinsdóttir,
oddviti Miðflokksins í Reykjanesbæ.