Ægir - 01.08.2017, Qupperneq 6
6
Nýtt fiskveiðiár er gengið í garð, líkt og Ægir ber glöggt merki í þess-
ari árlegu útgáfu okkar sem að stórum hluta er helguð tölulegum
upplýsingum um úthlutunun aflamarks. Það ber helst til tíðinda í út-
hlutuninni að aukning er í aflamarki lykiltegunda á borð við þorsk,
ýsu og ufsa en líkt og áður er á þessum tímapunkti alls óvíst um
hvernig staðan verður á loðnustofninum í vetur. Loðnuveiðar skipta
að sjálfsögðu miklu fyrir sjávarútveginn sem heild en reynslan síð-
ustu áratugi sýnir að sveiflur geta verið snöggar í þeim veiðiskap.
Við búum hér á landi við kerfi sem takmarkar sókn í sjávarauð-
lindina. Kjarninn að baki því er að almennt gera allir sér grein fyrir
að óheft sókn kemur okkur sjálfum fyrst í koll og getur gengið svo
nærri fiskistofnum að langtímaskaði hlytist af. Á þessu er almennur
skilningur en það er svo önnur umræða hvort kökunni ætti að
skipta með einhverjum öðrum hætti; hvort einn útgerðarflokkur
ætti að fá meira á kostnað annars, hvort byggðarlög ættu að eiga
ákveðinn rétt umfram aðra og þannig mætti áfram telja. En þegar
allt kemur til alls hlýtur það að vera fagnaðarefni að mikilvægustu
stofnar í fiskafla landsmanna standa nokkuð sterkir, líkt og aukning
aflaheimilda er til vitnis um.
Á dögunum var haldin alþjóðleg ráðstefna í sjávarútvegi hér á
landi, World Seafood Congress 2017, og það eitt og sér að Ísland
hafi orðið fyrir valinu sem ráðstefnustaður segir talsverða sögu um
þá athygli sem landið hefur í sjávarútvegi á heimsvísu. Af um-
ræðum erlendra gesta mátti líka ráða að litið sé til Íslands á þessu
sviði, vegna reynslu, tækniþróunar og ekki hvað síst þeirrar stýring-
ar sem við höfum á fiskveiðum.
Með sama hætti var Íslenska sjávarútvegssýningin í Smáranum í
Kópavogi til vitnis um þetta. Erlendir sýnendur voru fleiri en áður
og sem fyrr dró sýningin að sér mikinn fjölda erlendra gesta sem
skoðuðu það sem fyrir augu bar. En eins og jafnan áður er sýning
sem þessi mikilvægur vettvangur fyrir kynningu á því helsta sem er
að gerast í íslenskum sjávarútvegi og hefur reynst mörgum fyrir-
tækjum stökkpallur til kynningar á sínum vörum; hvort heldur er
búnaður eða þjónusta við greinina.
Mitt í allri umræðunni um fiskveiðistjórnun, tækniframfarir,
framleiðslu, markaðsmál og marga aðra málaflokka sem tilheyra
sjávarútvegi á heimsvísu eru umhverfismálin það sem er undirstaða
alls. Ef við verndum ekki heimshöfin þá skipta þessir þættir engu
máli. „Lengi tekur sjórinn við“ hefur stundum verið haft á orði hér á
landi í gamansömum tón en slíkt er hreint ekkert skemmtiefni. Nú
virðist sem augu alheimsins séu loksins að opnast fyrir því að við
verður að bregðast. Plastmengun hafanna er staðreynd og stór-
hættuleg þróun. Ekki bara ógnar hún lífverum hafsins heldur einnig
manninum því öragnir úr plasti eiga með þessum hætti greiða leið í
frumur líkamans með alvarlegum afleiðingum. Við Íslendingar eig-
um mikið undir að við sé brugðist og þó við berum ekki á heimsvísu
ábyrgð á nema broti þeirrar mengunar sem í hafið berst þá eigum
við engu að síður að líta í eigin barm. Og höfum hugfast að þetta er
ekki bara spurning um skipin sem sigla um höfin heldur einnig alla
starfsemi á landi. Sjórinn tekur nefnilega ekki endalaust við.
Jóhann Ólafur Halldórsson skrifar
Í upphafi nýs fiskveiðiárs
R
itstjórn
a
rp
istilll
Vökvakerfislausnir
Vökvadælur, vökvamótorar
og stjórnbúnaður
Danfoss hf. Skútuvogi 6, 104 Reykjavík, Sími: 510 4100
www.danfoss.is
Stjórnbúnaður skipa. Tæknibúnaður sem ætlaður
er til notkunar á sjó mætir erfiðustu hugsanlegu
skilyrðum. Álag óblíðrar náttúru, miklar
hitabreytingar og stöðugur ágangur af söltum
sjó, eykur þörf viðskiptavina fyrir áreiðanlegan
og skilvirkan búnað.
Út gef andi:
Athygli ehf. ISSN 0001-9038
Rit stjórn:
Athygli ehf. Glerárgötu 24, Ak ur eyri.
Rit stjór i:
Jóhann Ólafur Hall dórs son (ábm.)
Sími 515-5220. GSM 899-9865.
Net fang: johann@athygli.is
Aug lýs ing ar:
Augljós miðlun. Sími 515-5206.
GSM 898-8022. Net fang: inga@athygli.is
Suðurlandsbraut 30. Reykjavík.
Hönnun & umbrot:
Athygli ehf.
Suðurlandsbraut 30. Reykjavík.
Sími 515-5200.
Á skrift:
Hálfsársáskrift að Ægi kostar 6100 kr.
Áskriftar símar 515-5200 & 515-5205
ÆG IR kem ur út 10-11 sinn um á ári.
Eft ir prent un og ívitn un er heim il,
sé heim ild ar get ið.