Morgunblaðið - 06.12.2017, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 06.12.2017, Blaðsíða 25
Raðauglýsingar Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri, sem hér segir: Seljalandsvegur 68, Ísafjarðarbær, fnr. 212-0213, þingl. eig. Sigríður F Jónbjörnsdóttir og Steingrímur Jón Steingrímsson, gerðarbeiðend- ur Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra og Íbúðalánasjóður, þriðju- daginn 12. desember nk. kl. 13:30. Eyrargata 9, Ísafjarðarbær, fnr. 212-6757, þingl. eig. Hlaðka ehf, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 12. desember nk. kl. 14:30. Kaldá 1, Ísafjarðarbær, fnr. 212-6316, þingl. eig. Skagasól ehf, gerðarbeiðandi Tryggingamiðstöðin hf., þriðjudaginn 12. desember nk. kl. 15:15. Sýslumaðurinn á Vestfjörðum 5. desember 2017 Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Vesturholt 2, Borgarbyggð, fnr. 233-5700, þingl. eig. Gigant Denmark Aps.,, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., þriðjudaginn 12. desember nk. kl. 11:00. Vesturholt 3, Borgarbyggð, fnr. 233-5701, þingl. eig. Gigant Denmark Aps.,, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., þriðjudaginn 12. desember nk. kl. 11:05. Fitjahlíð 21, 50 % ehl Skorradalshreppur, fnr. 210-6554, þingl. eig. LAB ehf, gerðarbeiðandi Tollstjóri, þriðjudaginn 12. desember nk. kl. 13:00. Sýslumaðurinn á Vesturlandi 5. desember 2017 Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á skrif- stofu embættisins, Hafnarstræti 1 Ísafirði, sem hér segir: GUMMI VALLI, ÍS, Ísafjarðarsýslur og Ísafjörður, (FISKISKIP), fnr. 5155 , þingl. eig. Guðjón Guðmundsson, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., þriðjudaginn 12. desember nk. kl. 10:00. Sýslumaðurinn á Vestfjörðum 5. desember 2017 Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9, nemendur úr Grandaskóla koma í jólasögustund kl. 9 og svo foreldramorgnar kl. 10.30. Söng- stund kl. 13.45 og koma börn af Grandaborg í heimsókn og fá að syngja með og endum við daginn á bókaspjalli Hrafns Jökulssonar kl. 15. Verið öll velkomin til okkar! Árbæjarkirkja Opið hús í safnaðarheimili Árbæjarkirkju kl. 13 til 16. Stólaleikfimi á sínum stað kl. 13.30. Ingunn Sigurðardóttir syngur jólalög fyrir okkur en einnig koma börn frá leikskólanum Heiðarborg í heimsókn og taka lagið fyrir og með okkur. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12 og hádegisverður á eftir kr. 700. Allir hjartanlega velkomnir. Árskógar Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-16. Opin smíðastofa kl. 9-16. Stóladans með Þóreyju kl. 10. Opið hús, t.d. vist og brids kl. 13-16. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. S. 535-2700. Boðinn Vatnsleikfimi í sundlaug Boðans kl. 9. Handavinnustofa opin frá kl. 9-15. Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Leshópur Hjördísar kl. 10.30. Botsía kl. 10.40-11.20.Morgunkaffi kl. 10-10.30. Tölvu- og snjallsímaaðstoð frá kl. 10.30-11.10. Glerlist kl. 13. Spiladagur, frjáls spilamennska kl. 12.30-15.50. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15. Breiðholtskirkja Eldra borgarastarf í Breiðholtskirkju ,,Maður er manns gaman" er kl. 13.15. Allir hjartanlega velkomnir. Bústaðakirkja Félagsstarfið er á sínum stað á miðvikudögum. Guðmundur Brynjólfsson og les upp úr bókinni sinni ,,Tímagarður- inn". Áfram verður haldið með jólaföndrið. Kaffið góða á sínum stað. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest. Starfsfólk Bústaðakirkju Félagsmiðstöðin Vitatorgi Bókband kl. 9-13, opin handavinna frá kl. 9-12, tölvu og snjallsímakennsla kl. 10-11, bókband 13-17, frjáls spilamennska 13-16.30, myndlist kl. 13.30-17. Harmonikkudansleikur með Vitatorgsbandinu frá kl. 14-15, ókeypis aðgangur og allir velkom- nir. Kaffiveitingar kl. 14.30-15.30. Volare snyrtivörukynning frá kl. 12- 15. Verið velkomin á Vitatorg, síminn er 411-9450 Furugerði 1 Morgunverður frá kl. 8.10-9.10 í borðsal, fjöliðjan í kjall- ara opin frá kl. 10, heitt kaffi á könnunni. Stólaleikfimi með Olgu kl. 11 í innri borðsal. Hádegisverður kl. 11.30-12.30 í borðsal. Ganga kl. 13 ef veður leyfir. Botsía í innri borðsal kl. 14. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30 í borðsal. Garðabær Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 9.30-16. Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.40/15. Kvennaleikfimi í Sjálandi kl. 9.30. Kvennaleikfimi í Ásgarði kl. 10.40. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Brids í Jónshúsi kl. 13. Smiðjan í Kirkjuhvoli er opin kl. 13-16. Gerðuberg Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Útskurður með leið- beinanda kl. 9-12. Útskurður / pappamódel með leiðbeinanda kl. 13- 16. Félagsvist kl. 13-16. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.10 botsía fyrir byrjendur, kl. 9.30 glerlist, kl. 13 félagsvist, kl. 13 postulínsmálun. Grensáskirkja Samverustund eldri borgara kl. 14-15.30. Jólabingó. Kaffiveitingar. Verð 500 kr. Guðríðarkirkja Jólabingó kl. 12. Byrjum í kirkjunni með fyrirbænir og söng. Hægt er að hafa samband við Guðríðarkirkju með fyrir- bænaefni í síma 577-7770. Súpa og brauð 700 kr. Jólabingó spjaldið kostar 200 kr. Hlökkum til sjá ykkur. Gullsmári Myndlist kl. 9. Ganga kl. 10. Postulísmálun / kvennabrids / silfursmíði kl. 13. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, zumbadans með Carynu kl. 9, morgunleikfimi kl. 9.45, jóga kl. 10 með Carynu. Sam- verustund kl. 10.30, lestur og spjall, matur kl. 11.30. Aðventuferð verður farin föstudaginn 15. desember Skráning og nánari upplýs- ingar á staðnum eða í síma 535-2720. Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50, við hringborðið kl. 8.50, upplestrarhópur Soffíu kl. 9.45, ganga kl. 10, línudans með Ingu kl. 10.15, stóla- og hláturjóga kl. 13.30 með Ástu, tálgun í ferskan við með Valdóri kl. 14.30, síðdegiskaffi kl. 14.30. Rautt þema á föstudag- inn í Hæðargarði, allir velkomnir óháð aldri. Uppl. í síma 411-2790. Korpúlfar Glerlist með Fríðu kl. 9, ganga frá Borgum kl. 10 og inni í Egilshöll, stjórnar og nefndarfundur Korpúlfa kl. 10 og Jólabingó Korpúlfa með margt stórglæsilegra vinninga kl. 13 í Borgum, von- umst til að sjá ykkur öll. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, morgunleik- fimi kl. 9.45, viðtalstími hjúkrunarfræðings kl. 10-12, upplestur kl. 11, félagsvist kl. 14, ganga með starfsmanni kl. 14, Bónusbíllinn kl. 14.40, heimildarmyndasýning kl. 16. Selið, Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-16 og upp úr kl. 10 er boðið upp á kaffi þar sem fólk kemur saman í spjall og kíkir í blöðin. Hádegisverður er kl. 11.30-12.30 og handavinnuhópurinn kemur sam- an kl. 13. Vöfflukaffi er selt á vægu verði kl. 14.30–15.30. Allir eru hjart- anlega velkomnir í Selið. Nánari uppl. hjá Maríu Helenu í s. 568-2586. Seltjarnarnes Listasmiðja Skólabraut kl. 9. Botsía Gróttusal kl. 10. