Morgunblaðið - 06.12.2017, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 06.12.2017, Blaðsíða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2017 Rithöfundarnir Gerður Kristný, Jónas Reynir Gunnarsson og Stefán Máni lesa upp úr og spjalla um ný- útkomnar bækur sínar í Borgar- bókasafnimu í Grófinni í kvöld kl. 20. Umræðum stýrir Sunna Dís Másdóttir, verkefnastjóri á safninu. Í nýjustu bók sinni, Smartís, segir Gerður Kristný sögu unglings- stúlku á níunda áratug liðinnar ald- ar, þegar kalt stríð geisar í heim- inum og heimsendir virðist jafn raunverulegur og ný peysa úr Ping Pong við Laugaveg. Jónas Reynir Gunnarsson sendi frá sér þrjár bækur í haust, ljóðabækurnar Leið- arvísi um þorp og Stór olíuskip, sem hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar, og skáldsöguna Millilendingu sem seg- ir af Maríu, ungri konu sem á erfitt með að finna fótfestu í lífinu. Stefán Máni sendi fyrir skömmu frá sér skáldsöguna Skuggana en í henni segir af Timma og Kollu sem leita að eyðibýli á Melrakkasléttu. Gerður, Jónas og Stefán lesa og spjalla Morgunblaðið/Golli Smartís Gerður Kristný les upp úr og fjallar um nýútkomna bók sína Smartís. Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Árlegir aðventutónleikar kóra Dom- us vox verða haldnir í kvöld kl. 20 í Hallgrímskirkju. Kórarnir sem taka þátt í tónleikunum eru Vox feminae, Cantabile, Aurora og Stúlknakór Reykjavíkur. Listrænn stjórnandi tóneikanna er Margrét J. Pálma- dóttir og hefur hún staðið fyrir að- ventutónleikum í kirkjunni árlega allt frá árinu 1993 og verða þetta því 25. tónleikarnir í kirkjunni. Margrét mun stjórna kórunum ásamt Guðrúnu Árnýju Guðmunds- dóttur og Sigríði Soffíu Hafliðadótt- ur. Sigrún Pálmadóttir sópran syng- ur einsöng og hljómsveit skipa Arn- hildur Valgarðsdóttir á orgel, Hall- fríður Ólafsdóttir á flautu, Elísabet Waage á hörpu, Ólöf Sesselja Ósk- arsdóttir á selló og Baldvin Oddsson á trompet. Býður upp á draumahljóminn Margrét segist hafa verið búin að stjórna Stúlknakór Reykjavíkur í tíu ár þegar fyrstu aðventutónleikarnir voru haldnir í kirkjunni en þá söng Kvennakór Reykjavíkur. Í kvöld verða kórarnir fjórir, sem fyrr segir, og stúlknakórinn verður að auki tví- skiptur eftir aldri. Margrét segir gaman að því að hinir kórstjórnend- urnir, þær Guðrún og Sigríður, hafi alist upp í kór hjá henni og séu hægt og rólega að taka við af henni. „Við blöndum stjórninni og ég er list- rænn yfirstjórnandi,“ útskýrir Mar- grét. Í stúlknakórnum eru stúlkur upp að 18 ára aldri og í Auroru stúlkur og konur á aldrinum 18 ára til 26 ára. Í Cantabile eru konur yfir fimmtugu og í Vox feminae reyndar söngkonur og margar hverjar söng- lærðar. Margrét er stofnandi allra kóranna fjögurra og listrænn stjórn- andi. „Það eru 145 stúlkur í starfinu og síðan 75 konur,“ segir Margrét um þennan mikla kvennafjölda og að yngstu stúlkurnar séu þegar búnar að halda tónleika. Á tónleikunum í kvöld muni því um 170 stúlkur og konur syngja. „Hallgrímskirkja býð- ur okkur upp á draumahljóminn, þ.e.a.s. þennan hljóm sem gaman er að flytja a capella tónlist í og hátíð- lega tónlist,“ segir hún. Reyndustu kórarnir muni hefja dagskrána, Vox feminae