Ægir - 01.08.2017, Page 8
8
N
ý
tt fisk
isk
ip
Fjölmenni var á hafnarbakkanum á Sauðarkróki laugardaginn 19.
ágúst síðastliðinn þegar nýr togari FISK Seafood ehf., Drangey SK 2,
lagðist að bryggju eftir tæplega tveggja vikna siglingu frá Tyrk-
landi. Liðin eru 44 ár frá því síðast var tekið á móti nýju skipi á
Sauðárkróki en Drangey SK mun leysa ísfisktogarann Klakk SK af
hólmi. Vonast er til að fyrsta veiðiferð Drangeyjar verði farin fyrir
árslok en nú tekur við niðursetning fiskvinnslubúnaðar í skipið.
Það verkefni verður unnið af Skaganum 3X ehf. og er skipið nú
komið til Akraness þar sem búnaðurinn verður settur um borð.
Rúmar 225 tonn í lest
Drangey SK 2 er þriðji af fjórum
samskonar ísfisktogurum sem
koma hingað til lands á þessu
ári frá Cemre skipasmíðastöð-
inni í Tyrklandi. FISK Seafood hf.
og Samherji hf. höfðu samstarf í
þessu verkefni en þrjú skipanna
eru smíðuð fyrir Samherja Ís-
land og Útgerðarfélag Akureyr-
inga. Fyrst kom Kaldbakur EA
síðla vetrar, þá Björgúlfur EA í
byrjun sumars og síðasta skipið
er Björg EA sem væntanleg er í
árslok.
Skipin eru hönnun Bárðar
Hafsteinssonar, skipaverkfræð-
ings hjá Verkfræðistofunni
Skipatækni. Drangey SK er 62,5
metra langt skip og 13,5 metra
Drangey SK 2 siglir inn fyrir Drangey á Skagafirði á leið til heimahafnar í fyrsta sinn. Myndir: Jóhann Ólafur Halldórsson
Tímamót með nýrri
Drangey SK 2
Gestir skoða sig um í matsalnum.