Ægir - 01.03.2017, Blaðsíða 20
20
Strandveiðar munu standa í fjóra mánuði í ár, líkt og undanfarin ár
en þetta er níunda sumarið sem sem smábátar stunda þær. Veiði-
tímabilið stendur frá 2. maí til 31. ágúst. Í meginatriðum er kerfið
með sama hætti og verið hefur en þó er tekin til baka sú breyting
sem þáverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra gerði á kerf-
inu í fyrra þegar aflaheimildir voru skertar á veiðisvæði D um 200
tonn. Heimildir á því svæði aukast um þessa tonnatölu á nýjan leik
og þar með eykst heildarmagnið úr 9.000 tonnum í 9.200 tonn.
Fyrsta sumarið sem strandveiðar voru heimilaðar námu strand-
veiðiheimildirnar 4.000 tonnum.
A-svæðið með mestar heimildir
Útgefin leyfi á strandveiðinni í
fyrra voru 670 talsins og var
heildaraflinn 9.146 tonn í tæp-
lega 15 þúsund löndunum.
Þorskur var uppistaða aflans,
eða rösk 93% en meðalafli í
hverjum róðri sló met í fyrra,
614 kg.
Með sama hætti og áður er
heimilt að stunda veiðar frá
mánudegi til og með fimmtu-
dags, hver veiðiferð má að há-
marki standa í 14 tíma og skal
hver bátur að hámarki hafa fjór-
ar handfærarúllur en engin
önnur veiðarfæri um borð. Þá
skal afli í hverri veiðiferð vera að
hámarki 650 kg í þorskígildum
talið af kvótabundnum tegund-
um.
Fjögur veiðisvæði eru líkt og
áður; svæði A frá Eyja- og Mikla-
holtshreppi að Súðavíkur-
hreppi, svæði B frá Strand-
abyggð að Grýtubakkahreppi,
svæði C frá Þingeyjarsveit að
Djúpavogshreppi og áðurnefnt
svæði D frá Hornafirði að Borg-
arbyggð. A svæði fær að veiða í
heild, 3.410 tonn, B svæði 2.086
tonn, C svæði 2.174 tonn og D
svæði 1.500 tonn. Úthlutuninni
er skipt þannig á mánuði að
leyfilegt verður að veiða 2.524
tonn í maí, 2.835 tonn í júní,
2.535 tonn í júlí og 1.306 tonn í
ágúst.
„Nóg rými fyrir aukningu“
Landssamband smábátaeig-
enda hefur lengi barist fyrir
breytingum á strandveiðikerf-
inu og ályktað þar um á sínum
aðalfundum. Í setningarræðu
sinni á aðalfundi samtakanna í
október síðastliðnum sagði
Halldór Ármannsson, þávarandi
formaður LS, þessar kröfur skýr-
ar.
„Við viljum að fara megi á sjó
4 daga í viku, 4 vikur í mánuði í
4 mánuði með þeim sömu for-
merkjum og fyrir eru í kerfinu í
dag. Það getur vel verið að sum-
um finnist kröfurnar hógværar
en við viljum vera með þær á
sanngjörnum nótum. Við vitum
vel að strandveiðiaflinn mun
aukast frá því sem nú er, en það
er bara allt í lagi. Öryggi strand-
veiðisjómanna mun stóraukast
því ekki þarf að keppast við að
ná þeim fáu dögum sem oftast
eru í boði á sumum svæðum.
Það má ætla að gæði aflans
aukist því ekki þarf að fiska á
grunnsvæðum eða í skjóli í
brælum, en þar er oft bæði
smærri og verðminni fiskur. Það
er nóg rými fyrir þá aukningu
sem þarf, því á meðan að afla-
mark í þorski hefur aukist um
50% frá árinu 2011 hefur aukn-
ing í strandveiðar aðeins verið
um 20%. Ekki þurfum við að
hafa áhyggjur af því að stórút-
gerðin vilji aukningu í þorski því
þeir skrifa uppá útgefið afla-
mark frá Hafrannsóknastofnun í
flestum tegundum athuga-
semdalaust,“ sagði Halldór.
Þessar áherslur voru stað-
festar í samþykktum fundarins
og þess jafnframt krafist að
hætt verði innheimtu sérstaks
50 þúsund króna gjalds á
strandveiðibáta sem renni til
hafna. Þá var einnig í samþykkt
fundarins um strandveiðar mót-
mælt harðlega öllum hug-
myndum frá atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneyti um leng-
ingu strandveiðitímabils á einu
svæði umfram önnur.
Nær óbreytt strand-
veiðikerfi frá fyrra ári
Strandveiðin fer á fulla ferð nú í maí.
S
tra
n
d
v
eiða
r
Meðalafli í róðri strandveiðibáta hefur aldrei verið jafn mikill og í
fyrra. Landssamband smábátasjómanna telur nægt rými vera
fyrir umtalsverða aukningu heildarafla til strandveiða.