Morgunblaðið - 06.12.2017, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2017
SKECHERS WOODLAND
LOÐFÓÐRAÐIR OG VATNSHELDIR
DÖMUSKÓR MEÐ MEMORY FOAM
INNLEGGI. STÆRÐIR 36-41.
FÁST EINNIG BRÚNIR.
DÖMUSKÓR
VERÐ 14.995
KRINGLU OG SMÁRALIND
Arnþór Guðlaugsson, framkvæmdastjóri Ísteka, á 40 ára afmæli ídag. Ísteka er lífefnaframleiðslufyrirtæki og meginframleiðslaþess er frjósemishormón úr gjafablóði fylfullra hryssna.
„Með þessu hormóni er verið að koma af stað egglosi og þetta virkar í
öllum spendýrum, en hefur verið mest notað í kýr og svín. Við vinnum
þetta hormón á svokallað API-form og seljum það til stærri lyfjafyrir-
tækja í útlöndum.“
Það er gömul vitneskja, að hægt sé að nýta þetta blóð í þessum til-
gangi og hefur verið notað í 100 ár, en þá var því sprautað beint í skepn-
ur. „Það hefur breyst með auknum kröfum um hreinlæti og nákvæmni
lyfsins og við hreinsum blóðið það mikið að úr einu tonni sem við tökum
í hús vinnum við nokkur grömm af virku efni.
Við notum því mikið blóð en viljum meira og erum að biðla til bænda
að taka þátt í þessu með okkur. Þeir eru mjög margir úti um allt land og
við viljum enn fleiri í þessa byggðastyrkjandi starfsemi okkar. Varan
okkar er mjög vinsæl, sem gerir samkeppnisstöðu okkar sterka og við
erum í stöðugri sókn. Við höfum farið úr því að vera með fimm starfs-
menn yfir í rúmlega tuttugu frá aldamótum og erum búin að stækka
verksmiðjuna okkar á Grensásveginum.“
Arnþór er líffræðingur að mennt og tók við framkvæmdastjórastöð-
unni árið 2014 af Herði Kristjánssyni, sem er núna þróunarstjóri hjá
fyrirtækinu.
Eiginkona Arnþórs er Sigrún Pétursdóttir sem vinnur á Hljóðbóka-
safni Íslands. Börn þeirra eru Pétur 12 ára, Baldur átta ára og Hildur
fjögurra ára. „Ég ætla að vera rólegur í faðmi fjölskyldunnar, við för-
um út að borða og fáum okkur ís og svo sé ég til hvort ég geri eitthvað
meira í tilefni afmælisins.“
Við Goðafoss Arnþór með börnunum sínum í fyrrasumar.
Nýtir blóð úr
fylfullum hryssum
Arnþór Guðlaugsson er fertugur í dag
H
elgi Björnsson fæddist
6. desember 1942 í
Reykjavík. Hann
gekk í Melaskóla,
Gagnfræðaskólann
við Hringbraut og Menntaskólann í
Reykjavík og lauk námi í jarðeðlis-
fræði við Oslóarháskóla 1969.
Helgi starfaði við Orkustofnun
Noregs 1970-1971, Raunvísinda-
stofnun Háskólans 1971-1973 og frá
1975, var forstöðumaður jarðeðlis-
fræðistofu stofnunarinnar 1991-1995
og í stjórn Jarðvísindastofnunar
Háskólans 2010-2012. Hann hefur
kennt við Háskóla Íslands og var
gistisérfræðingur við fjölmarga er-
lenda háskóla og rannsóknastofn-
anir, í Bristol 1973-1975, Stokk-
hólmi 1980, Osló 1986-1987,
Institute of Arctic and Alpine Rese-
arch, Boulder í Colorado 1996, Brit-
ish Antarctic Survey og Scott Polar
Research Institute í Cambridge
1997, Department of Earth, Ocean
and Atmospheric Sciences, Univers-
ity of British Columbia í Vancouver
2005. Frá 1994 til 2004 var Helgi
prófessor í jöklafræði við Oslóar-
háskóla í hlutastarfi og vann einnig
að jöklarannsóknum í Svíþjóð, Nor-
egi og á Svalbarða.
Á árunum 2008-2015 tók Helgi
þátt í jöklarannsóknum á Himalaja-
svæðinu og sá um kennslu í jökla-
fræði við Indian Institute of
Sciences í Bangalore í Indlandi árin
2011-2015. Rannsóknir hans á Ís-
landi nutu styrkja frá Evrópusam-
bandinu samfellt frá árinu 1996 til
2005; alls fjögur verkefni í samvinnu
við jöklafræðinga frá tíu löndum.
Hann hefur átt langt samstarf við
Landsvirkjun og Vegagerðina um
Helgi Björnsson jarðeðlisfræðingur – 75 ára
Á Mýrdalsjökli Helgi staddur við Austmannsbungu, hæsta klett jökulsins, við eftirlit og rannsóknir.
Verður ekki síðasti
jöklafræðingurinn
Jöklafræðingur Helgi Björnsson.
Morgunblaðið/RAX
Hörður Jóhannesson og Sesselja Jóna Helgadóttir eiga 65 ára brúðkaups-
afmæli í dag. Þau voru gefin saman 6. desember 1952 í Kirkjuhvoli á Akranesi af
séra Jóni M. Guðjónssyni og var Helga Pálína, frumburðurinn, skírð í leiðinni.
Önnur börn þeirra eru Haukur, Alma, Hrönn og Jóhanna. Hörður og Sesselja eru
búsett á Hjarðarholti 3 á Akranesi.
Árnað heilla
Króndemantabrúðkaup
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift
að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón