Ægir

Årgang

Ægir - 01.08.2017, Side 21

Ægir - 01.08.2017, Side 21
21 bergi ÓF 1, nýjum frystitogara Ramma hf. Skipið kom til lands- ins í maí og fór fyrstu prufutúra í byrjun júní. Sólberg ÓF er frystitogari af fullkomnustu gerð, búinn flakavinnslulínum, pönnu- og lausfrystum, vatns- skurðarvél, mjölverksmiðju og mikilli sjálfvirkni í pökkun og frágangi afurða á vörubretti. Skipið getur dregið tvö troll samtímis. Flök og bitar Stóru tíðindin í Sólbergi ÓF er vatnsskurðarvélin frá Völku hf. en þetta er í fyrsta skipti sem slík fiskvinnsluvél er í vinnslu- skipi úti á sjó. Mögulegt er því að skera flök í bita og annað hvort lausfrysta eða pönnu- frysta með millileggi. Eins og gefur að skilja er þessi vara ný af nálinni á afurðamörkuðum. Skipið kom til hafnar á Siglufirði um mánaðamótin ágúst-sept- ember og gerði stutt hlé á veið- um meðan annarri vatnsskurð- arvél var bætt við vinnslulín- una, sem eykur afkastagetuna í þeirri vinnslu. „Bitaskurðurinn hefur komið ljómandi vel út hjá okkur en það getur verið breytilegt milli túra á hvað er lögð áhersla í vinnslunni. Því ræður fyrst og fremst fyrir hvaða viðskiptavini er verið að vinna hverju sinni. Ég er mjög ánægður með út- komuna á þessari nýbreytni en við getum með þessum búnaði bæði skorið flök í bita og bein- skorið flökin, ef þörf er á. Mér sýnist bitaskurðurinn lofa góðu fyrir framtíðina hjá okkur,“ segir Sigþór. Skip hlaðið búnaði Sólberg ÓF 1 er skip hlaðið búnaði, eins og við er að búast þegar frystitogari af þessari stærð er annars vegar. Auk bita- skurðarvélarinnar má nefna að í skipinu er einnig ný prótein- verksmiðja frá Héðni hf. sem vinnur mjöl og lýsi úr hausum, beinum og slógi. Allur afli er því nýttur um borð. Af öðrum búnaði um borð má nefna hausara og flökunar- vélar frá Vélfagi ehf. í Ólafsfirði, fiskvinnslutæki eru frá Optimar, rafmagnsvindur frá Rapp og að- alvél frá Wartsila. Aflanemakerfi er frá Scanmar, siglingatæki frá Furuno, Simrad, Sailor og fleiri framleiðendum. Skipið er hönn- un frá norska fyrirtækinu Skip- steknisk AS og var smíðað hjá Tersian skipasmíðastöðinni í Tyrklandi. Sólbergið er 80 metra langt og 15,5 metra breitt. Tvær áhafnir eru á skipinu en þær voru áður á frystitogurunum Mánabergi og Sigurbjörgu í eigu sömu útgerðar. Gert er ráð fyrir að ársafli Sólbergs verði 12-15.000 tonn. Lærdómur í fyrstu túrum „Við höfum langmest verið á þorskveiðum í sumar og bæði verið góð veiði og fiskurinn vænn. Fyrri hluta sumars var mjög góður afli hér grunnt út af Norðurlandi en við fórum svo dýpra þegar á sumarið leið. Mér líst afar vel á skipið, auðvitað er maður enn að læra á þetta allt saman en skipið er aflmikið og lætur vel að stjórn. Þessir fyrstu túrar fara því talsvert mikið í það hjá áhöfninni að læra á skipið og búnaðinn og þjálfa verkferlana um borð. En við er- um búnir að prófa flest og líst vel á. Það eru allir sammála um að viðbrigðin frá gömlu skipun- um er mikil og tilhlökkun þegar reynslutíminn verður að baki og festa kemst í sóknina. Við gerum ráð fyrir að túrar verði að jafnaði um 30 sólarhringar,“ segir Sigþór. Sigþór Kjartansson, skipstjóri á Sólbergi ÓF 1.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.