Ægir - 01.03.2017, Page 19
19
um er mjög óæskilegt og gerir
að verkum að menn róa stíft þó
veður sé vont. Bræla er óþekkt
hugtak á strandveiðum vegna
þess hvernig fyrirkomulagið í
kerfinu er og það má ekki ógna
öryggi manna með þessum
hætti. Í fyrrasumar var veðrið
okkur mjög hagstætt hér á
Höfn en það er alls ekki sjálfgef-
ið og við þekkjum vel hvaða
astæður geta verið hér í innsigl-
ingunni.
Þó við hér á Höfn og á
D-svæðinu fögnum því að leið-
rétting fáist á gjörningi sjávar-
útvegsráðherra í fyrra þá er
okkar aðal keppikefli að berjast
fyrir betra veiðikerfi fyrir alla
strandveiðisjómenn, hvar svo
sem þeir eru á landinu.“
Krókaveiðar ættu að vera frjálsar
Vigfús segir stærsta baráttumál-
ið að fá aukna úthlutun heildar-
afla til strandveiða en hann fer
ekki í grafgötur með þá skoðun
að óþarft sé að takmarka jafn
mikið veiðar smábáta og nú er
gert.
„Auðvitað væri allra best að
mínu mati að krókaveiðar yrðu
alfarið gefnar frjálsar, íslensk
fiskveiðiþjóð á það skilið að
hafa þau tækifæri fyrir þegna
sína. Ég hef enga trú á að smá-
bátaflotinn gæti ógnað við-
gangi fiskistofna við Ísland þó
krókaveiðar yrðu frjálsar. Það er
ofmat,“ segir Vigfús og nefnir
mikilvægi strandveiðanna hvað
varðar nýliðun í smábátaút-
gerð. Sjálfur er hann gott dæmi
um mann sem fjárfestir í sínum
fyrsta bát til að hefja útgerð í
strandveiði.
„Stjórnmálamenn nota
gjarnan strandveiðina sem
dæmi um leið fyrir þá sem vilja
koma undir sig fótunum í út-
gerð. Á sama tíma er svo naumt
skammtað til kerfisins að menn
geta ekki einu sinni greitt sér
lágmarkslaun í þessari útgerð.
Við sem erum að basla í þessu
erum meira af hugsjón en skyn-
semi í þessu og verðum að
treysta á önnur störf til að hafa
framfærslu á ársgrundvelli. Hér
á Höfn sést vel að strandveiðin
hefur laðað yngri menn inn í
smábátaútgerð en til að þessi
hópur geti byggt sig upp í
greininni til framtíðar þarf að
styrkja rekstrargrunninn veru-
lega, fyrst og fremst með aukn-
um heildarafla. Þá yrði útgerðin
samfelldari yfir sumarið og
veiðitímabilið jafnvel lengra.
Óbreytt kerfi er með öðrum
orðum ávísun á ákveðna gildru
sem menn sitja fastir í,“ segir
Vigfús.
Vigfús segir mikið líf hafa færst í smábátaútgerðina á Höfn með tilkomu strandveiðikerfisins. Hér er hópur félaga í Hrolllaugi, félagi smábátasjó-
manna á Höfn en þeir létu hraustlega til sín heyra fyrir ári þegar þáverandi sjávarútvegsráðherra tók minnkaði heildarafla á suðursvæði strandveið-
anna, D-svæðinu, um 200 tonn. Núverandi sjávarútvegsráðherra hefur aukið heildarafla svæðisins um sömu tonnatölu á ný fyrir komandi strand-
veiðitímabil.
Á strandveiðimiðunum.