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12. Handa- vinna Skólabraut kl. 13. Timburmenn Valhúsaskóla kl. 13. Leggjum af stað á Örkina frá Skólabraut kl. 15. Vatnsleikfimi kl. 18.30. Stangarhylur 4 Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði Stangarhyl 4, kl. 10. Aðventugleði í dag þar sem boðið verður upp á óáfengt jólaglögg, kaffi og góðgæti. Söngur, Hrafnhildur Árnadóttir syngur nokkur lög, Kór FEB syngur undir stjórn Gylfa Gunnarssonar, hugvekja sr. Davíð Þór Jónsson, upplestur úr jólabók og fleira til skemmtunar. Gleðin hefst kl. 15.30. Aðgangseyrir aðeins 700 kr. Félagslíf Samkoma kl. 20 í Kristni- boðssalnum. Kalli segir frá Eþíópíu. Ræðumaður Frank M. Halldórsson. Allir velkomnir. Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl 20.00.  HELGAFELL 6017120619 IV/V Smáauglýsingar Bækur Allt þetta fólk Þormóðsslysið 18. 2.1943 Þormóðsslysið var mikill harmleikur. Líf heillar byggðar og flestra fjöl- skyldna þar gjörbreyttist eftir það. Fæst í öllum bókaverslunum. Vestfirska forlagið Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Til sölu Lok á heita potta og hitaveitu- skeljar Stærðir í cm: 200x200, 210x210, 220x220, 235x235, 235x217, 217x174, 8 hyrnd lok. Lokin þola 1000 kg jafnarðarþunga af snjó. Vel ein- angruð og koma með 10 cm svuntu. Sterkustu lokin á markaðnum. Litir: Brúnt eða grátt. Opnarar til þess að auðvelda opnun á loki. www.heitirpottar.is Sími 777 2000 Haffi og 777 2001 Grétar KRISTALS LJÓSAKRÓNUR til sölu. Glæsilegar kristalsljósa- krónur fyrir falleg heimili. Hand- skornar kristalsljósakrónur, veggljós, matarstell, kristalsglös til sölu. BOHEMIA KRISTALL, Grensásvegi 8. Sími 7730273 Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Húsviðhald A2B Verktakar Erum með faglærða aðila í öllum iðngreinum. Ertu að flytja og vantar iðnarmann strax? Við sjáum um allt frá lofti til lagna, hafið samband og við metum, veitum ráðgjöf og gerum þér tilboð og kostnaðaráætlun að kostnaðarlausu. A2B Verktakar símar: 7813131 / 8882220 a2bverktakar@gmail.com Iðnaðarmenn Minningar MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2017 Stari á kyrrt vatnið. Blár him- inninn endurspegl- ast í því. Sé sjálfan mig. Virði fyrir mér sorgmædd augun. Hún er farin. Hreyfing kemst á vatnið. Er bylgjurnar lægir birtist andlit hennar. Stari á hana. Hún er með gleraugun fram á grannt nefið. Eyrun eilítið útstæð. Brúnt hárið stuttklippt. Hún horfir á mig til baka. Svipurinn segir allt sem segja þarf: Allt verður í lagi. Hún er hörkutól. Fæddi barn fyrir hádegi, eldaði kvöld- mat síðar um daginn. Henni fellur ekki verk úr hendi. Ól upp stóra og myndarlega fjöl- skyldu. Vatnið ókyrrist aftur. Hún er stödd í eldhúsinu heima á Sval- barða. Útvarpið er í bakgrunni. Lyktin af lambalærinu í ofn- inum umlykur allt. Amma situr ekki auðum höndum. Með rösk- um handtökum smyr hún krem á kökubotninn; súkkulaðikök- una hennar ömmu sem við gúff- um í okkur síðar með ískaldri mjólk. Krakkarnir sitja við eld- húsborðið með súkkulaðið út á kinnar. Amma stendur við eldhús- skenkinn og fylgist með okkur. Myndin í vatninu breytist á ný. Hún er með afa. Þau sitja hlið Áslaug Þóra Einarsdóttir ✝ Áslaug ÞóraEinarsdóttir fæddist 26. nóv- ember 1935. Hún lést 8. nóvember 2017. Útför Áslaugar Þóru fór fram 18. nóvember 2017. við hlið í sófanum heima hjá mömmu og pabba. Hún er afar hænd að hon- um. Hvert sem hann fer, þangað fylgir hún. Þau eru miklir félagar. Afi