fyrst og Aurora og svo Cantabile og Stúlknakór Reykjavík- ur. „Þetta er ekki hugsað sem sýn- ishorn fyrir hvern kór heldur er dag- skráin algjörlega heildræn og við endum saman á „Heims um ból“ og öllu þessu hátíðlega,“ segir Margrét um fyrirkomulagið. „Þetta er risa- stórt hljóðfæri,“ segir hún um kór- ana í heild og að yngsta söngkonan sé níu ára og sú elsta um áttrætt. „Það er líka dálítið fallegt að sjá þrjár kynslóðir koma saman; mömmuna, ömmuna og barnabarn- ið. Það eru nokkur dæmi um slíkt og alveg sérstaklega fallegt,“ bætir Margrét við. Leitin að andanum Margrét segir samstöðu, kærleik og vináttu einkenna tónleikana og spurð að því hvort einhver sér- staklega krefjandi verk séu á efnis- skránni segir Margrét svo ekki vera en nefnir þó fallega og sérstaka yoik-útsetningu á „Fögur er foldin“. Margrét gefur blaðamanni tóndæmi. „Það er ekki beint krefjandi en öðru- vísi í magnaðri a capella-útsetn- ingu,“ segir hún. „Þetta er þessi nor- ræni steppustíll,“ útskýrir hún. Í fyrri hluta tónleikanna verður farið allt aftur til endurreisnar en í þeim seinni verða nýrri og þekktari lög, m.a. „Vindur, dansaðu vindur“. Margrét segir efnisskrána alla með trúarlegu ívafi eða tilfinningu fyrir æðri máttarvöldum. „Leitin að and- anum því það skiptir máli í dagsins önn að þú finnir fyrir einhverjum anda í lífinu og sért ekki bara að hugsa um jólagjafir og skreytingar heldur líka þennan mikla náunga- kærleik sem þú leitar bara að í sálu þinni, finnst mér,“ segir hún. Kynntust í kór Flensborgarskóla Einsöngvari á tónleikunum verð- ur Sigrún Pálmadóttir sópran sem var fastráðin við óperuhúsið í Bonn á árunum 2001-2010 og söng þar fjöl- mörg burðarhlutverk óperubók- menntanna og kom jafnframt reglu- lega fram í öðrum óperuhúsum, m.a. í Dresden, Wiesbaden og Köln. Hún hlaut verðlaun styrktarfélags óper- unnar í Bonn 2004 fyrir vel unnin störf og framfarir og vorið 2008 söng hún hlutverk Víólettu Valéry í La traviata eftir Verdi hjá Íslensku óp- erunni og hlaut fyrir þá frammistöðu Grímuna, íslensku leiklistarverð- launin, sem söngvari ársins. „Ég kynntist henni þegar hún kom til mín í kór í Flensborgarskóla sem ég stjórnaði þá,“ segir Margrét um Sigrúnu og að hún hafi tekið miklu ástfóstri við rödd hennar. „Hún byrjaði að læra að syngja og syngur svo Næturdrottninguna í Bonn nokkrum árum síðar.“ Sigrún mun m.a. syngja „Let the Bright Serafim“ við trompetleik Baldvins Oddssonar og tvær Ave Maríur. Margrét telur tónleikana líklega verða þá síðustu sem hún haldi í Hallgrímskirkju, m.a. vegna mikils kostnaðar. Hún muni samt sem áður halda áfram að skipuleggja þessa ár- legu aðventutónleika, líkt og hún hafi gert í um aldarfjórðung. Miðasala á tónleikana fer fram hjá kórfélögum, Domus vox og á Tix.is. Morgunblaðið/Hari Söngglaðar Kórstjórnendurnir Sigríður Soffía, Margrét og Guðrún Árný og kórstúlkur og -konur á æfingu. „Risastórt hljóðfæri“  170 stúlkur og konur í kórum Domus vox á aðventutón- leikum í Hallgrímskirkju  25. aðventutónleikarnir SÝND KL. 5.30SÝND KL. 6 SÝND KL. 8, 10.15SÝND KL. 5.30, 8, 10 SÝND KL. 8, 10.25 Miðasala og nánari upplýsingar 5% ICQC 2018-20 /////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.