segir ýkta sögu sposkur á svip. Hún hlustar af at- hygli þótt þetta sé nú bölvuð vitleysa. Bára svífur yfir vatnið. Afi hverfur úr myndinni. Hún er ein. Missirinn er mikill. Hún situr eftir með harðnaðan svip. Lætur þó ekki deigan síga; engan bilbuga á sér finna eða sjá. Hún er harðjaxl. Við sitjum við eldhúsborðið heima á Höfn og ég segi henni fréttir. Hún er fámál og hljóðlynd; hlustar frekar á sögur mínar. Í sam- skiptum er hún engin upp- skafningur. Er beinskeytt, jarðbundin og verður sjaldan uppveðruð. Lífið er eins og það er; áfram heldur það. Það er fá- gætt að eitthvað umstang er í kringum hana. En hún þiggur sælgætismola ef hann er við höndina. Alda skekur vatnið að nýju. Ásjón hennar dofnar og fjar- ar út. Hún farin. Sit eftir með þá tilfinningu að hafa ekki ver- ið tilbúinn að að sleppa takinu alveg strax. Lífið er þó eins og það er. Stari á mig. Andlit mitt speglast í vatninu þar sem hennar sást. Sé svip hennar í svip mínum. Þannig heldur lífið áfram. Hafsteinn Dan Kristjánsson. Það var harma- fregn að heyra að æskuvinur minn Kristján Ottó hefði fallið frá svo skyndilega langt fyrir aldur fram. Hafði ég hitt öðlinginn í sum- ar og var hann léttur og kátur sem endranær. Þegar ég heyrði í honum síð- ar í haust sló hann enn á létta strengi þrátt fyrir að berjast við angrandi veikindi sem hann ætlaði heldur betur að yfirstíga fljótt og vel. En örlögin grá tóku í taumana og nú er þessi ljúfi drengur fallinn frá. Mun ég ávallt minnast þessa drengskaparmanns með sökn- uði og hlýju. Ottó kynntist ég í barnæsku þá er gestrisin fjölskylda hans flutti í nýbyggt hús á Tómasar- haga 36, þar sem áður stóðu Bjarnastaðir, hús afa og ömmu. Við félagarnir áttum ávallt góðar stundir saman, dvöldum löngum stundum í fjörunni við Ægisíðuna við ærsl og leik. Ottó var mikill grallari og fjör- kálfur og fylgdi létt lund hans honum alla hans tíð. Þannig að ávallt var gaman að hitta á hann, lyfta uppáhaldsromminu hans kenndu við kafteinn nokk- urn, skiptast á skoðunum og láta hugann líða til gamalla tíma; æskuvina og tónlistar- sköpunar en Ottó hafði mikinn Kristján Ottó Andrésson ✝ Kristján OttóAndrésson fæddist 27. desem- ber 1959. Hann varð bráðkvaddur 11. nóvember 2017. Útför Ottós fór fram 24. nóvember 2017. áhuga á hljómlist. Blátt áfram elskaði Deep Purple og slíkt dúndurpopp. Gat þess oft í stríðni að hann gæti ómögulega skilið þá sem ekki fylgdu sama smekk. Ottó var ljón- greindur og fylgd- ist vel með þjóð- og stjórnmálunum. Hafði sínar skoðanir á hreinu sem byggðust bersýnilega fyrst og fremst á sterkri réttlætis- kennd. Allir sem honum kynntust vissu að þar var einkar ærlegur maður á ferð. Heill í öllum sam- skiptum, jafnt við vini sem ókunnuga. Ottó lærði húsasmíði og varð metnaðarfullur fagmaður með mikinn áhuga á skipulagi og byggingarlist. Lagði sig fram um að verk hans væru falleg og vönduð mannvirki sem eftir stæðu í framtíð til fyrirmyndar. Var un- un að fá tækifæri til að starfa með honum. Öllum stundum var glatt á hjalla hjá okkur og fóru sam- ræður um víðan völl, hvort sem var heima hjá honum í Hátún- inu ellegar í seinni tíð tíðum símleiðis yfir fjarlæg höf og lendur. Ég votta systkinunum og fjölskyldu og hans góðu vinum innilegustu samúð mína og kveð með kærleik og þakklæti þenn- an upplitsdjarfa góðvin sem ávallt hafði kímingáfuna á hreinu og glettnislegt bros á vör. Guðjón Bjarnason.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.